Fréttablaðið - 12.10.2019, Side 12
Orkustofnun - Grensásvegi 9 - 108 Reykjavík - Sími 569-6000 - www.os.is
Tækifæri og áskoranir við
uppbyggingu smávirkjana á Íslandi
Ráðstefna á Grand Hótel 17. október 2019
08:00 Skráning og morgunverður
08:30 Setning ráðstefnu
- Guðni A. Jóhannesson, orkumálastjóri
08:40 Ávarp ráðherra ferðamála-, iðnaðar- og nýsköpunar
- Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir
08:50 Öryggisstjórnkerfi virkjana
- Óskar Frank Guðmundsson, sérfræðingur
hjá Mannvirkjastofnun
09:10 Umhverfismat fyrir smærri virkjanir - Jakob Gunnarsson,
sviðsstjóri hjá Skipulagsstofnun
09:30 Smávirkjanir og dreifikerfið
- Kjartan Rolf Árnason, deildarstjóri tæknisviðs hjá RARIK
09:50 Kaffihlé
10:10 Smávirkjanir og flutningskerfið
- Sverrir Jan Norðfjörð, framkvæmdastjóri
þróunar- og tæknisviðs
10:30 Fjármögnun smávirkjana - Aðalsteinn Þorsteinsson,
forstjóri Byggðastofnunar
10:50 Smávirkjanir í Noregi - Knut Olav Tveit,
Daglig leder, Småkraftforeningen
11:10 Hafa orkufyrirtækin áhuga á að kaupa orku
frá smávirkjunum - Friðrik Friðriksson, framkvæmdastjóri
framleiðslu og sölu hjá HS Orku
11:30 Virkjanasaga Húsafells - Arnar Bergþórsson,
stjórnarformaður Arnarlækjar
11:50 Samantekt og fundi slitið
Fundarstjóri Erla Björk Þorgeirsdóttir verkefnisstjóri hjá Orkustofnun
Skráning á fundinn og útsending frá fundinum er á os.is
Orkustofnun efnir til ráðstefnu um tækifæri og áskoranir
við uppbyggingu smávirkjana á Íslandi. Fjallað verður um
umhverfismat, tengingar smávirkjana við dreifikerfið,
fjármögnun og fleiri atriði er varðar smávirkjanir.
Einnig verða sagðar reynslusögur af uppbyggingu
smávirkjana bæði á Íslandi og í Noregi. Þórdís Kolbrún
Reykfjörð Gylfadóttir, ráðherra mun ávarpa ráðstefnuna.
Audi Q5 TFSI e er knúinn rafmótor sem dregur allt að 40 km. skv. WLTP.
Þú getur farið flestra þinna ferða í borginni eingöngu knúinn rafmagni.
Vertu velkomin/nn í reynsluakstur.
Tilkomumikið útlit, framsækin tækni og kraftur.
HEKLA · Laugavegi 170-174 / Audi.is / 590 5000
Q5 TFSI e með kynningarpakka
verð 9.990.000 kr.
Skoðaðu sýningarsalinn okkar á netinu á www.hekla.is/audisalur
Nýr & rafmagnaður
Audi Q5 TFSI e.
SÝRLAND Tugþúsundir Kúrda hafa
f lúið landamæraborgir og -bæi
eftir að innrás Tyrkja inn í sjálf-
stjórnarhéraðið Rojava í Sýrlandi
hófst á miðvikudag. Um 100 Kúrdar,
karlar, konur og börn, héldu hins
vegar norður að landamærunum.
„Við ætlum að mótmæla innrás
Tyrkja,“ sagði kona með ungbarn
sem mætti blaðamönnum CNN
nálægt borginni Tal Abyad. Enn þá
rignir sprengjum yfir borgina og
eina spítalanum hefur verið lokað.
Í borginni Qamishli, í austurhluta
Rojava þar sem ISIS-liðar eru vist-
aðir í fangabúðum, hafa íbúar einn-
ig f lúið undan sprengjuregninu.
Svik Bandaríkjamanna lágu þungt
á Hussein Rammo, sem ræddi við
The Guardian. „Ég er 63 ára og hef
aldrei séð neitt þessu líkt. Áður fyrr
vorum við með ógnarstjórn en nú
erum við svikin, sem er verra,“ sagði
hann.
Herir Tyrkja hafa nú að mestu
náð að umkringja borgirnar Tal
Abyad og Ras al-Ain, á miðjum
landamærunum. Yfirvöld í Tyrk-
landi segja að hernaðurinn gangi
samkvæmt áætlun en Kúrdar halda
því fram að þeir hafi náð að hægja
á innrásinni.
Í Bandaríkjunum er ákvörðun
Trumps um að draga herlið frá
svæðinu og gefa Tyrkjum færi á
innrás farin að hafa áhrif. Trump á
í vök að verjast gegn fulltrúadeild
þingsins og kurr er innan hersins
vegna ákvörðunarinnar. Ofan á
þetta bætist óánægja sannkristinna
íhaldsmanna, sem hingað til hafa
verið dyggustu stuðningsmenn for-
setans.
Rojava hefur hingað til verið
athvarf fyrir kristið fólk, Kúrda
og aðra. Veraldleg gildi eru þar í
hávegum höfð og trúarlegar öfgar
ekki liðnar. „Innrás Tyrkja í norð-
austurhluta Sýrlands er mikil ógn
við bæði Kúrda og kristna og grefur
undan voninni um trúfrelsi í Mið-
austurlöndum,“ sagði kirkjuleið-
toginn Tony Perkins, sem er jafn-
framt einn af ráðgjöfum Trumps.
Fleiri sannkristnir Bandaríkja-
menn hafa tekið í sama streng, þar
á meðal Pat Robertson, stofnandi
kristilegu sjónvarpsstöðvarinnar
CBN. 26 prósent bandarískra kjós-
enda eru sannkristnir og 81 prósent
þeirra kaus Trump í forsetakosn-
ingunum árið 2016. Óttast er að
ISIS-liðar sleppi úr varðhaldi Kúrda
og geri usla. Alls sitja 12 þúsund
ISIS-liðar í 7 fangabúðum í Rojava.
Á meðan hafa bandarísk stjórn-
völd lagt línurnar fyrir Tyrki. Ef
þjóðernishreinsanir eða fjölda-
morð á óbreyttum borgurum
eiga sér stað í Rojava, verða Tyrkir
beittir efnahagsþvingunum.
kristinnhaukur@frettabladid.is
Sannkristnir leiðtogar
óánægðir með Trump
Átökin harðna í Rojava, héraði Kúrda í Sýrlandi. Tvær landamæraborgir hafa
verið umkringdar og spítala hefur verið lokað. Í Bandaríkjunum eru sann-
kristnir leiðtogar vonsviknir með ákvörðun Trumps um að yfirgefa svæðið.
Save the Children á Íslandi
Tyrkir njóta stuðnings Sýrlenska stjórnarhersins í árásum sínum á á Kúrda í Norður-Sýrlandi. NORDICPHOTOS/GETTY
1 2 . O K T Ó B E R 2 0 1 9 L A U G A R D A G U R12 F R É T T I R ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð
1
2
-1
0
-2
0
1
9
0
5
:5
3
F
B
1
0
4
s
_
P
1
0
0
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
0
4
s
_
P
0
9
3
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
0
4
s
_
P
0
0
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
0
4
s
_
P
0
1
2
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
2
4
0
1
-C
5
C
0
2
4
0
1
-C
4
8
4
2
4
0
1
-C
3
4
8
2
4
0
1
-C
2
0
C
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
5
A
F
B
1
0
4
s
_
1
1
_
1
0
_
2
0
1
C
M
Y
K