Gistiskýrslur - 01.08.2000, Page 9

Gistiskýrslur - 01.08.2000, Page 9
Inngangur Introduction 1. Gistináttatalning Hagstofu Islands 1. Overnight stays statistics Gistiskýrslur 1999 er sjöunda ritið sem Hagstofan gefur út í ritröðinni Gistiskýrslur. Ritið skiptist í tvo hluta, töfluhluta og inngang. I inngangi ritsins eru yfirlitstöflur, sem sýna helstu niðurstöður og þróun á milli ára, ásamt skýringartexta og myndum. Yfirlitin ná sum hver aftur til ársins 1985 en þá hófst gistináttatalning Hagstofunnar, en flest ná yfirlitin tvö til fjögur ár aftur í tímann. Töflurnar í töfluhluta ritsins innihalda eingöngu tölur frá árinu 1999, að undanskildum töflum 24 og 25. í töfluhlutanum er talnaefnið sundurliðað eftir landsvæðum, ríkisfangi og tímabilum. Upplýsingaöflun Hagstofunnar fer þannig fram að gisti- stöðum og öllum þeim sem selja gistiþjónustu eru send skýrslueyðublöð til útfyllingar en á þau skal færa fjölda gesta og gistinátta sundurliðaðan eftir ríkisfangi. Ríkisföngin eru auk Islands 14 Evrópulönd, þaðan sem flestir ferðamenn koma, Bandaríkin, Kanada og Japan. Aðrir gestir teljast aðrir Evrópubúar eða íbúar annarra landa. Fram til ársins 1995 var einungis safnað tölum um fjölda gistinátta en í júní árið 1995 var auk þess byrjað að safna upplýsingum um fjölda næturgesta. Byrjunarörðugleikar háðu talningu gestakoma framan af og því var ekki hægt að birta tölur um þær fyrr en frá og með árinu 1996. Réttur Hagstofu til að krefja seljendur gistiþjónustu upplýsinga er byggður á 10. gr. laga um veitinga- og gististaði nr. 67/1985. Þar segir: „Rekstraraðilar, er undir þessi lög falla, skulu veita stjórnvöldum upplýsingar skv. nánari fyrir- mælum Hagstofu Islands. Slíkar upplýsingar skulu einungis notaðar til könnunar og skipulagningar á ferðaþjónustunni almennt og/eða rekstri veitinga- og gistihúsa sérstaklega sem atvinnugreinar.“ I samræmi við þessa lagagrein og venjur skuldbindur Hagstofan sig til að fara með alla vitneskju um starfsemi einstakra gististaða sem trúnaöarmál og lætur aðeins í té samandregnar upplýsingar í töflum. Skýrslueyðublöð þau sem Hagstofan sendir seljendum gistiþjónustu til útfyllingar eru þrjú. Tvö þeirra eru svokölluð hjálparblöð, annað er fyrir gestakomur en hitt fyrir gistinætur. Þessi blöð eru einungis ætluð til notkunar á gististöðunum og er hægt að fylla þau út eftir hvern dag. Þriðja eyðublaðið „Gistiskýrsla til Hagstofu" er eina blaðið sem senda skal Hagstofunni. A það skal færa samtölur mánaðarins af hjálpar- blöðunum ásamt upplýsingum um gistirými. Eyðublöðin eru einnig til í tölvutæku formi fyrir töflureikni (Excel). 2. Flokkun gististaða 2. Classification oftourist accommodation Gistiþjónusta í landinu er fjölbreytt. I úrvinnslu Hagstofunnar er henni skipt í sex meginflokka. Fyrsti flokkur er hótel og gistiheimili. Nánar tiltekið hótel, hótelíbúðir og gistiheimili starfandi allt árið, sumarhótel og sumargistiheimili. í þessum flokki eru öll hótel og gistiheimili sem eru með sérstaka gestamóttöku og bjóða upp á lágmarks hótelþjónustu, þ.e. dagleg þrif á herbergjum og salernum. Auk þess eru í þessum flokki gistiheimili þar sem gistirými er 16 rúm eða fleiri og/eða 8 herbergi eða fleiri. Þessi viðmiðun er samkvæmt 26. gr. reglugerðar nr. 288/1987 um veitinga- og gististaði. Þessi flokkur gistiþjónustu tekur til mest allrar gistiþjónustu í landinu. Tveir þriðju hlutar gistinátta sem gistináttatalning Hagstofunnar nær til eru á gististöðum í þessum flokki. Arið 1997 var fyrst byrjað að flokka þá gististaði sérstaklega sem uppfylla skilyrði um aðbúnað og þjónustu til þess að geta kallast hótel. Á hóteli er gestamóttaka opin allan sólarhringinn og morgunverður framreiddur. Fullbúin snyrting skal vera á a.m.k. 75% herbergja. Annar flokkur gististaða er orlofshúsabyggðir. Þá er átt við sumarhúsa- eða smáhýsahverfi með a.m.k. þremur húsum. Umfang orlofshúsagistingar er mun umfangsmeira en heimagistingar í þeim tilvikum þegar þessar tvær tegundir gistingar eru reknar samhliða. Einungis er átt við sumarhús sem leigð eru út í hagnaðarskyni, ekki t.d. sumarhús stéttar- og starfsmannafélaga. Hús innan orlofshúsabyggða sem eru leigð út til stéttar- og starfsmannafélaga eru ekki heldur meðtalin. Þriðji flokkur gististaða er heimagististaðir. Fram til ársins 1995 var hluti þessa flokks kallaður bœndagististaðir en var þá skipt í annars vegar hótel eða gistiheimili og hins vegar heimagististaði. Fyrrum bændagististaðir, sem voru árið 1995 með gistirými við áðumefnd viðmiðunarmörk eða stærra, flokkast nú sem hótel eða gistiheimili, hinir minni sem heimagististaðir. Til heimagististaða telst öll gisting á einkaheimilum hvort sem er í kaupstöðum eða á sveitabýlum. Bændur eru ósjaldan með eitt til tvö sumarhús að auki og þar sem erfitt hefur reynst að fá þessa gistingu nákvæmlega sundurliðaða frá hinni hefðbundnu heimagistingu er sú gisting talin með heimagistingunni. Leigi bændur sumarhús sín út til stéttar- eða starfsmannafélaga er sú gisting ekki meðtalin hér. Fjórði flokkur gististaða er farfugiaheimili. Farfugla- heimili bjóða upp á gistingu í rúmum með sæng og kodda en gestir þurfa að hafa með sér sængurföt eða leigja þau á staðnum. Gestir geta einnig notað eigin svefnpoka. Öll farfuglaheimili eru í Bandalagi íslenskra farfugla sem á aðild að Alþjóðasamtökum farfugla (IYHF). Fimmti flokkur gististaða er svefnpokagististaðir. Þeir geta verið sumarhótel, félagsheimili og skólar sem selja gistingu í svefnpokum á gólfdýnum í stórum vistarverum. Ýmis gistiheimili bjóða upp á svefnpokagistingu í rúmum en sú gisting telst með gistingu í uppbúnum rúmum gistiheimila- nna. Sjötti flokkur gististaða er tjaldsvœði og skálar. Til hans teljast öll tjaldsvæði og gistiskálar þar sem er varsla og/eða gjaldtaka. Fram til ársins 1998 voru skálar og tjaldsvæði á

x

Gistiskýrslur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Gistiskýrslur
https://timarit.is/publication/1383

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.