Útvegur - 01.08.2001, Blaðsíða 218
216
Afli erlendra ríkja við ísland og heimsafli
9. Afli erlendra ríkja við ísland og heimsafli
9. Fishing byforeign countries in Icelandic waters and the world catch
9.1 Afli erlendra ríkja við ísland á svæði Va
9.1 Fishing byforeign countries in Icelandic waters inthe
Va region
Veiðar skipa erlendra ríkja við Island á svæði Va (sjá kort af
svæðinu íkafla 1) á tímabilinu 1985-1999 hafa verið talsvert
breytilegar, fóru niður í 9 þús. tonn árið 1993 þegar þær voru
semminnstarogmestuppí99þús.tonnárið 1997 einsogsést
á mynd 9.1.
A árunum 1991-1996 drógust þessar veiðar skipa erlendra
ríkja á svæði Va saman frá því sem verið hafði á síðari hluta
níunda áratugarins. Undantekning frá þessu var árið 1992.
Arið 1997 var hins vegar metár og þó að veiðar skipa erlendra
ríkja á svæðinu hafi dregist töluvert saman árið 1998, eða um
35% (úr 99 þús. tonnum í 65 þús. tonn) voru þær svipaðar
það ár og á síðari hluta níunda áratugarins. Arið 1999 eykst
svo veiðin aftur um rúm 24% eða upp í 85 þús. tonn.
Á veiðisvæði V a veiddu erlend skip um 5,9% heildaraflans
árið 1999, samanborið við 4,6% 1998, 5,2% 1997 og 1-4%
árin 1992-1996. Af þessu sést að íslensk fiskiskip veiða í
kringum 95% af þeim afia sem dreginn er úr sjó við Island.
Árin 1998 og 1999 hafa færeysk skip veitt mestan afla af
erlendum skipum við Island, árin þar á undan voru það
annars vegar Færeyingar og hins vegar Norðmenn sem
skiptust á um að draga mestan afla erlendra skipa í íslenskri
lögsögu. Uppistaðan í afla þessara skipa hefur verið loðna í
gegnum árin en árið 1998 fór svo talsvert að bera á veiði af
kolmunna. Á árunum 1994—1997 hefur loðna verið frá 82%
(1995) upp í 97% (1997) af heildarafla erlendra skipa við
ísland. Frá árinu 1998 hefur loðnuveiðin hlutfallslega dalað
á kostnað kolmunnaveiði sem var um 42% af heildaraflanum
árið 1998 og rúm 13 % árið 1999.
Mynd 9.1 Veiðar erlendra ríkja við ísland á svæði Va 1985-1999
Figure 9.1 Fishing by foreign countries in Icelandic waters in the Va region 1985-1999
1985 1986 1987 1988 1989 1990 1991 1992 1993 1994 1995 1996 1997 1998 1999
9.2 Heimsafli
9.2 World catch
Heimsaflinn eykst um tæpar 6 milljón tonna milli áranna
1998 og 1999 og nálgast þar með veiði áranna 1995 og 1996
eftir töluverða niðursveiflu árið 1998. Heimsaflinn hefur
verið nokkuð stöðugur frá árinu 1994 eða rétt rúmlega 90
milljón tonn ef undan er skilið árið 1998 en niðursveiflan það
ár skýrist af hruni í veiði á perúansjósu. Veiði á perúansjósu
fórúr7,6 milljónumtonnaárið 1997 niðurí 1,7 milljón 1998,
árið 1999 veiddust svo rúmar 8,7 milljónir tonna af perú-
ansjósu sem gerir hana að mest veiddu fiskitegund í heimi.
Þegar skoðuð er veiði á einstökum tegundum þá sést að
verulega hefur dregið úr veiði á Chilebrynstirtlu undanfarin
ár, en aftur á móti hefur veiði á kolmunna farið stigvaxandi
frá árinu 1994 eða úr tæpum 500 þús. tonnum 1994 í rúm 1,3
milljón tonn árið 1999. Að öðru leyti eru ekki miklar sveiflur
í heimsaflanum á milli ára. Þegar tekið er mið af þeim
tegundum sem við Islendingar veiðum mest af þá er sfld í
þriðja sæti yfír mest veiddu tegundirnar árið 1999, kolmunni
í níunda sæti, þorskur í ellefta sæti og loðna í því þrettánda
eins og sjá má í töflu 9.10.