Gistiskýrslur - 01.08.2000, Side 22

Gistiskýrslur - 01.08.2000, Side 22
20 Gistiskýrslur 1999 í yfirliti 15 er gerð grein fyrir fjölda gistinátta í óbyggðum árin 1997-1999. Þar sem langflestir gististaðir í óbyggðum eru á Suðurlandi er það landsvæði tilgreint sérstaklega. Gistinætur í óbyggðum voru 81 þúsund árið 1999 og er fjöldi þeirra nánast óbreyttur ffá fyrra ári, en á milli áranna 1997 og 1998 hafði þeim fjölgað um nærri 8 þúsund. Gistinóttum útlendinga í óbyggðum fækkar hins vegar um rúmlega 2 þúsund (6%) og fækkaði gistinóttum þeirra bæði á tjaldsvæðum sem og í skálum. Hlutfall útlendinga af þeim sem gista í óbyggðum minnkaði því á milli ára, fór úr 49,1% í 46,1%. Heimagististaðir eru eins og nafnið gefur til kynna gististaðir á einkaheimilum. Til ársins 1994 að telja voru heimagististaðir til sveita flokkaðir sem bændagististaðir hvort sem þeir heyrðu undir Ferðaþjónustu bænda eða ekki. Eins og áður hefur komið fram voru stórir bændagististaðir færðir í flokk hótela og gistiheimila árið 1995 og þeir minni, sem eru inni á einkaheimilum, eru nú taldir með heima- gististöðum í kaupstöðum. Osjaldan eru einnig sumarhús á heimagististöðum. Arið 1996 var sú breyting gerð að ef sumarhúsin eða smáhýsin eru þrjú eða fleiri flokkast gisti- staðurinn sem orlofshúsabyggð en tengist sumarhúsin heima- gistingu og séu færri en þrjú á gististað er gistirými þeirra talið með heimagistingunni. Þetta er gert þar sem erfiðlega hefur gengið að fá sundurliðaðar skýrslur fyrir annars vegar sumarhús og hins vegar heimagistingu. Séu húsin leigð út til stéttar- eða starfsmannafélaga eru þau hvorki talin hér sem gistirými né heldur eru gistinætur taldar. Heimagististöðum fækkaði úr 152 árið 1997 í 136 árið 1998. Eitthvað var um að heimagististaðir hættu rekstri en þeim fækkaði aðallega vegna þess að gististaðir sem áður voru í flokki heimagististaða voru settir í flokk hótela og 16. yflrlit. Gistinætur á heimagististöðum eftir landsvæðum 1997-1999 Summary 16. Ovemight stays at private-home accommodation by region 1997-1999 Gistinætur alls, þús. Ovemight stays, thous. Þar af gistinætur útlendinga Thereof overnight stays offoreign visitors Fjöldi gistinátta, þús. Number ofovernight stays, thous. Hlutfall afheild, % Percent oftotal 1997 1998 1999 1997 1998 1999 1997 1998 1999 Alls Total 52,3 45,1 52,4 30,7 27,4 30,9 58,7 60,6 58,9 Höfuðborgarsvæði og Suðurnes Capital region and Southwest 4,4 3,2 3,5 4,3 2,8 3,2 96,8 85,9 89,7 Vesturland West 6,0 5,5 6,2 2,4 2,8 3,1 40,2 51,2 50,3 Vestfirðir Westfjords 6,6 7,5 7,9 1,2 2,5 2,6 17,7 32,6 32,3 Norðurland vestra Northwest 6,4 3,8 5,8 3,3 1,9 2,4 51,3 49,9 41,5 Norðurland eystra Northeast 10,9 9,6 12,0 7,5 7,2 8,6 69,3 74,4 71,8 Austurland East 4,6 7,0 7,3 2,6 3,8 3,9 55,1 54,3 52,8 Suðurland South 13,3 8,5 9,6 9,4 6,5 7,1 70,5 76,3 74,2 Mynd 10. Gistinætur á heimagististöðum eftir landsvæðum og ríkisfangi gesta 1999 Figure 10. Overnight stays in private-home accommodation by region and citizenship of guests 1999 16.000 ------------------------------------------------------------------------------- 12.000 8.000 n i i i i i Höfuðborgarsvæði Vesturland Vestfirðir Norðurland Norðurland Austurland Suðurland og Suðumes vestra eystra

x

Gistiskýrslur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Gistiskýrslur
https://timarit.is/publication/1383

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.