Fréttablaðið - 12.10.2019, Blaðsíða 2
Veður
Austlæg eða breytileg átt, 3-8 í dag,
en suðaustan 8-13 vestast. Smá
skúrir á S-verðu landinu, en yfir-
leitt léttskýjað norðað til. Hiti 1 til
6 stig, en í kringum frostmark fyrir
norðan. SJÁ SÍÐU 46
EM-draumurinn fjarlægist
Ísland tapaði fyrir Frakklandi í undankeppni EM 2020 á Laugardalsvelli í gær. Giroud skoraði eina mark leiksins úr víti. Frakkland og
Tyrkland eru með átján stig í riðlinum en Ísland í þriðja sæti með 12 stig. Draumurinn um þátttöku í EM á næsta ári er því orðinn fjar-
lægur. Frakkarnir ærðust af fögnuði í stúkunni en á samfélagsmiðlunum kenndu Íslendingar dómurunum um úrslitin. Sjá síðu 20
á brauðið, pönnuna og í baksturinn
VIÐSKIPTI Fjölmiðlamaðurinn Egill
Einarsson, betur þekktur sem Gillz,
hefur fjárfest í tveimur íbúðum
á Ásbrú og leigir þær nú þegar út.
Hann segist hafa trú á steypu og
Reykjanesi.
Það er meira en að segja það að
fjármagna slík kaup og því þurfti
Egill að taka til í lífsstílnum. „Reglu-
semi og aðhald er lykillinn. Ég fer
sjaldnar til útlanda og losaði mig
við 421 hestaf ls vöðvabílinn sem
ég átti. Ég ferðast um á hestum
postulanna, það er prýðileg heilsu-
rækt og kostar ekkert,“ segir Egill í
skriflegu svari.
Hann hafi haft gaman af að fara
út á lífið áður fyrr en það brenni
upp peninga. „Ég kýs frekar nota-
legt kvöld heima í stofu í Lazyboy-
stólnum með góða bók eftir ein-
hvern af mínum góðu félögum í
Rithöfundasambandinu. Svo hef
ég það hugfast að f lest af því besta
sem lífið hefur upp á að bjóða
kostar ekki neitt, til dæmis að vera
til staðar, horfa á barnið sitt æfa og
keppa í fótbolta og lyfta lóðum í
vinnunni.“
Þá hafi hann dreg-
ið úr neyslu Ripp-
ed-orkudr yk kja.
Úr fjórum dósum
á dag í þrjár. „Með
því að skrúfa fyrir
vitleysuna náði ég
að leggja til hliðar
og safna mér fyrir
ú t b o r g u n u m
í þ e s s a r
í búði r.“
– bþ
Gillz veðjar á
steinsteypuna
Egill Einarsson
fjölmiðlamaður.
Með því að skrúfa
fyrir vitleysuna
náði ég að leggja til hliðar og
safna mér fyrir útborgunum
í þessar íbúðir.
AKUREYRI Bæjarráð Akureyrar hefur
falið Akureyrarstofu að skoða hug-
myndir sem komið hafa fram um
nýja nýtingu á Sigurhæðum, skálda-
húsi Matthíasar Jochumssonar.
Áætlanir bæjarstjórnar um að selja
húsið hafa vakið sterkar tilfinningar
í bænum og margir látið í sér heyra.
Stefna bæjarstjórnar er enn þá að
selja.
Hilda Jana Gísladóttir, bæjarfull-
trúi og formaður Akureyrarstofu,
segir að margar nýjar hugmyndir um
notkun hafi borist en þær séu ekki
opinberar. „Ef þær breyta málinu þá
endurskoðum við afstöðu okkar,“
segir hún en bætir við að enginn
tímarammi hafi verið settur.
Guðmundur Baldvin Guðmunds-
son, formaður bæjarráðs, vill ekki
svara því hvort einhverjir hafi sýnt
áhuga á kaupum. „Við ætlum að flýta
okkur hægt í þessu máli,“ segir hann.
Hilda segir að engin formleg boð í
húsið hafi borist en hún hafi heyrt
af miklum áhuga. – khg
Sala Sigurhæða
sett í biðstöðu
Aðstandendur Trés lífsins. Olga Margrét Kristínardóttir Cilia, Oktavía
Hrund Jónsdóttir og Sigríður Bylgja Sigurjónsdóttir. FRÉTTABLAÐIÐ/ERNIR
VIÐSKIPTI Mikið er að gera hjá
aðstandendum frumkvöðlaverk-
efnisins Trés lífsins þessa dagana.
Fyrirtækið var valið til þátttöku
á samfélagshraðlinum Snjallræði,
eitt átta verkefna, sem og frum-
kvöðlakeppninni Gullegginu. Báðar
keppnirnar standa nú yfir og því er
í mörg horn að líta.
„Hugmyndin á bak við verkefnið
kviknaði út frá umhverfislegum
pælingum um jarðarfarir. Hvort
hægt væri að gera það á skynsam-
legri hátt. Það er falleg tilhugsun
að sjá nýtt líf spretta af öðru sem
lauk. Dauðinn er erfitt umræðu-
efni fyrir f lesta og því viljum við
gjarnan breyta. Markmið okkar er
að dauðinn verði eðlilegri hluti af
lífinu,“ segir Sigríður Bylgja Sigur-
jónsdóttir, frumkvöðull og hug-
myndasmiður verkefnisins.
Upprunalega hugmyndin var sú
að gera fólki kleift að gróðursetja
tré ásamt ösku hins látna en f ljót-
lega fór verkefnið á f lug. „Vinnan
við verkefnið hófst árið 2015. Fyrst
byggðist það bara á gróðursetning-
unni en síðar bættust við rafrænar
lausnir eins og minningarsíður um
látna sem og persónulegur gagna-
grunnur þar sem saga og óskir við-
komandi eru skráðar,“ segir Sigríður.
Minningarsíðurnar væru fyrir
aðstandendur þar sem vinir og fjöl-
skylda hins látna gætu deilt sögum
og myndum af þeim sem þau syrgja.
„Þetta á að vera staður til þess að
sameinast í sorginni og fagna lífinu
sem var,“ segir Sigríður.
Persónulegi gagnagrunnurinn
mun virka þannig að einstaklingur
getur undirbúið andlát sitt með því
að skrá sögu sína með sínum orðum
sem og sínar hinstu óskir. Þegar við-
komandi deyr þá eru upplýsingarn-
Vilja veita fólki aukið
val við andlát ástvina
Frumkvöðlaverkefnið Tré lífsins hyggst veita aukið val við andlát, bæði fyrir
hinn látna og aðstandendur. Hugmyndin er að bjóða upp á gróðursetningu
trés í minningargörðum ásamt ösku hins látna, þar sem nýtt líf mun spretta.
Þetta á að vera
staður til þess að
sameinast í sorginni og
fagna lífinu sem var.
Sigríður Bylgja Sigurjónsdóttir,
einn af stofnendum Tré lífsins
ar sendar á nokkra einstaklinga sem
hinn látni valdi.
Hún byrjaði verkefnið ein en
síðar komu þær Oktavía Hrund
Jónsdóttir og Olga Margrét Krist-
ínardóttir Cilia inn í verkefnið.
Oktavía er sérfræðingur varðandi
tækni-, öryggis- og aðgengismál og
Olga er sérfræðingur í öllu því sem
tengist persónuverndarmálum.
„Þær hafa mikla þekkingu hvor á
sínu sviði og hafa hjálpað mér við
að gera þetta verkefni að veruleika,“
segir Sigríður.
Hópurinn stóð frammi fyrir
mörgum áskorunum enda er laga-
ramminn um útfarir og hvernig
skuli haga geymslu jarðneskra leyfa
mjög flókinn. „Það er alveg kominn
tími á það að þessi lög séu uppfærð
í takt við nútímann. Við teljum
þörf á að færa fólki aukið val og við
finnum fyrir miklum áhuga á því,“
segir Sigríður. bjornth@frettabladid.is
+PLÚS
1 2 . O K T Ó B E R 2 0 1 9 L A U G A R D A G U R2 F R É T T I R ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð
1
2
-1
0
-2
0
1
9
0
5
:5
3
F
B
1
0
4
s
_
P
1
0
3
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
0
4
s
_
P
0
9
0
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
0
4
s
_
P
0
0
2
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
0
4
s
_
P
0
1
5
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
2
4
0
1
-A
3
3
0
2
4
0
1
-A
1
F
4
2
4
0
1
-A
0
B
8
2
4
0
1
-9
F
7
C
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
1
B
F
B
1
0
4
s
_
1
1
_
1
0
_
2
0
1
C
M
Y
K