Víkurfréttir - 22.08.2019, Síða 8
KRÍAN MERKT
MEÐ GPS-TÆKJUM
„Þetta er ótrúlega merkilegt verkefni
og við erum í fyrsta skipti á Íslandi
að setja út GPS-tæki á þessa athyglis-
verðu fugla. Þetta er líka í fyrsta skipti
í heiminum sem við erum að skoða
þetta far með tækjum sem gefa okkur
þessa miklu nákvæmni. Kríur fara
lengst allra fugla í sínu árlega fari.
Þetta er heimsmeistarinn í farflugi
sem við erum núna í fyrsta skipti að
skoða með þessari nákvæmni. Krían
hefur verið skoðuð áður með tækjum
sem eru kölluð ljósritar en þau gefa
bara 150-200 km. nákvæmni á meðan
GPS-tækin segja okkur nákvæmlega
hvar þær eru,“ segir Dr. Freydís í
samtali við blaðamann Víkurfrétta,
sem fylgdist með vísindafólkinu að
störfum í heiðinni ofan við Norðurkot
í Sandgerði í sumar.
„Nú getum við svarað spurningum
um hvert þær fara nákvæmlega, hvar
þær eiga stoppistöðvar á þessari far-
leið alveg suður á Suðurskautslandið.
Stoppa þær í Vestur-Afríku eða stoppa
þær í Brasilíu? Hvað eru þær lengi
á Antartíkuskaganum og svo fram
eftir götunum.“
Verkefni vísindafólksins er þríþætt.
Einn þáttur þess, sem er mikilvægur
fyrir okkur á Íslandi, er hvar krían fer
í æti. „Það er svo merkilegt við þau
tæki sem við erum að nota í dag að
þau gefa okkur gögnin í svokallaðan
beini. Við erum með tæki sem við
setjum á kríurnar og núna í morgun
fengum við fyrstu niðurstöðurnar,
þannig að við vitum hvar þær voru
í æti í gær og í morgun. Þær flugu
héðan frá Norðurkoti og allt upp í 20
km. út á Faxaflóa þar sem þær voru
í æti og komu svo til baka og skiptu
við makann sinn á hreiðrinu, þar sem
þær eru ennþá að unga út eggjum,“
sagði Dr. Freydís þegar Víkurfréttir
ræddu við hana 24. júní. „Þetta er í
fyrsta sinn sem við fáum þessar upp-
lýsingar fyrir Ísland. Þessi tæki með
beini eru núna í fyrsta skipti notuð
til að skoða far þessara fugla.“
KRÍAN ANNAST LOFTVARNIR
FYRIR ÆÐARBÆNDUR
— Erum við að fá mun nákvæmari
mynd af ferðalagi þessara fugla en
áður var þekkt?
„Miklu nákvæmari mynd. Þetta er í
fyrsta skipti fyrir vísindaheiminn og
að þetta sé gert hér í Norðurkoti er
bara dásamlegt“.
Einn þátturinn í verkefninu er að
skoða þetta sambýli á milli æðarfugla,
æðarbænda og kríunnar. Þar er velt
upp spurningunni hvort það sé kostur
fyrir æðarræktina að vera með kríur
og er það kostur fyrir kríurnar að fá
að verpa innan æðarvarpsins? „Fyrstu
upplýsingar sem við erum að fá út úr
þeirri rannsókn er að það er betri
álega, fleiri egg í hreiðri og álegan
fór fyrr af stað inni í æðarvarpinu
heldur en hérna utan æðarvarpsins.
Ég hugsa að æðarbændurnir veiti
kríunni skjól. Og þar sem við höfum
verið að tala við æðarbændur, þá er
kostur fyrir þá að vera með kríurnar
sem loftvörn fyrir æðarvarpið sitt.“
— Er krían það skynsamur fugl að
hún veit að hún fær verndina hér í
æðarvarpinu?
„Já, ég er alveg sannfærð um það og
svo eru Hanna Sigga og Palli svo dá-
samleg. Hver vill ekki vera hjá þeim?“
segir Dr. Freydís og vísar þar til Sig-
ríðar Hönnu Sigurðardóttur og Páls
Þórðarsonar sem eru æðarbændur í
Norðurkoti en þau hafa skotið skjóls-
húsi yfir vísindafólkið.
MEÐ STUÐNING FRÁ
NATIONAL GEOGRAPHIC
— Þú ert með fullt af fólki hérna með
þér í þessu verkefni. Hvað ætlið þið
svo að gera við þessar niðurstöður
og hversu umfangsmikil er rann-
sóknin?
„Við erum að minnsta kosti fimm
þjóðlönd samankomin hér. Þetta
byrjaði þegar ég var sjálf í starfi við
Exeter Háskóla í Bretlandi og kynntist
þar samstarfskonu minni, henni dr.
Lucy Hawkes sem svo kynnti mig
fyrir samstarfskonu sinni, dr. Söru
Maxwell. Sara er við Washington-
háskóla í Seattle í Bandaríkjunum.
Hér eru svo tveir doktorsnemar frá
Exeter háskóla. Svo eru meistaranem-
endur mínir hérna og einnig breskur
fuglaljósmyndari sem hjálpar okkur
að finna fótamerkin og tækin. Við
erum í það minnsta átta hérna að
vinna bara í þessu.
Við byrjuðum að vinna að rannsókn-
ina í fyrra, fengum styrk frá Natio-
nal Geographic þannig að við gætum
keypt svolítið af þessum tækjum. Ég
fékk svo styrk frá Háskóla Íslands til
að kaupa fleiri tæki sem við erum að
setja út núna í ár. Sara fékk einnig
styrk frá háskóla sínum.
Þetta er umfangsmikið verkefni, þvert
á vísindalegt samfélag. Það fara tals-
verðir fjármunir í þessa rannsókn.
Við erum að svara mikilvægum
spurningum og það verður frábært
þegar við náum tækjunum og upp-
lýsingunum til baka. Þá kemur það
í hlut okkar að leiðbeina doktors-
nemum og meistaranemendum að
skrifa góða pistla og vísindagreinar
sem ég er sannfærð um að verði veiga-
mikið fyrir vísindaheiminn og þessa
þekkingu í vísindaheiminum.
Einnig fyrir samfélag okkar því fyrir
okkur er krían tákn sumarsins. Hún
er svo mikilvæg fyrir okkur eins og
aðrir sjófuglar. Hún segir okkur hvað
er að gerast í hafinu sem ávitar á
heilbrigði hafsins. Hingað til hefur
krían sagt okkur að miklar breytingar
hafi átt sér stað í umhverfi sjávar-
ins í kringum Ísland. Sérstaklega
hér við sunnanvert landið þar sem
sandsíli hefur hrunið og sjófuglum
hefur gengið illa. Kríurnar gefa okkur
þessar upplýsingar mjög hratt, þær
munu gefa okkur þær ennþá hraðar
og miklu betur með þessum tækjum.
Hvert þær fara í æti, hvað þær eru
lengi í ætisleitinni, hvað þær eru að
koma með til baka og það sjáum við
þegar þær koma aftur að hreiðrinu.
Þessar upplýsingar eru bæði mikil-
vægar fyrir vísindasamfélagið og
einnig okkar íslenska samfélag. Með
þessum upplýsingum getum við betur
tekið ákvarðanir um hvernig við ætl-
um að stjórna umhverfismálum og
málefnum hafsins.“
KRÍAN LENTI Í KREPPU EINS
OG ÍSLENSKT SAMFÉLAG
— Við sem ólumst upp við kríuvarpið
sjáum að varpsvæði hennar hefur
tekið miklum breytingum á fáum
árum.
„Já. Það kemur að því sem ég sagði
áðan með þessa krísu sem hefur verið
Vísindamenn frá fimm
þjóðum hafa síðustu tvö
sumur unnið að rann-
sóknum á kríu í landi
Norðurkots í Sandgerði
undir stjórn Dr. Freydísar
Vigfúsdóttur sjávarlíf-
fræðings og sérfræðings
við Háskóla Íslands. Krían
er merkilegur fugl. Kríur
fara lengst allra fugla í
sínu árlega fari. Þær eru
heimsmeistarinn í farflugi
sem núna er í fyrsta skipti
skoðað með nýjustu tækni
af mikilli nákvæmni.
„Fyrir okkur er krían
tákn sumarsins“
Hilmar Bragi Bárðarson
hilmar@vf.is
VIÐTAL
LJÓSMYNDIR
Kristinn Ingvarsson og úr safni Víkurfrétta
Dr. Freydís Vigfúsdóttir fangar kríur í gildrur í æðarvarpinu við Norðurkot.
GPS-tæki sett á kríu. Búnaðurinn mun skrá allar ferðir hennar næsta árið.
8 MANNLÍF Á SUÐURNESJUM