Gistiskýrslur - 01.08.2000, Page 20

Gistiskýrslur - 01.08.2000, Page 20
18 Gistiskýrslur 1999 Mynd 8. Gistinætur á farfuglaheimilum eftir landsvæðum og ríkisfangi gesta 1999 Figure 8. Overnight stays in youth hostels by region and citizenship of guests 1999 25.000 20.000 15.000 10.000 5.000 0 Höfuðborgarsvæði Suðumes og Vestfirðir og Norðurland eystra Vesturland Norðurland vestra Austurland Tjaldsvœði og skálar. Til þessa flokks teljast öll skipulögð tjaldsvæði og gistiskálar í óbyggðum, þar sem er varsla og krafist er greiðslu fyrir gistingu. Fram til ársins 1995 voru gistinætur í skálum í óbyggðum taldar með tjaldsvæðum en frá og með 1995 eru tölumar sundurliðaðarfyrirþessartværtegundirgistingar. Árið 1998 var sú breyting gerð að hætt var að skilgreina miðhálendið sem sérstakt landsvæði. Tjaldsvæði og skálar sem áður tilheyrðu landsvæðinu miðhálendi eru nú flokkaðir eins og aðrir gististaðir niður á hin hefðbundnu landsvæði. Þessi breyting er til komin m.a. vegna þess að skálar og tjaldsvæði í óbyggðum era víðar en á miðhálendinu. Nú er hins vegar til undirflokkur sem kallast tjaldsvæði og skálar í óbyggðum. Tjaldsvæði voru 151 talsins árið 1999, eins og sést á yfirliti 13, og fjölgaði þeim um 8 frá fyrra ári. Þar af bættust við 5 á Vestfjörðum, 1 á Vesturlandi og 2 á Suðurlandi. Skálar í óbyggðum voru 30 árið 1999 einum fleiri en árið áður, þar af 16, eða rúmlega helmingur, á Suðurlandi. Gistinætur á tjaldsvæðum á landinu voru um 290 þúsund árið 1999 og fjölgaði þeim um rúm 36 þúsund (14%) frá fyrra ári, eftir að hafa fækkað stöðugt frá árinu 1996. Gisti- nóttunum fækkaði á höfuðborgarsvæðinu, um 3%, og á Suðurnesjum (4%) á milli áranna 1998 og 1999 en þeim fjölgaði á öðrum landsvæðum, hlutfallslega mest á Austur- landi (25%). Gistinóttum útlendinga fjölgaði, hins vegar, aðeins um 2 þúsund á árinu 1999 eða um tæplega 2%. Eins og sést á yfirliti 14 hefur því hlutfall útlendinga af þeim sem gista á tjaldsvæðum minnkað á milli ára og er nú komið niður í 41,9% fyrir allt landið. Þetta er lægra hlutfall en verið hefur undanfarin ár. 13. yfirlit. Fjöldi tjaldsvæða og skála í óbyggðum eftir landsvæðum 1997-1999 Summary 13. Number ofcamping sites and lodges in wilderness by region 1997-1999 Tjaldsvæði Camping sites Skálar í óbyggðum Lodges in wildemess 1997 1998 1999 1997 1998 1999 Alls Total 146 143 151 25 29 30 Höfuðborgarsvæði Capital region 3 3 3 - - - Suðurnes Southwest 3 3 3 - - - Vesturland West 17 17 18 - _ _ Vestfirðir Westfjords 12 12 17 - 2 2 Norðurland vestra Northwest 17 15 15 2 2 3 Norðurland eystra Northeast 27 28 28 4 4 4 Austurland East 23 21 21 4 4 5 Suðurland South 44 44 46 15 17 16

x

Gistiskýrslur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Gistiskýrslur
https://timarit.is/publication/1383

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.