Vinnumarkaður - 01.11.1999, Blaðsíða 205
Greinargerð um aðferðir og hugtök
203
hlutfallslegu atvinnuleysi eru byggðar á upplýsingum um
vinnuvikur samkvæmt gögnum skattyfirvalda. Þessar
upplýsingar hafa hins vegar oft verið síðbúnar og því eru
mannaflatölur 1997 og 1998 áætlaðar af Þjóðhagsstofnun.
Árin 1991-1995 voru vinnuvikur taldar hjá launþegum í
völdum fyrirtækjum. Launagreiðslur þessara fyrirtækja voru
samtals rúmlega 70% af greiddum heildarlaunum þessi ár.
Fjöldi vinnuvikna annarra launþega er áætlaður með hliðsjón
af meðaltekjum í hverri atvinnugrein. Fjöldi vinnuvikna
einyrkj a er metinn á grundvelli upplýsingafrá ríkisskattstj óra
um staðgreiðslu af reiknuðu endurgjaldi. Með þessu móti
fæst allgott mat á fjölda ársverka.
Skipting eftir mánuðum er fundin með því nota stuðla sem
líkja eftir árstíðasveiflu mannaflans. I áætlunum Þjóðhags-
stofnunar um ársverk 1997 og 1998 er stuðst við sömu
hlutfallsskiptingu eftir kyni og búsetu og árið 1996.
Við ársverkin, þannig reiknuð, eru síðan lagðar upplýsingar
um meðalfjölda atvinnulausra eftir kyni, mánuðum og
kjördæmum skv. skráningu opinberra vinnumiðlana til að fá
upplýsingar um mannafla.
Skráð atvinnuleysi eftir aldri og lengd atvinnuleysis.
Hagstofan hefur safnað gögnum um tímalengd skráðs
atvinnuleysis eftir aldri og kyni í lok febrúar, maí, ágúst og
nóvember ár hvert frá 1986. Fram til maí 1993 var einungis
leitað eftir skýrslum frá sveitarfélögum sem samkvæmt
lögum var skylt að reka opinbera vinnumiðlun, þ.e.
sveitarfélögum með 500 eða fleiri íbúa. Þessir staðir voru
tæplega 80. í júlí og ágúst 1993 gerði Hagstofan sérstaka
könnun meðal allra sveitarfélaga í landinu á því hverjir sæju
um atvinnuleysisskráningu fyrir hönd viðkomandi
sveitarfélags. Frá og með ágúst 1993 hefur verið aflað
skýrslna frá öllum þeim sveitarfélögum og vinnumiðlunum
sem skrá atvinnuleysi samkvæmt þessari athugun. Frá ágúst
1993 hafa heimtur á skýrslum um þennan þátt atvinnuleysis
verið 100%.
Aldursskipting í gögnum er miðuð við fæðingarár. I febrúar
og maí er miðað við þá sem verða 16 ára og eldri í árslok. I
ágúst og nóvember er miðað við þá sem verða 15 ára og eldri
í árslok.
Tölur um atvinnulausa ná til allra þeirra sem eru skráðir
atvinnulausir á viðmiðunardegi hvort sem þeir eiga rétt á
bótum eða ekki.
9.2.3 Hugtök
Áætlaður mannafli. Áætlaður mannafli telst vera áætlaður
fjöldi ársverka eða heildarfjöldi ígilda fullra starfa auk
tapaðra ársverka vegna atvinnuleysis. Tvö hlutastörf með
50% starfshlutfalli teljast eitt ársverk.
Meðalatvinnuleysi í mánuði. Meðalatvinnuley si í mánuði
er fundið með því að deila meðalfjölda virkra daga í mánuði
(21,67 dagur) í fjölda skráðra atvinnuleysisdaga.
Tímalengd skráðs atvinnuleysis. Með tímalengd skráðs
atvinnuleysis er átt við fjölda vikna sem einstaklingur hefur
verið samfellt á atvinnuleysisskrá á viðmiðunardegi. Þótt
einstaklingur missi rétt til atvinnuleysisbóta fellur hann þar
með ekki af atvinnuleysisskrá. íhlaupavinna eða hlutavinna
unemployment as registered by public employment agencies.
These estimates are derived from data on the number of
working weeks supplied by the tax authorities. As the
production of these figures tends to be late, the number of
man-years in 1997 and 1998 are the NEI’s own estimates. In
1991 to 1995 the number of working weeks of employees
was counted in selected firms. The total wage outlay forthese
firms was more than 70% of all wage outlays in these years.
The number of working weeks for the remaining employees
was estimated by taking into account average wages by
economic sector. The number of working weeks of own-
account workers was estimated by using data from monthly
tax returns.
The reference period for the number of man-years is the
whole year. Monthly variations are calculated by using
coefficients which simulate seasonal variations. The
distribution by sex and residence for 1997 and 1998 is
calculated by using the same proportional distribution as in
1996.
Number of registered unemployed persons by length
of unemployment, sex and age group. Between 1986 and
May 1993 these data were collected from municipalities with
more than 500 inhabitants. From August 1993 all
municipalities registering unemployment separately have
reported to Statistics Iceland.
Age groups are defined by the calendar year. In February
and May information is collected for the number of
unemployed persons who will be 16 years or older at the end
of the year. In August and November the age limit is persons
who will be 15 years or older at the end of the year.
Until August 1993 agency non-response has been higher
for the quarterly data than for the monthly data of registered
unemployment days.
9.2.3 Concepts
Number of man-years. The number of full-time job
equivalents, estimated from the number of working weeks
during the year. Two part-time jobs, totalling 26 weeks each,
constitute one man-year. Registered unemployment is
calculated in a similar way and added to the number of full-
time equivalents.
Average monthly unemployment. Average monthly
unemployment is calculated as the number of unemployment
days divided by the average number of working days per
month (21.67).
Length of registered unemployment. The number of
successive weeks an individual has been registered as
unemployed on the reference day. Loss of compensation
rights does not interrupt the count of weeks in unemployment.
Casual work or part-time work does not affect the count of