Víkurfréttir


Víkurfréttir - 22.08.2019, Blaðsíða 13

Víkurfréttir - 22.08.2019, Blaðsíða 13
Hvatning vikunnar: Nú fer haustið að ganga í garð, nýtt skólaár að byrja og föst rútína verður hjá mörgum fjöl- skyldum. Margir leita að hreyfingu sem hentar fjölskyldunni. Að vera góð dóttir, mamma, amma og vinkona þá get ég ekki sett í orð hvað jógaiðkun hefur hjálpað mér, hreyfing sem er allsherjar líkamsrækt. Við þjálfum líkamann og einnig hugann. Allir geta verið með, bæði frískir og sjúklingar. Að kyrra hugann er yndisleg til- finning. Að staldra við hefur róandi áhrif á allan líkamann. Að stjórna öndun er góð slökun. Að mæta í slökunarjóga eða Yoga Nidra er á við margra tíma svefn. Ef við hugsum þetta sem mynd- líkingu þá er sagt við okkur við flugtak að setja grímuna fyrst á okkur þannig að við getum hjálpað öðrum. Sama má segja um alla líkamsrækt, setjum okkur í fyrsta sæti og þá verðum við hæfari til að sinna öðrum. Við Suðurnesjabúar erum heppin hvað það er mikið í boði fyrir okkur. Bókasöfn, íþróttir fyrir flesta aldurshópa, söfn, útisvæði fyrir börn og ferfætlinga og kaffi- hús. Vil ég hvetja sem flesta til að lifa lífinu til fulls því það er svo gaman. Namaste, María Magdalena Birgisdóttir Olsen. 500 RYT-JKFÍ jógakennari. LEIKLISTARNÁMSKEIÐ FYRIR HAUSTVERK LEIKFÉLAGS KEFLAVÍKUR Leikfélag Keflavíkur setur upp bráðskemmtilega og sprenghlægilega farsann; Fló á skinni. Leikfélag Keflavíkur hefur ekki svikið neinn síðustu misseri og sett upp hverja sýninguna á fætur annarri sem hefur slegið öll fyrri aðsóknarmet. Því er ekki við öðru að að búast en að næsta verk verði engin undantekning en ákveðið hefur verið að setja upp skemmtilega farsann Fló á skinni sem síðast var settur upp í Borgarleikhúsinu árið 2008. Leikstjóri er enginn annar en Karl Ágúst Úlfsson sem flestir þekkja úr Spaugstofunni. Leiklistarnámskeið, eða svokallaðar leikprufur fyrir þá sem hafa áhuga á að vera með í sýningunni, verður haldið dagana 26. og 27. ágúst frá kl. 19:00 til 23:00 í Frumleikhúsinu, Vesturbraut 17. Samlestur verður svo haldin í kjölfar námskeiðsins. Leiðbeinandi námskeiðsins er Ágústa Skúladóttir, leikstjóri og leiklistarkennari, en hún hefur afgripamikla reynslu af vinnu með áhuga- og atvinnufólki og hefur hlotið fjölda verðlauna og viðurkenninga fyrir störf sín í leikhúsi. Námskeiðinu er ætlað að reyna á þátttakendur, þjálfa þá í leik á sviði, gefa þeim tækifæri til að sýna hvað í þeim býr og kynnast en fyrst og fremst á það að vera skemmtilegt og uppbyggilegt fyrir alla. Allir áhugasamir, 18 ára og eldri (fædd 2001), eru hvattir til þess að mæta, sama hvort þið viljið leika, farða, smíða, sauma eða gera eitthvað annað. Þátttakendur eru beðnir um að koma í fötum sem gott er að hreyfa sig í og hafa með sér þægilega skó. á timarit.is ÖLL BLÖÐIN FRÁ 1980 OG TIL DAGSINS Í DAG WWW.fiskt.is Hagnýtt nám Fisktæknir Spennandi Fjölbreytt Nám á Suðurnesjum boðið er upp á skólaakstur Spennandi blanda bóklegs og verklegs náms Wyjątkowa okazja do nauki technologii przerobu ryby i ry- bołówstwa (Fisktækni) w Twojej okolicy są nieograniczone! Podstawy technologii przerobu ryby to dwuletnia szkoła z możliwością zdobycia różnorodnych kierunków do zawodów. Szkoła jest szczególnie interesująca dla tych którzy mają za sobą ocenę umiejętności (raufærnismat) jak również osoby które mają zaliczone/ocenione przedmioty z wcześniejszej edukacji. Po zakończeniu szkoły otwierają się różnorodne możliwoś- ci do dalszej nauki; np. Technologia narzędzi połowowych (veiðarfæratækni-netagerð), zarządzanie jakości (gæðastjör- nun), akwakultura (fiskeldi) oraz Marel-technologia przetwar- zania. Dla chętnych mamy jeszcze wolne miejsca w zbliżającym się semestrze jesiennym 2019 tu u nas na miejscu jak również na kształcenie na odległość.. Zapoznajcie się z możliwościami na stronie internetowej www.fiskt.is Zapisy na Menntagátt www.menntagatt.is na naszej stronie internetowej jak również u naszych pracowników Fisktækniskóla Íslands í síma 412-5966 Einstakt tækifæri til náms í Fisktækni í heimabyggð ! tækifærin eru endalaus ! Grunnnám í Fisktækni er tveggja ára nám með fjöl- breytta starfsmöguleika. Námið er sérstaklega áhugavert fyrir þá sem lokið hafa raunfærnimati, þar sem þeir eru þegar búnir að fá metna áfanga af náminu. Að námi loknu opnast leið til frekara framhaldsnáms svo sem veiðarfæratækni (netagerð) gæðastjórnun, fiskeldi og Marel vinnslutækni. Getum bætt við nemendum í fjar-og staðnám á haustönn 2019 Kynnið ykkur námið á heimsíðunni www.fiskt.is Innritun fer fram á Menntagátt á www.menn- tagatt.is inn á heimasíðu okkar eða hjá starfsmön- num Fisktækniskóla Íslands í síma 412-5966 Leikfélag Keflavíkur sló í gegn á síðasta leikári með revíu. 13MANNLÍF Á SUÐURNESJUM f immtudagur 22. ágúst 2019 // 31. tbl. // 40. árg.

x

Víkurfréttir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.