Vinnumarkaður - 01.10.1994, Page 117

Vinnumarkaður - 01.10.1994, Page 117
Greinargerð um aðferðir og hugtök 115 9.1.3 Áreiðanleiki Villur og skekkjuvalda í úrtakskönnunum má í grófum dráttum flokka í tvennt: 1. Urtökuskekkju og 2. aðrar skekkjur. Hér á eftir er aðallega ljallað um þær skekkjur sem skipta máli fyrir úrvinnslu vinnumarkaðskönnunarinnar. Ekki má líta á umfjöllunina sem tæmandi yfirlit yfir skekkjur í úrtakskönnunum. Úrtökuskekkja. Úrtaksrannsóknir hafa ávallt ákveðna óvissu í för með sér, þar sem einstaklingar í úrtakinu eru valdir af handahófi úr einhverri heildarskrá, t.d. þjóðskrá. Óvissan felst í því að úrtakið er ekki nákvæm eftirmynd af heildarskránni eða þýðinu. Þar sem þessi óvissa ræðst af hendingu er unnt að reikna út öryggismörk fyrir þær stærðir sem metnar eru. í töflu 9.3. eru sýnd öryggismörk fyrir metnar stærðir í vinnumarkaðskönnun Hagstofunnar, miðað við 95% öryggisstig. Til að ftnna öryggismörk fyrir t.d. 3.600 atvinnulausa á árinu 1991 eru fundin öryggismörk fyrir þá metnu stærð í töflunni sem kemst næst þeim fjölda, þ.e. ± 600. Af því má álykta að 95% líkur séu á því að meðalatvinnuleysi 1991 haft verið á bilinu 3.000 til 4.200. Sé stærð hóps metin minni en 1.000 fer frávikshlutfallið, þ.e. hlutfall staðalskekkjunnar af metnu stærðinni, yfir 20%. Þær tölur svo og hlutfallstölur og meðaltöl fyrir smærri hópa en 1.000 eru sérstaklega auðkenndar með stjömu (*, sbr. t.d. töflu 9.4.). Tafla 9.3. Staðalskekkja, frávikshlutfall og öryggismörkívinnumarkaðskönnun- um Hagstofu íslands Table 9.3. Standard error, relative standard error and con- fidence limits in the labourforce surveys Metinnfjöldi Estimated number Staðalskekkja Standard error Frávikshlutfall Relative standard error Öryggismörk Confidence limits 1.000 200 17,8 ±400 3.000 300 10,2 ±600 5.000 400 7,9 ±800 8.000 500 6,2 ± 1.000 12.000 600 5,0 ± 1.200 17.000 700 4,1 ± 1.400 23.000 800 3,5 ± 1.600 31.000 900 2,9 ± 1.800 41.000 1.000 2,4 ± 2.000 56.000 1.100 2,0 ± 2.200 90.000 1.200 1.3 ± 2.400 Aðrar skekkjur. Aðrar skekkjur en úrtökuskekkju má flokka í þrennt: 1. Skekkjur vegna þekju, 2. skekkjur vegna brottfalls og 3. skekkjur vegna mælinga. Þekjuskekkjur. Þekjuskekkjur stafa annars vegar af því að sú skrá sem lögð er til grundvallar vali á úrtakinu, þ.e. úrtökuramminn, er ekki tæmandi og hins vegar af því að í rammanum em einstaklingar eða einingar sem ekki eiga þar heima. Þetta kallast hvort um sig vanþekja og ofþekja. Eins og áður er getið er úrtak vinnumarkaðskönnunarinnar tekið úr hópi fólks á aldrinum 16-74 ára sem hefur lögheimili á Islandi skv. þjóðskrá. I þjóðskránni er hins vegar allstór hópur fólks sem hefur aðsetur erlendis vegna náms eða vinnu til lengri tíma en 6 mánaða. Aðeins hluti þessa fólks er skráður með slíkt aðsetur. Sé þessi hópur ekki dreginn frá mannljöldanum á vinnualdri kemur fram umtalsverðurbjagi, áætlanir um heildartölur verða ofáætlaðar sem því nemur. I þessari skýrslu hafa því allar áætlaðar heildartölur verið umreiknaðar til samræmis við meðalmannfjölda á viðkomandi ári, eins og Hagstofan reiknar hann út, að frádregnum fjölda þeirra sem vinnumarkaðskönnunin gefur vísbendingu um að séu búsettir erlendis en hafa lögheimili á Islandi. í töflu 9.4 er birt yfirlit um meðalmannijölda 1991-1993 eftir aldri og aðsetri eins og hann er metinn skv. þessari aðferð. Ekki er ástæða til að ætla að í þjóðskránni sé umtalsverð vanþekja, þ.e. að í hana vanti fólk sem ætti að teljast til þýðisins. Tafla 9.4. Meðalmannfjöldi 16-74 ára eftir aldursflokkum og aðsetri 1991-1993 Table 9.4. Mean population 16-74 years by age group and residence 1991-1993 Árlegurmeðalfjöldi Alls Áíslandi Erlendis Annual averages Total In Iceland Abroad 1991 Alls Total 177.988 173.386 4.602 16-24 ára years 37.799 36.100 1.699 25-34 ára years 43.167 41.069 2.098 35-44 ára years 36.278 36.090 188* 45-54 ára years 24.094 23.911 183* 55-64 ára years 20.754 20.539 215* 65-74 ára years 15.896 15.677 219* 1992 Alls Total 180.321 174.979 5.342 16-24 ára years 37.698 35.663 2.035 * 25-34 áiayears 43.313 40.893 2.420 35-44 ára years 37.289 36.807 482* 45-54 ára years 25.066 24.920 146* 55-64 árayears 20.707 20.612 95* 65-74 ára years 16.248 16.085 163* 1993 Alls Total 182.040 177.848 4.192 16-24 ára years 37.505 35.820 1.685 25-34 ára years 43.034 41.435 1.599 35-44 árayears 38.101 37.668 433* 45-54 ára years 26.210 26.015 195* 55-64 árayears 20.610 20.424 186* 65-74 ára years 16.580 16.485 95* * Frávikshlutfall yfír 20%. Relaíive standarderror exceeds 20%.
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132

x

Vinnumarkaður

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vinnumarkaður
https://timarit.is/publication/1382

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.