Víkurfréttir - 22.08.2019, Page 10
Allir leikskólar á Íslandi fá nú heildstætt efni úr verkefninu Lærum og leikum með hljóðin, sem er framlag Bryndísar
Guðmundsdóttur, talmeinafræðings, til allra barna landsins. Bryndís hefur starfað í rúmlega þrjátíu ár sem talmeina-
fræðingur hérlendis og hefur gefið út efni ætlað barnafjölskyldum og skólum. Efnið hefur hlotið ýmsar viðurkenningar
en í pakkanum sem leikskólarnir hlutu að gjöf á dögunum má finna verkefnabók, myndaspjöld, kennslubók fyrir
bókstafinn R, kennslubók fyrir bókstafinn S, límmiðasett, málhljóðapúsl, tvö púsl með samhljóðum og sérhljóðum og
vinnusvuntur. Að lokum verða fimm smáforrit fyrir iPad gefin til allra skólanna.
„Börn fæðast með misjöfn spil á hendi og við
þurfum alltaf að leggja áherslu á að öll börn
fái sömu tækifæri. Þessi grunnur að jöfnuði er
lagður í leikskólana, að öll börn, sama úr hvers
konar umhverfi þau koma, hafi sömu tækifæri
þegar þau hafa lokið skólagöngu sinni. Mér
finnst þetta rosalega mikils virði,“ sagði Bryn-
dís við afhendingu pakkanna til leikskólanna í
Reykjanesbæ sem fram fór í Fjölskyldusetrinu
í síðustu viku.
Læsi eykur framtíðarmöguleika
Námsefnið byggir á fagþekkingu talmeinafræð-
innar, rannsóknum og reynslu Bryndísar af því
að vinna með börnum, foreldrum og fagfólki
skóla. „Við vitum að það er mikilvægt að leggja
grunn að læsi frá unga aldri með áherslu á þá
þætti sem rannsóknir sýna að skipta meginmáli
fyrir framtíðarnám barnanna okkar. Lærum
og leikum með hljóðin kennir framburð hljóða,
hljóðavitund og bókstafi, þjálfar hljóðkerfisþætti,
eykur orðaforða og hugtakaskilning, auk þess
að gefa fyrirmynd að setningagerð og mörgum
málfræðiþáttum íslenskunnar. Það er von okkar
allra sem stöndum að verkefninu að með góða
íslenskukunnáttu og læsi í farteskinu aukist fram-
tíðarmöguleikar og jöfnuður á meðal allra barna
sem alast upp á Íslandi,“ segir Bryndís en sam-
starfsaðilar verkefnisins eru fyrirtækin Marel,
Lýsi, IKEA og hjónin Björgólfur Thor og Kristín
Mikilvægt að leggja grunn að læsi frá unga aldri
Gefur til allra
leikskóla
landsins
„Þurfum að leggja áherslu á að öll börn fái sömu tækifæri,“
segir talmeinafræðingurinn Bryndís GuðmundsdóttirBryndís Guðmundsdóttir hefur starfað
sem talmeinafræðingur í 30 ár.
Bryndís afhendir Brynju og Halldóru frá leikskólanum
Vesturbergi gjöfina.
Læsi er mikilvægt
að hafa í farteskinu
að sögn Bryndísar.
FIMMTUDAGSKVÖLD KL. 21:30 Á HRINGBRAUT OG VF.IS
KRÍURNAR
Í NORÐURKOTI
Menntaskólinn á Ásbrú tekinn til starfa
TÖLVULEIKJAGERÐ Á ÁSBRÚ
Á FJÓRHJÓLUM
FRÁ REYKJANESI
Á LANGANES
Horn í horn
Fyrsti þáur
eftir sumarfrí!
10 MANNLÍF Á SUÐURNESJUM