Fréttablaðið - 12.10.2019, Side 10
Stadia er ekki tölva, það eina sem þú kaupir er fjarstýring. NORDICPHOTOS/GETTY
TÆKNI „Sögulega séð voru tölvu-
leikir spilaðir á þar til gerð tæki.
Þannig var það líka með tónlist og
myndbönd – núna hlustar þú og
horfir hvar sem er. Nú er komið að
tölvuleikjum. Í snjallsímum keyrði
tónlist áfram 3G, myndbönd 4G –
nú munu tölvuleikir keyra áfram
5G,“ segir Kareem Choudhry, yfir-
maður skýjaleikja hjá Xbox, í sam-
tali við Wired.
Microsoft í samstarfi við keppi-
nautinn Sony er nú að undirbúa að
setja í loftið leikjastreymisveituna
xCloud. Apple var á undan með
Apple Arcade. Einnig er Amazon
að skoða eitthvað svipað. Allt þetta
er þó vegna yfirvofandi innkomu
Google í tölvuleikjaheiminn.
Google Stadia fer í loftið eftir
mánuð í Bandaríkjunum og víða
í Evrópu, þar á meðal á Norður-
löndunum að Íslandi undanskildu.
Í stað leikjatölvu verður seld fjar-
stýring sem hægt er að nota við
sjónvarpið eða tölvuna. Rukkað er
fyrir startgjald, sem er í Danmörku
um 11 þúsund krónur, og síðan
mánaðargjald fyrir þjónustuna,
rúmar 1.200 krónur.
Hugmyndin er að í gegnum
Stadia verði hægt að kaupa leik og
spila hann í nánast hvaða tölvu,
snjallsíma eða snjallsjónvarpi sem
er. Og þegar farið er í ferðalag eða
strætó verði svo hægt að halda
áfram með leikinn í snjallsímanum.
Verður þá notast við stór og
öflug gagnaver til að keyra leikinn
í betri gæðum en PlayStation 4 og
Xbox One. Vandamálið sem svona
streymisveitur glíma við er að koma
í veg fyrir hökt, slíkt má ekki vera
til staðar. Til þess þarf 5G-farsíma-
tengingu.
Viðmælendur Fréttablaðsins sem
hafa fylgst með þróuninni undan-
farin ár segja mikla óvissu um hvort
þetta muni ganga upp. Stadia fer í
loftið með um 30 leiki, þar á meðal
kunnuglega titla. Það þarf þó meira
til, helst ofurvinsælan leik sem er
aðeins hægt að spila í Stadia. Play-
Station 5 er væntanleg á næsta ári en
ef svo fer að Stadia slái í gegn þá sé
mögulegt að það verði engin Play Sta-
tion 6. Ef einhver getur látið gerast þá
sé það Google.
Ísland er ekki á listanum yfir lönd
sem Stadia opnar á í nóvember en
þó eru til leiðir til að komast fram
hjá landamæratakmörkunum þegar
kemur að netinu. Google mun opna á
fleiri lönd á næsta ári en ekki er ljóst
hvort Ísland verður þar á meðal og
þá hvenær. arib@frettabladid.is
Tölvuleikir keyra 5G
Microsoft, Sony, Apple og Amazon eru á leið á leikjastreymismarkaðinn. Allra
augu eru þó á Google Stadia en óvíst er hvenær hún verður opnuð á Íslandi.
Hlutverk sjóðsins er að stuðla að varðveislu og viðhaldi friðlýstra og friðaðra
húsa og mannvirkja, sbr. reglur um úthlutun úr húsafriðunarsjóði nr.
577/2016. Veittir verða styrkir úr sjóðnum til:
• viðhalds og endurbóta á friðlýstum og friðuðum húsum og
mannvirkjum, og öðrum húsum og mannvirkjum, sem hafa
menningarsögulegt, vísindalegt eða listrænt gildi.
• byggingarsögulegra rannsókna, þar með talið skráningu húsa og
mannvirkja, og miðlun upplýsinga um þær.
• sveitarfélaga til að vinna tillögur að verndarsvæði í byggð, í
samræmi við ákvæði laga nr. 87/2015 og reglugerðar nr. 575/2016
um verndarsvæði í byggð og til verkefna innan verndarsvæða í
byggð.
Umsóknir eru metnar með tilliti til varðveislugildis, t.d. vegna byggingarlistar,
menningarsögu, umhverfis, upprunaleika og tæknilegs ástands ásamt gildis
fyrir varðveislu byggingararfleifðarinnar.
Umsóknareyðublað og nánari upplýsingar, m.a. úthlutunarreglur, er að finna
á vef Minjastofnunar Íslands, www.minjastofnun.is.
Umsóknarfrestur er til og með 1. desember 2019. Umsóknir sem berast
eftir að umsóknarfresti lýkur koma ekki til álita við úthlutun styrkja.
Minjastofnun Íslands hefur eftirlit með að styrkt verkefni séu viðunandi af
hendi leyst og í samræmi við innsend umsóknargögn. Bent er á leiðbeiningarit
um verndarsvæði í byggð og um viðhald og endurbætur friðaðra og
varðveisluverðra húsa sem finna má á vef Minjastofnunar Íslands (undir
Gagnasafn). Í Húsverndarstofu í Árbæjarsafni er veitt endurgjaldslaus ráðgjöf
um gerð styrkumsókna og viðhald og viðgerðir á gömlum húsum.
Suðurgötu 39,101 Reykjavík
Sími: 570 1300
www.minjastofnun.is
husafridunarsjodur@minjastofnun.is
Minjastofnun Íslands
auglýsir eftir umsóknum um styrki úr
húsafriðunarsjóði
fyrir árið 2020
LAND ROVER HESTHÁLSI 6-8, 110 REYKJAVÍK, SÍMI: 525 6500
Range Rover Sport HSE PHEV
Verð frá: 13.690.000 kr.
Range Rover Sport HSE P400e tengitvinnbíll setur ný viðmið. Einstök hönnun,
framúrskarandi aksturseiginleikar og 404 hestöfl gera þennan sportlega
lúxusjeppa að hagkvæmum og umhverfisvænum kosti.
Verið velkomin í reynsluakstur!
RAFMAGNIÐ ER KOMIÐ
Í RANGE ROVER
www.landrover.is
E
N
N
E
M
M
/
S
ÍA
/
N
M
9
5
5
8
9
R
a
n
g
e
R
o
v
e
r
S
p
o
rt
P
H
E
V
5
x
2
0
s
e
p
t
OPIÐ Í DAG FRÁ 12–16
TÆKNI
1 2 . O K T Ó B E R 2 0 1 9 L A U G A R D A G U R10 F R É T T I R ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð
1
2
-1
0
-2
0
1
9
0
5
:5
3
F
B
1
0
4
s
_
P
0
9
8
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
0
4
s
_
P
0
9
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
0
4
s
_
P
0
0
7
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
0
4
s
_
P
0
1
0
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
2
4
0
1
-D
9
8
0
2
4
0
1
-D
8
4
4
2
4
0
1
-D
7
0
8
2
4
0
1
-D
5
C
C
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
7
A
F
B
1
0
4
s
_
1
1
_
1
0
_
2
0
1
C
M
Y
K