Víkurfréttir - 22.08.2019, Síða 1
NETTÓ Á NETINU
- ÓDÝRT OG ÞÆGILEGT -
Sparaðu tíma og gerðu matarinnkaupin á netinu.
Þú velur um að fá heimsent eða sækja í Nettó.
Innflutningur á flugvélaeldsneyti um Helguvíkurhöfn hefur hrunið á
þessu ári. Það sem af er ári hefur 37% minna magn eldsneytis farið um
olíuhöfnina í Helguvík miðað við sama tíma í fyrra.
Allir eldsneytisflutningar fyrir Kefla-
víkurflugvöll fara um olíuhöfnina
í Helguvík. Á mánudagskvöld kom
þangað eldsneytisflutningaskipið Star
Osprey með um 40.000 tonn af elds-
neyti sem skipað er upp í höfninni og
geymt á tönkum í Helguvík.
Halldór Karl Hermannsson, hafnar-
stjóri Reykjaneshafnar, segir að skipa-
komum í Helguvík hafi fækkað mikið
í ár. Það sem af er ári hafa 19 fraktskip
komið til hafnar í Helguvík en í fyrra
voru þau 23 á sama tíma. Þetta eru
mun færri skip en árið 2017, því þá
höfðu 56 fraktskip komið til hafnar
í Helguvík á fyrstu sjö mánuðum
ársins. Þá var starfsemi kísilversins
í Helguvík í fullum gangi. Þegar talað
er um fraktskip þá er átt við öll flutn-
ingaskip.
Með minni innflutningi á eldsneyti
hafa tekjur hafnarinnar einnig dregist
saman. Þannig hafa tekjur vegna inn-
flutnings á eldsneyti dregist saman
um 30% það sem af er ári.
Hafnsögubátar aðstoða Star Osprey til hafnar í Helguvík á mánudagskvöld.
Skipið er með um 40.000 tonn af flugvélaeldsneyti. VF-mynd: Hilmar Bragi
VF-mynd: Páll Ketilsson
Hrun í innflutningi á flugvéla-
eldsneyti um Helguvíkurhöfn
Tölvuleikjanemar með menntamálaráðherra á Ásbrú
Makrílævintýrið heldur áfram
Alls hafa 1.200 tonn af makríl komið á land í Keflavíkurhöfn það sem af er
yfirstandandi makrílvertíð. Vertíðin hófst 13. júlí eða um hálfum mánuði
fyrr en í fyrra. Aflinn er meiri og makríllinn stærri og feitari.
Nú eru á milli 30 og 40 bátar sem
landa makríl í Keflavíkurhöfn. Bát-
arnir þurfa heldur ekki að fara langt
eftir aflanum. Síðustu daga hafa þeir
verið bundnir við bryggjuendann
í Keflavíkurhöfn þar sem þeir hafa
mokað upp makríl í tonnavís. Annars
hafa veiðisvæðin verið rétt við höfn-
ina, undir Berginu og í Helguvík. Verð
fyrir markílinn er einnig gott en um
100 krónur eru að fást fyrir kílóið.
Makrílbátar að veiðum en samt bundnir við bryggju. Ljósmynd: Einar Guðberg
Alls er talið að um 570 þúsund erlendir ferðamenn hafi heimsótt Reykja-
nesbæ árið 2018 þar sem rúmur helmingur þeirra kom á tímabilinu maí
til september. Flestir heimsóttu staðinn vegna nálægðar hans við flug-
völlinn og Bláa lónið en heimsóknin var einnig gjarnan hluti af lengri ferð
um landið. Flestir komu frá Bandaríkjunum en dreifing búsetulanda var
nokkuð jöfn meðal næstu sjö landa. Meðan á dvöl stóð var vinsælast að
fara í náttúruböð, heimsækja söfn, fara í hvalaskoðun og smakka mat úr
héraði. Þetta kemur fram í skýrslu með niðurstöðum ferðavenjukönnunar
2018 sem ferðamálastofa tók saman.
Ferðamenn voru almennt ánægð-
ir með dvölina og á skalanum 1-5
mældist ánægjustigið 4,3. Um 52%
ferðamanna töldust líklegir til að
mæla með Reykjanesbæ sem áfanga-
stað og meðmælaskor staðarins (Net
Promoter Score - NPS) mældist +42.
Það sem helst hvatti ferðamenn til
meðmæla var fegurð staðarins þó
staðsetning hans og viðmót heima-
manna hafi einnig haft talsverð
áhrif. Af þeim sem voru hlutlausir
eða töldust ólíklegir til að mæla með
staðnum sögðu flestir að of lítið væri
um að vera og að auka þyrfti framboð
afþreyingar og þjónustu á staðnum.
Samgöngur og verð á ferðaþjónustu
þyrftu auk þess að batna til að þeir
yrðu líklegri til meðmæla. Meðalút-
gjöld ferðamanna á sólarhring mæld-
ust 18.400 kr. í Reykjanesbæ. Út-
gjöldin voru hæst í flokki veitinga og
matvöru. Í langflestum tilvika (78%)
var megintilgangur ferðarinnar frí
og ferðafélagarnir fjölskylda og vinir.
Flestir ferðamanna (36%) tengdu
meginástæðu heimsóknar við flug
eða flugvöll. Af þeim sögðu flestir
nálægðina við Keflavíkurflugvöll hafa
ráðið vali á áfangastað og allnokkrir
voru í stopover á lengra ferðalagi.
Um 16% sögðu heimsóknina vera
hluta af heildarferð um landið og
7% nefndu sérstaklega Bláa lónið.
– Fegurð og gott viðmót heimamanna. Tæplega 600 þúsund sóttu bæinn heim árið 2018
Ferðamenn ánægðir í Reykjanesbæ
Um eitthundrað nemendur sóttu um í nám í tölvuleikjagerð í nýjum Menntaskóla Keilis á Ásbrú og aðeins tæplega
helmingur þeirra komst að. Fyrsta skólasetning nýrrar námsbrautar Menntaskólans á Ásbrú fór fram á mánudag
að viðstaddri Lilju Alfreðsdóttur mennta- og menningarmálaráðherra. Þar komu saman nemendur í fyrsta árgangi
tölvuleikjagerðarbrautar skólans en nýbreytni er að boðið sé upp á slíkt nám á framhaldsskólastigi hér á landi. Alls
44 nemendur hefja námið nú og er kennsla hafin. Hér er Lilja með nokkrum kátum tölvuleikjanemum. Sjá bls. 2.
„Fyrir okkur er krían
tákn sumarsins“
- Sjá miðopnu Víkurfrétta og í Suðurnesjamagasíni á fimmtudagskvöld
fimmtudagur 22. ágúst 2019 // 31. tbl. // 40. árg.
S T Æ R S T A F R É T T A - O G A U G L Ý S I N G A B L A Ð I Ð Á S U Ð U R N E S J U M ■ A Ð A L S Í M A N Ú M E R 4 2 1 0 0 0 0 ■ A U G L Ý S I N G A S Í M I N N 4 2 1 0 0 0 1 ■ F R É T T A S Í M I N N 4 2 1 0 0 0 2