Útvegur - 01.08.2001, Side 30
28
Fiskiskipastóllinn
4. Fiskiskipastóllinn
4. The fishing fleet
Fiskiskipastóllinn samanstendur af opnum fiskibátum, vél-
skipum og togurum. I þessum kafla verður annars vegar
fj allað um fiskiskipastólinn í heild, þ.e. þær tegundir fiskiskipa
sem nefndar eru hér að ofan og hins vegar þilfarskipastólinn,
þ.e. vélskip og togara. Þetta er gert vegna þess að opnir fiski-
bátar eru mjög margir en einungis um 66% þeirra leggur upp
afla (sjá töflu 4.5 í töfluhluta). Þá veiða opnir fiskibátar ekki
nema tæp 2% af þeim heildarafla sem íslensk fiskiskip veiða
á Islandsmiðum meðan þilfarskipin veiða 98%.
Samkvæmt skipaskrá Siglingastofnunar voru fiskiskip
Islendinga samtals 1.993 í lok árs 2000. Þar af reyndust
þilfarsskip (þ.e. vélskip og togarar) vera 892. Þilfarsskipin
voru samtals tæp 175.700 brúttótonn og heildarafl aðalvéla
þeirra tæplega 439.000 kW. Meðalaldur skipanna var 19,4
ár. Opnir fiskibátar voru aftur á móti 1.101 talsins, þeir voru
rúmlega 5.000 brúttótonn, heildarafl aðalvéla þeirra var um
84.000 kW en meðalaldur var 18,3 ár.
Þess ber að geta að tölur um fiskiskipastólinn, sem birtast í
töfluhluta hér að aftan, eru unnar úr skipaskrá Siglinga-
stofnunar og miðast við skip sem voru skráð þar um áramótin
2000-2001 (þó ekki töflur 4.4. og 4.5). Þar eru skráð öll
fiskiskip án tillits til veiðiréttinda þeirra. Því eru í þessum tölum
nokkur skip sem ekki voru með veiðiheimildir í íslenskri
lögsögu, og einnig skip sem hafa veiðiheimildir sem em ekki
nýttar á viðkomandi skipi heldur fluttar á önnur skip.
Flokkurinn opnir fiskibátar, sem notaður er í þessum kafla,
jafngildir ekki flokki sem nefndur er „smábátar" í fiskveiði-
stjómunarkerfinu.
4.1 Fjöldi skipa
4.1 Number of vessels
Á árinu 2000 fjölgaði í fiskiskipastólnum í heild um 17 skip
frá fyrra ári. Opnum fiskibátum fækkaði um 33 á milli ára,
þilfarsskipum fjölgaði aftur á móti um 50 skip, úr 842 skipum
í árslok 1999 í 892 í árslok 2000. Árið 1998 fjölgaði í
þilfarsskipaflotanum um 5 skip, en þeim hafði fækkað um
hér um bil 200 skip á tímabilinu 1990-1997. Sú fækkun hafði
jafnað út, reyndar gott betur en það, þá fjölgun sem varð í
flotanum á árunum 1987-1990 (178 skip). Fjölgunin í
þilfarsskipaflotanum nú er, líkt og í fyrra, til komin vegna
fj ölgunar vélskipa. Þeim fj ölgaði um 57 skip á meðan togumm
fækkaði um 7.
Mynd 4.1 Þilfarsskipaflotinn 1991-2000
Figure 4.1 Decked vessels and trawlers 1991-2000
1.200
| Togarar
Trawlers
Vélskip
Decked
vessels
1991 1992 1993 1994 1995 1996 1997 1998 1999 2000