Vinnumarkaður - 01.10.1994, Page 120

Vinnumarkaður - 01.10.1994, Page 120
118 Greinargerð um aðferðir og hugtök Þar sem hver skiptihópur í vinnumarkaðskönnuni er valinn með einfaldri hendingaraðferð þá verða tveir yngstu árgangar endanlegs úrtaks hlutfallslega fámennari en þeir ættu að vera. Þetta stafar af því að þeir sem á árinu áður voru 16 og 17 ára eru nú orðnir árinu eldri. A hverju vori er t.d. hlutfallslegur heildarfjöldi 16 ára árgangsins aðeins fjórðungur af því sem vera ætti, þar sem þeir sem áður voru 16 ára hafa nú elst um eitt ár. Skekkjan er helmingi minni fyrir 17 ára árganginn og hverfur frá og með 18. aldursárinu. Þetta getur leitt til ofáætlunar á fjölda fólks á vinnumarkaði þar sem lítil atvinnuþátttaka tveggja yngstu árganganna ætti að öllu jöfnu að hafa áhrif til lækkunar á mati á atvinnuþátttöku heildarinnar. Við þessu hefur verið brugðist með því að taka sérstakt tillit til 16 og 17 ára árganganna við vigtun úrtaksins. 9.1.4 Hugtök Aðaliðja. 1 skýrslunni eru þrjár töflur þar sem talnaefnið er flokkað eftir aðaliðju svarenda (töflur 4.53 - 4.55). Við þá flokkun eru notaðar aðrar skilgreiningar á vinnuafli, starfandi fólki og atvinnulausum en í öðrum töflum. Aðaliðja er skilgreind þannig að í vinnuafli teljast aðeins þeir sem vinna að jafnaði 12 klst. eða meira á viku eða eru atvinnulausir skv. skilgreiningu ILO. Námsmenn sem aðeins eru að leita sér að hlutavinnu eru þó ekki flokkaðir með atvinnulausum. Að öðru leyti eru svarendur flokkaðir í samræmi við þá stöðu sem þeir telja sig hafa. Aldur. Við birtingu gagna eftir aldri svarenda er miðað við þann aldur sem svarendur ná 15. dag könnunarmánaðar. I vorkönnuninni 1993 var miðað við 31. mars það ár. Atvinnugrein. Atvinnustarfsemi þeirra fyrirtækja sem fólk starfar hjá eða starfaði síðast hjá er flokkuð í samræmi við Islenska atvinnugreinaflokkun, ISAT 95, sem byggð er á atvinnugreinaflokkun Evrópusambandsins, NACE (1. endursk.). Atvinnustarfsemi er flokkuð með fjögurratölustafa atvinnugreinamúmeri. I þessari skýrslu er þó aðeins flokkað eftir bálkum atvinnugreinaflokkunarinnar. Fiskiðnaður myndar þó sérstaka atvinnugrein undir iðnaði. Atvinnustétt. Fjórar atvinnustéttir em skilgreindar í vinnumarkaðskönnunum Hagstofunnar: Launþegar, ein- yrkjar, atvinnurekendur og ólaunað skyldulið. I þessari skýrslu er einyrkjum og atvinnurekendum slegið saman í einn hóp, sjálfstætt starfandi. Atvinnuþátttaka. I vinnumarkaðskönnun Hagstofunnar er fylgt skilgreiningum Alþjóðavinnumálastofnunarinnar (ILO) á grundvallarhugtökum um vinnumarkað en þær eru notaðar á alþjóðavettvangi. Helstu skilgreiningar eru þessar: Atvinna. Hvers konar vinna gegn endurgjaldi í peningum eða fríðu, ólaunuð vinna við fyrirtæki eigin fjölskyldu, ólaunuð vinna við byggingu eigin íbúðarhúsnæðis eða framleiðslu til eigin neyslu. Ennfremur vinna við listsköpun jafnvel þótt viðkomandi hafi ekki tekjur af henni. Ólaunuð vinna við heimilishald á eigin heimili telst ekki atvinna í skilningi vinnumarkaðskönnunarinnar. Atvinnulausir. Fólk telst vera atvinnulaust ef það hefur ekki atvinnu og uppfyllir auk þess eitthvert eftirfarandi skilyrða: 1. Hefur leitað sér að vinnu sl. fjórar vikur og er tilbúið að hefja störf innan tveggja vikna frá því könnunin er gerð. 2. Hefur fengið starf en ekki hafið vinnu. 3. Bíður eftir að vera kallað til vinnu. 4. Hefur gefist upp á að leita að atvinnu en bjóðist starf er það reiðubúið að hefja vinnu innan tveggja vikna. Námsmenn, þ.m.t. þeir sem leita námssamnings í iðngrein, teljast atvinnulausir uppfylli þeir fyrsta skilyrðið auk þess að vera án atvinnu. Starfandi. Fólk telst vera starfandi (hafa atvinnu) ef það hefur unnið eina klukkustund eða lengur í viðmiðunarvikunni eða verið fjarverandi frá starfi sem það gegnir að öllu jöfnu. Fólk í bamsburðarleyfi telst vera fjarverandi frá vinnu hafi það farið í leyfi úr launuðu starfi jafnvel þótt það hafi ekki hug á að hverfa aftur til sama starfs. Utan vinnuafls. Fólk telst vera utan vinnuafls ef það er hvorki í vinnu né fúllnægir skilyrðum um að vera atvinnulaust. Vinnuafl samanstendur af starfandi og atvinnulausu fólki. Búseta. Úr þjóðskrá fást upplýsingar um sveitarfélag og póstfang svarenda. Búsetu i vinnumarkaðskönnuninni er skipt í a) höfuðborgarsvæði, b) kaupstaði og bæi utan höfúðborgarsvæðis og c) önnur sveitarfélög. Við flokkun búsetu er stuðst við þjóðskrá eða nýjar upplýsingar frá svarendum meðan á könnun stendur. A höfuðborgarsvœði eru eftirtalin sveitarfélög: Reykjavík, Seltjarnames, Hafnarfjörður, Bessastaða- hreppur, Garðabær, Kópavogur, Mosfellsbær, Kjalames- hreppur og Kjósarhreppur. Til kaupstaða og bœja teljast eftirtalin sveitarfélög: Keflavík, Grindavík, Sandgerði, Njarðvík, Akranes, Borgames, Stykkishólmur, Ólafsvík, ísafjörður, Bolungar- vík, Blönduós, Sauðárkrókur, Siglufjörður, Akureyri, Dalvik, Ólafsfjörður, Húsavík, Egilsstaðir, Seyðisfjörður, Eski- fjörður, Neskaupstaður, Höfn í Homafirði, Selfoss, Hvera- gerði og Vestmannaeyjar. Til annarra sveitarfélaga teljast sveitarfélög ótalin hér að ofan. Hjúskaparstétt. Nokkuð er um það að hjúskaparstétt svarenda eins og þeir skilgreina hana sjálfir beri ekki saman við þjóðskrá. Ekki er óalgengt að fráskildir eða ekkjur og ekklar segist vera ógiftir þegar þeir eru spurðir um hjúskaparstöðu. Nokkuð er um að fólk í óvígðri sambúð telji sig vera gift. Væm svör um hjúskaparstétt greinilega röng, miðað við þjóðskrámpplýsingar, vom þau leiðrétt. Menntun. I vinnumarkaðskönnuninni er spurt um hæstu prófgráðu þátttakenda. Svörin em flokkuð í samræmi við menntunarflokka ISCED, Alþjóðlegu menntunarflokkunar- innar. Grunnmenntun samsvarar flokkum 1 og 2, starfs- og framhaldsmenntun svarar til flokka 3 og 5 og háskólamenntun samsvarar flokkum 6 og 7. í vinnumarkaðskönnuninni er ennfremur gert ráð fyrir að iðnmenntun og styttri starfsmenntun ásamt tveggja ára almennri menntun í framhaldsskóla, þ.m.t. verslunarpróf, teljist til flokks 3 en fjögurra ára framhaldsmenntun sem lýkur með stúdentsprófi og starfsmenntun úr svokölluðum sérskólum, s.s. Fósturskóla, íþróttakennaraskóla, Stýri- mannaskóla, Myndlista- og handíðaskóla, teljisttil flokks 5. Námsmenn. Svarandi telst námsmaður ef hann var í skóla innan hins almenna skólakerfis, á námssamningi eða i starfsþjálfun í mánuðinum áður en vinnumarkaðskönnunin var framkvæmd eða er í vinnu með námi.
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132

x

Vinnumarkaður

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vinnumarkaður
https://timarit.is/publication/1382

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.