Víkurfréttir


Víkurfréttir - 22.08.2019, Blaðsíða 15

Víkurfréttir - 22.08.2019, Blaðsíða 15
Stefán bjargaði stigi í Grindavík Stefán Alexander Ljubicic, nýliðinn í PepsiMax-deildarliði Grindavíkur, tryggði liðinu annað stigið í viður- eigninni við HK sl. sunnudag. Stefán jafnaði leikinn þegar skammt var til leiksloka í Grindavík. Stefán kom til Grindavíkurliðsins fyrir skömmu en hann er uppalinn í Keflavík. Þetta var hans fyrsta mark með liðinu. Grindvíkingar eru engu að síður í fallbaráttu, í næstneðsta sæti með 18 stig en ótrúlegt en satt þá er liðið í 6. sæti, Valur með 6 stigum meira þannig að það getur margt gerst á lokasprettinum. Fimm umferðir eru enn eftir í deildinni. Keflavíkurstúlkur í botnbaráttu Keflavíkurstúlkur í PepsiMax-deild- inni í knattspyrnu töpuðu 3:1 fyrir norðan gegn Þór/KA í síðustu umferð. Sveindís Jane Jónsdóttir kom Keflavík yfir og þannig var staðan í hálfleik. Selfyssingar komu hins vegar sterkar inn í síðari hálfleik og skoruðu þrjú mörk. Keflavík er í næst neðsta sæti með 10 stig en næstu tvö lið eru með 12 og 13 stig. „Staðan er ekki góð. Það var dýr leikur hjá okkur á móti Selfossi um daginn, við erum nánast að missa hálft byrjunarliðið. Fjórar sem voru í byrjunarliðinu í dag spila ekki næsta leik, ein að fara erlendis í nám og þrjár sem taka út leikbann. Það verður á brattann að sækja, en við höfum þekkt það svart áður og erum tilbúnar í stríð og baráttu það sem eftir er,“ sagði Gunnar Jónsson við fotbolta. net eftir leikinn. Grindavíkurstúlkur eru í botnbaráttu í Inkasso-deildinni en þær gerðu 1:1 jafntefli í síðustu umferð gegn Fjölni á heimavelli. Þær eru í fjórða neðsta sæti deildarinnar, aðeins fyrir ofan fallsæti. Arnór Ingvi Traustason var heldur betur með sterka innkomu í lið Malmö í sænsku úrvalsdeildinni um helgina en hann lék sinn fyrsta leik eftir meiðsli gegn Falkenberg á heimavelli. Arnór gerði sér lítið fyrir og skoraði tvö mörk og lagði upp eitt í 5:0 stórsigri liðsins. Arnór Ingvi á skotskónum Arnór lék allan leikinn en hann meiddist fyrir um mánuði síðan. Framundan eru landsleikir gegn Moldavíu og Albaníu og Suðurnesja- maðurinn ætti því að vera klár í þau verkefni. „Það var gaman að koma sterkur til baka. Ég var mjög ákveðinn í því og þetta gekk vel,“ sagði Arnór Ingvi í spjalli við VF en hann meiddist fyrir um mánuði síðan. Hann sagðist hafa lagt mikið á sig í endurhæfingunni til að komast aftur á völlinn sem fyrst en liðband í hné skaddaðist. Arnór segir að Malmö sé með mjög gott lið og stefnan sé sett á að vinna deildina en liðið er í 1.–2. sæti þegar þetta er skrifað. „Já, við erum ákveðnir í því. Hópurinn er sterkur og við stefnum hátt og vonumst einnig til að komast í riðlakeppni Meistaradeildarinnar. Við leikum gegn ísraelsku liði í tvígang á næstu vikum og ætlum okkur að klára það dæmi og komast í riðlakeppn- ina aftur,“ en Arnór Ingvi lék með Nú stendur yfir happdrætti á góðgerðar vefsíðunni https://charityshirts.is/ og í vinning er félagsbúningur Arnórs Ingva Traustasonar, atvinnumanns hjá Malmö í Svíþjóð. Allir sem greiða 1.000 kr. inn á síðuna https://chari- tyshirts.is/ fara í pott sem dregið er úr og fær þá við- komandi undirritaða treyju Arnórs sem hann var í á móti enska stórliðinu Chelsea í Meistaradeild Evrópu fyrr á þessu ári. Þessi vefsíða hefur fengið fjölda ís- lenskra íþróttamanna og -kvenna til að vera með og alls hafa safnast nærri 1.8 milljónir króna. „Mér finnst þetta flott framtak hjá eiganda charityshirts.is og ég vona bara að Suðurnesjamenn taki þátt og hjálpi til í þessu skemmtilega verkefni,“ sagði Arnór Ingvi í spjalli við Víkurfréttir í vikunni en allur ágóði af treyju-uppboði Arnórs fer til Styrktarfélags lamaðra og fatlaðra (The Benefit Society for Children with Disabilities). Eitt nafn verður dregið út mánudaginn 26. ágúst. Arnór er þekktasti atvinnuíþróttamaður Suðurnesjamanna um þessar mundir og leikur með úrvalsdeildarliði Malmö í Svíþjóð. Liðið er í efsta sæti deildarinnar sem stendur og Arnór Ingvi var að koma sterkur inn eftir mánaðarfjar- veru vegna meiðsla. Arnór hefur leikið 29 landsleiki og skorað í þeim fimm mörk, það eftirminnilegasta án efa sigurmarkið gegn Austurríki í Evrópukeppni landsliða í Frakklandi árið 2016. Arnór hefur verið fastamaður í landsliðinu undanfarin þrjú ár og lék með því m.a. á HM í Rússlandi í fyrra. Viltu vinna búning Arnórs Ingva? Malmö gegn Chelsea fyrr á þessu ári. Búningurinn sem hann var í á móti Lundúnaliðinu er einmitt vinningur í happdrætti sem vefsíðan charitys- hirts.is stendur fyrir (sjá aðra frétt á síðunni). Félagar Arnórs fagna öðru af tveimur mörkum hans í leiknum. Tvíburasystur í landsliðshóp Þrjár Keflavíkurstúlkur hafa verið valdar í U19 landsliðshóp sem leikur tvo vináttuleiki í Svíþjóð í lok ágúst. Þórður Þórðarson, landsliðsþjálfari U19 kvenna, hefur valið hópinn og í honum eru frá Keflavík þær Sveindís Jane Jónsdóttir og tvíburasysturnar Íris Una og Katla María Þórðardætur. Þær hafa allar leikið með PepsiMax- liði Keflavíkur í sumar. Ísland mætir Svíþjóð 28. ágúst og Noregi þann þrítugasta. Keflvíkingar í ágætum málum Keflvíkingar geta farið að brosa á nýjan leik því þeir hafa nú sigrað tvívegis í röð á heimavelli eftir að hafa lagt Víking Ólafsvík að velli á Nettó-vellinum 2:1. Bítlabæjardrengir náðu forystu á 23. mínútu úr víti þegar Adolf Bitegeko skoraði úr víti. Gestirnir jöfnuðu sjö mínútum síðar, einnig úr víti. Í síðari hálfleik skoraði Dagur Ingi Valsson flott mark af löngu færi og það reyndist vera sigurmark heimamanna. Keflvíkingar eru eftir sigurinn í 6. sæti með 25 stig og eiga tæpast von á því að komast í 2. sætið en Þór Akureyri er þar með 32 stig. Eftir sigur Magna eru Njarðvíkingar í vondum málum í neðsta sæti deildar- innar, 4 stigum á eftir næstneðsta liðinu Haukum en UMFN tapaði fyrir Fram sl. fimmtudag. Tvö Suðurnesjalið í toppbaráttu 2. deildar Víðismenn gerðu góða ferð til Húsavíkur og sigruðu heimamenn 1:3 í fjörugum leik og Voga-Þróttur gerði sér lítið fyrir og vann topplið Leiknis á Vogaídýfu- vellinum í 2. deild Íslandsmótsins í knattspyrnu. Með úrslitum helgarinnar hefur staðan á toppnum jafnast. Víðismenn eru í 3. sæti deildarinnar með 28 stig, þremur á eftir toppliði Leiknis og tveimur á eftir Vestra. Þróttarar eru í 5. sæti með 25 stig. Toppbaráttan gæti varla verið jafnari en aðeins tíu stig skilja af efsta og liðið í þriðja neðsta sæti. Sandgerðingar eru í ágætum málum í 3. deildinni. Þeir unnu KH með þremur mörkum gegn einu og halda sér í toppbaráttunni og eiga möguleika á 2. sætinu ef þeim gengur vel í næstu leikjum. Keflavíkurstúlkur fá sterkan útlending Kvennalið Keflavíkur í Domino’s-deildinni í körfubolta hefur náð samkomulegi við Daniela Wallen frá Venezuela. Daniela spilaði fyrir OCU háskólann í Bandaríkjunum og var valin besti leikmaðurinn í NAIA deildinni á lokaári sínu í skólanum 2017. Hún var í liði Peka í Finnlandi í fyrra sem vann finnska titilinn. „Við erum ótrúlega ánægð með að hafa ná samkomulagi við þennan flotta leikmann,“ segir í frétt frá Keflavík. FIBA gaf út á dögunum lista yfir alþjóðadómara og eftirlitsmenn fyrir tímabilið 2019 til 2021 og eru tveir nýir fulltrúar KKÍ á FIBA listan- um en annar þeirra er Ísak Ernir Krist- insson sem dómari. Faðir hans, Kristinn Óskarsson, er alþjóð- legur dómaraleið- beinandi. Ísak orðinn alþjóðadómari Búningurinn sem Arnór Ingvi var í á móti Chelsea í Meistaradeildinni. Víðir og Þróttur eru í góðum málum í 2. deildinni. Hart barist við mark Víkinga gegn Keflavík. Störf í boði hjá Reykjanesbæ Fræðslusvið – sálfræðingur Umsóknir í auglýst störf skulu berast rafrænt gegnum vef Reykjanesbæjar, Stjórnsýsla: Laus störf. Þar eru jafnframt nánari upplýsingar um auglýst störf. Hægt er að leggja inn almenna umsókn á sama stað. Þeim er komið til stofnana sem eru í leit að starfsfólki. Almennar umsóknir fyrnast að sex mánuðum liðnum. Viðburðir í Reykjanesbæ Bókasafn Reykjanesbæjar - fjölgum taupokum í pokastöð Dagana 23. – 31. ágúst hvetjum við íbúa til að hjálpa okkur að fjölga taupokum í Pokastöðinni og stuðla um leið að plastlausri Ljósanótt. Saumum fyrir umhverfið á opnunartíma bókasafnsins og gerum Reykjanesbæ að umhverfisvænna bæjarfélagi. Ekki er krafist saumakunnáttu, hægt er að leggja lið með því að klippa niður efni og merki Pokastöðvar. Hvetjum íbúa jafnframt til að taka þátt í Plastlausum september! Sundmiðstöð/Vatnaveröld - vetraropnun hefur tekið gildi Opið klukkan 6:30 - 20:30 mánudaga til föstudag og klukkan 9:00 - 17:30 laugardaga og sunnudaga í vetur. 15ÍÞRÓTTIR Á SUÐURNESJUM f immtudagur 22. ágúst 2019 // 31. tbl. // 40. árg.

x

Víkurfréttir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.