Fréttablaðið - 12.10.2019, Page 8
BÍLAÚTSALA
Allir okkar útsölubílar eru bílaleigubílar frá Procar bílaleigu.
Léttskoðun ásamt útleiguvottorði fylgir öllum bílum.
Þetta er aðeins brot af þeim útsölubílum sem eru í boði.
Kíktu í kaffi.
AKRALIND 3
S: 4162120
Opið virka daga
kl. 10:00 – 19:00
Opið laugadaga
og sunnudaga
kl. 12:00 – 16:00
Auglýst er eftir umsóknum um styrki úr
Vinnustaðanámssjóði.
Sjóðurinn veitir styrki til fyrirtækja og stofnana vegna
vinnustaðanáms og starfsþjálfunar sem er skilgreindur
hluti af starfsnámi skv. aðalnámskrá framhaldsskóla.
Umsóknarfrestur er til 19. nóvember 2019, kl. 16:00.
Markmið sjóðsins er að hvetja fyrirtæki og stofnanir til
þess að taka við nemendum sem stunda vinnustaðanám
sem hluta af námi á framhaldsskólastigi og gera þeim
kleift að ljúka tilskildu vinnustaðanámi.
Umsóknargögn og leiðbeiningar er að finna á
www.rannis.is/sjodir/menntun/vinnustadanamssjodur/
Umsóknum skal skilað á rafrænu formi.
Nánari upplýsingar veitir
Skúli Leifsson, sími 515 5843,
skuli.leifsson@rannis.is
Vinnustaðanámssjóður
Umsóknarfrestur til 19. nóvember
H
N
O
T
S
K
Ó
G
U
R
g
ra
fí
sk
h
ön
nu
n
Kjörskrár vegna kosningar um sameiningu
sveitarfélaganna Fljótsdalshéraðs,
Borgarfjarðarhrepps, Djúpavogshrepps
og Seyðisfjarðarkaupstaðar sem haldnar
verða laugardaginn 26. október 2019 skulu
lagðar fram eigi síðar en 16. október 2019.
Kjörskrár skal leggja fram á skrifstofu
sveitarstjórna eða á öðrum hentugum stað
sem sveitarstjórn ákveður.
Þeim sem vilja koma að athugasemdum er
bent á að senda þær hlutaðeigandi sveitar-
stjórn.
Dómsmálaráðuneytinu 11. október 2019.
Framlagning kjörskráa S K IPUL AG S M ÁL Haldin verður
alþjóðleg hugmyndasamkeppni
um nýtt skipulag á Umferðarmið-
stöðvarreit. Borgarráð samþykkti á
fundi sínum í fyrradag tillögu Dags
B. Eggertssonar borgarstjóra um að
fela skipulags- og samgönguráði að
annast undirbúning og utanumhald
samkeppninnar.
Markmiðið er að á reitnum rísi
ný alhliða samgöngumiðstöð fyrir
höfuð borgarsvæðið og landið allt
auk þéttrar blandaðrar byggðar.
Gert er ráð fyrir að á síðari stigum
verði efnt til sérstakrar fram-
kvæmdasamkeppni um byggingu
sjálfrar samgöngumiðstöðvarinnar.
Er miðstöðinni ætlað að vera ein af
lykilskiptistöðvum Borgarlínu.
Fulltrúar Sjálfstæðisf lokksins
í borgarráði, sem sátu hjá við
afgreiðslu tillögunnar, segja í bókun
að þeir hefðu viljað sjá víðtækari
greiningu á fýsileika staðsetningar
samgöngumiðstöðvar. Óvíst sé
hvort þörf sé fyrir miðstöð af þeirri
stærðargráðu sem gert sé ráð fyrir.
Í bókun fulltrúa meirihlutans
segir hins vegar að staðsetningin
sé framúrskarandi og feli í sér mikil
tækifæri til að efla almenningssam-
göngur. – sar
Samkeppni um BSÍ-reitinn í Vatnsmýri
Markmiðið er að núverandi mannvirki á reitnum víki. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM
MENNTUN Nýnemar við Háskólann
á Akureyri eru margir hverjir ösku-
reiðir yfirstjórn skólans vegna þess
gjörnings að meina þeim að skipta
um námsbraut um jólin. Þetta mun
hafa þau áhrif að hundruð nemenda
hætta námi við skólann um jólin í
lögreglufræðum, sálfræði og hjúkr-
unarfræði.
Eyjólfur Guðmundsson, rektor
HA, sendi á miðvikudaginn bréf til
starfsmanna skólans þar sem hann
tilkynnti að á þeim námsbrautum
þar sem fjöldatakmarkanir giltu,
myndu þeir nemendur sem ekki
komust áfram um áramót þurfa að
hætta námi við skólann. Hér áður
fyrr var hægt að færa sig yfir á aðrar
námsbrautir til að halda áfram námi.
Þessi nýju vinnubrögð yfirstjórnar
skólans eru harðlega gagnrýnd.
Fréttablaðið náði tali af nem-
endum sem gætu þurft að hætta
námi um jólin vegna þessa ef þeir ná
ekki tilætluðum námsárangri. Nem-
endurnir vildu ekki koma fram undir
nafni en þeir upplifðu allir að mikil
reiði væri í nemendahópnum. Dæmi
eru um að nemendur hafi flutt norð-
ur úr höfuðborginni og hafið nám,
fengið inni á leikskóla fyrir börn sín
og standi hugsanlega frammi fyrir
því að vera kastað úr námi í upphafi
nýs árs.
„Innritunartölur haustsins fyrir
skólann í heild sinn gera það að
verkum að ekki er rými í rekstri skól-
ans fyrir þann fjölda sem vill stunda
nám hjá okkur og því er þessi aðgerð
nauðsynleg til að tryggja áfram-
haldandi gæði náms við Háskólann
á Akureyri,“ skrifaði rektor til starfs-
manna.
Það sem nemendum finnst hvað
sárast er að þeir hafa greitt innritun-
argjöld og verið talin trú um að þeir
gætu hafið nám. Yfirstjórn skólans
segir hins vegar að þetta hafi legið
ljóst fyrir áður en skólastarf hófst í
haust. Í innritunarbréfum til nem-
enda stóð orðrétt: „Þeir nemar sem
komast ekki inn í starfsnám hafa
tækifæri til þess að sækja um annað
nám innan hug- og félagsvísinda-
sviðs á vormisseri ef námspláss leyf-
ir.“ Yfirstjórn telur að þetta hafi verið
nægileg útskýring fyrir nýnema á að
svo gæti farið að þeim yrði hent út
um áramót. sveinn@frettabladid.is
Reiðin ólgar í nemum
Háskólans á Akureyri
Hundruð nemenda í sálfræði, lögreglufræði og hjúkrunarfræði munu ekki
geta haldið áfram námi í HA eftir áramót. Þeim sem ekki ná svokölluðum
klásus verður bannað að skipta um braut samkvæmt ákvörðun yfirstjórnar.
Fjöldi nema fær ekki að halda áfram námi eftir áramót. FRÉTTABLAÐIÐ/PJETUR
Eyjólfur
Guðmundsson,
rektor HA.
1 2 . O K T Ó B E R 2 0 1 9 L A U G A R D A G U R8 F R É T T I R ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð
1
2
-1
0
-2
0
1
9
0
5
:5
3
F
B
1
0
4
s
_
P
0
9
7
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
0
4
s
_
P
0
9
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
0
4
s
_
P
0
0
8
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
0
4
s
_
P
0
0
9
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
2
4
0
1
-D
E
7
0
2
4
0
1
-D
D
3
4
2
4
0
1
-D
B
F
8
2
4
0
1
-D
A
B
C
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
7
B
F
B
1
0
4
s
_
1
1
_
1
0
_
2
0
1
C
M
Y
K