Víkurfréttir


Víkurfréttir - 22.08.2019, Blaðsíða 6

Víkurfréttir - 22.08.2019, Blaðsíða 6
Skóli í hraðri uppbyggingu Stapaskóli er nýr skóli við Dalsbraut í Innri-Njarðvík sem er þessa dagana í hraðri uppbyggingu. Stefnt er að því að skólinn verði vígður haustið 2020, gangi áætlanir eftir, en kennsla nemenda í 1.–4. bekk hófst þó fyrir nokkrum mánuðum síðan. Áætlað er að skólinn verði allt í senn leik- og grunnskóli, frístunda- og tónlistar- skóli, bókasafn, menningar- og félags- miðstöð hverfsins. Þá er einnig stefnt að því að íþróttahús og sundlaug verði byggð við skólann. Gróa Axelsdóttir er nýr skólastjóri Stapaskóla en starfsemin er nú starf- rækt í bráðabirgðahúsnæði sem áður var nýtt sem viðbótarbygging fyrir nemendur Akurskóla, þar sem Gróa starfaði áður sem aðstoðarskóla- stjóri. Áætlaður heildarkostnaður við uppbyggingu skólans, sem skiptist niður í þrjá áfanga, er rúmir fimm miljarðar króna. Fjöldi nemenda við fullsetinn skóla verður um 500 nemendur á grunnskólaaldri og 120 á leikskólaaldri, þá er gert ráð fyrir um 100 starfsmönnum. Á næsta skólaári verða um 130 nemendur í skólanum, sem skiptast niður í 1.–5. bekk, og um tuttugu starfsmenn. Vill gera skólastarfið skemmtilegra „Þetta er annað skólaárið sem við erum hér með útibú en ég byrjaði 1. apríl sem skólastjóri og síðan þá höfum við verið Stapaskóli. Áður var þetta Akurskóli við Dalsbraut og þeir nemendur sem voru hér þá eru nú orðnir nemendur Stapaskóla. Þetta gengur mjög vel og hér er rosalega notalegt. Við erum með hundrað nemendur og sautján starfsmenn og það fer vel um alla. Hér er bjart og ágætlega hátt til lofts. Þetta snýst þó rosalega mikið um það að vera lausnamiðaður og að velja sér við- horf. Matsalurinn okkar er einnig nýttur undir íþróttir, dans, tónlist og frístund eins og staðan er núna. Í haust bætist svo við önnur eining við skólann en hún verður reyndar ekki sambyggð,“ segir Gróa sem hefur starfað við kennslu síðan árið 2003. „Ég byrjaði sem kennari í Sandgerði og varð svo deildarstjóri þar. Ég fór svo í Akurskóla þar sem ég starfaði sem aðstoðarskólastjóri og tók svo við skólastjórn Stapaskóla eftir það.“ Aðspurð hvað hafi orðið til þess að hún sótti um skólastjórastöðuna seg- ist hún hafa viljað taka við stjórninni. „Mér finnst þetta rosalega spennandi og ég hef ákveðna sýn á þetta. Mig langar að breyta og gera skólastarfið skemmtilegra. Ef það er gaman þá lærum við og þetta er tækifæri til þess að skapa og gera eitthvað nýtt. Ég hef alltaf ætlað mér að verða stjórinn. Það er mjög gaman og ég tala nú ekki um í svona verkefni, þar sem maður fær að byggja upp frá grunni.“ Námsumhverfið mætir þörfum nemenda Skólastjórastarfinu sjálfu lýsir Gróa sem ákveðnum rekstri. Skólastjórinn sé allt í senn; sálfræðingur, mann- auðsstjóri, fjármálastjóri og fleira og mikilvægt sé að vera tilbúin að hlaupa í allt. „Ef það vantar manneskju í mat- salinn þá fer ég í matsalinn. Þannig á þetta að vera. Mannauðsmálin skipta rosalega miklu máli, að reyna að gera hluti þannig að allir séu ánægðir og koma bros á vör. Kennarar og allir aðrir starfsmenn skipta lykilmáli í skólastarfi,“ segir hún og bætir því við að hún sé mjög heppin með starfs- fólkið í Stapaskóla. „Þetta er ungt fólk sem vill stíga út fyrir kassann og prófa annað en að vera föst í skólabókunum. Við erum alltaf að stíga meira og meira út fyrir og ég er með mjög góðan hóp til að hefja þetta skólastarf. Ég get algjör- lega mótað sýnina með þeim því þær eru á sama stað. Þær vilja breyta og gera þetta öðruvísi. Við erum að velja inn húsgögnin innan skólans og mér finnst mikilvægt að námsum- hverfið sé alls konar, til dæmis borð sem nemendur geta staðið við og átt samræður, grjónapúðar öðrum megin og borð hinum megin, þannig við reynum að mæta þörfum allra.“ Áfram í samstarfi við Akurskóla Komandi skólaár verður hefðbundið að sögn Gróu enda er starfsemin á byrjunarreiti og margt sem á eftir að koma í ljós á næstu misserum. „Við kíkjum út um gluggann og sjáum flottu bygginguna okkar rísa. Á meðan förum við í markmiðasetn- ingu og það er rosalega mikil vinna sem fer í gang strax í haust. Að öðru leyti verða viðburðir hefðbundnir; skólasetning og þemadagar, jólahátíð og svo framvegis. Við verðum með sama dagatal og Akurskóli, sem við köllum systurskóla okkar, þar sem við erum í sama hverfi og krakkar úr sömu fjölskyldunni stunda nám við báða skólana. Það er ekki gott ef við ætlum að vera með sitthvort vetrarfríið og slíkt. Við ætlum einnig að halda áfram að innleiða agastefnu sem heitir „Uppeldi til ábyrgðar“ í Stapaskóla en það er líka í Akurskóla. Við höldum því samstarfi áfram og verðum áfram í miklu samstarfi þó við séum tvær aðskildar stofnanir.“ Sérfræðiþjónustu þarfnast innan skólans Gróa segir það gríðarlega mikilvægt að hver og einn nemandi nái árangri út frá sínum eigin markmiðum. Það sé minna áhyggjuefni að allir fái A+ í einkunn á samræmdu prófunum eða PISA. „Mér finnst lykilatriði að krakkarnir nái árangri. Ég stefni að því að búa til skóla sem nær að þjónusta alla. Hvernig það tekst svo veit ég ekki en það er mikilvægt að við sköpum gott umhverfi fyrir börnin í stað þess að troða þeim öllum inn í einhvern fyrirfram ákveðinn pakka. Það er fullt af börnum sem sitja aldrei við matarborðið heima, borða aldrei saman og eiga ekki þetta samtal um það hvernig það hafi verið í skólanum, eða eiga einhvern að sem kíkir inn í herbergi til að athuga hvernig þeim líði. Þar af leiðandi skiptir starfsfólk skólans lykilmáli. Öll börn eiga heima í sínum skólum og oft vantar meiri sérfræðiþjónustu inn í skólana til þess að styðja við bakið á þeim nem- endum sem eiga erfitt. Auðvitað væri frábært ef við gætum þjónustað alla þannig en þá þurfum við líka meira fjármagn og að fá sérfræðingana inn,“ bætir hún við. Sætabrauð og kulnun í starfi Mikilvægt er að starfsfólk skólans sé ánægt og sátt í vinnunni og fái þann stuðning sem þarf til að sögn Gróu. Það sé lykilatriði að hafa sveigjanleika í starfinu til að sporna gegn kulnun í starfi sem hefur verið áberandi um- ræðuefni innan kennarastéttarinnar. „Bara það að vera með sætabrauð á kaffistofunni eða að leyfa öllum að fara heim klukkan tvö annað slagið skiptir rosalega miklu máli. Sveigjan- leikinn skiptir miklu.“ Alltaf ætlað sér að verða stjórinn Sólborg Guðbrandsdóttir vf@vf.is VIÐTAL Nú eru skólarnir að hefja starf á ný eftir sumarfrí. Skólasetningar í grunnskólum bæjarins fara fram þessa dagana og hafa nemendur við Fjölbrautaskóla Suðurnesja nú þegar hafið skólaárið. Mikil uppbygging hefur verið í skólum í Reykjanesbæ á síðustu árum vegna þeirrar miklu íbúafjölgunar sem hefur verið í bænum en þar á meðal er Stapaskóli sem nú rís í Innri-Njarðvík. Víkurfréttir kíktu í heim- sókn fyrir sumarfrí og ræddu við nýjan skólastjóra um komandi verkefni. Mig langar að breyta og gera skólastarfið skemmti- legra. Ef það er gaman þá lærum við og þetta er tæki- færi til þess að skapa og gera eitthvað nýtt ... 6 MANNLÍF Á SUÐURNESJUM f immtudagur 22. ágúst 2019 // 31. tbl. // 40. árg.

x

Víkurfréttir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.