Fréttablaðið - 12.10.2019, Page 16
NÓBELSVERÐLAUN Abiy Ahmed, for-
sætisráðherra Eþíópíu, hlýtur hin
virtu Nóbelsverðlaun í ár fyrir að
stuðla að aukinni alþjóðlegri sam-
vinnu og friði og að binda enda á 20
ára hernaðarátök milli Eþíópíu og
nágrannalandsins Erítreu. Norska
Nóbelsnefndin tilkynnti þetta í gær.
Nóbelsnefndin hrósaði viðleitni
Abiy til að ná friði og alþjóðlegu
samstarfi, og þá sérstaklega fyrir
afgerandi frumkvæði hans til að
leysa landamærastríðin við Erí-
treu. „Norska Nóbelsnefndin telur
að viðleitni Abiy Ahmed eigi skilið
viðurkenningu og þurfi hvatningu,“
sagði Berit Reiss-Andersen formað-
ur nefndarinnar.
Abiy Ahmed Ali er 43 ára gamall
af þjóðflokki Orómóa sem eru um
40 prósent Eþíópíumanna. Sem
barn fékk hann nafnið Abiyot sem
þýðir „bylting“. Hann nam tölvu-
verkfræði og lauk árið 2017 doktors-
prófi frá Háskólanum í Addis Ababa
í friðar- og öryggisfræðum.
Abiy tók við embætti forsætis-
ráðherra í apríl á síðasta ári. Í ríkinu
hefur verið einræði síðustu 25 árin
og töluverð félagsleg ólga almenn-
ings. Hann lofaði í upphafi miklum
umbótum sem ætlað var að koma á
friði heima og erlendis.
Eþíópía náði í fyrra sögulegum
friðarsamningi við nágrannalandið
Erítreu en ríkin höfðu verið í hern-
aðarlegri pattstöðu í nærri tvo ára-
tugi frá mannskæðu landamæra-
stríði á árunum 1998 til 2000.
Miklar væntingar eru um að sam-
komulagið, sem ber yfirskriftina
„sameiginleg yfirlýsing um frið og
vináttu“, dragi úr straumi f lótta-
fólks frá löndunum til annarra ríkja
Afríku og Evrópu.
Unnur Orradóttir Ramette, sem
hefur aðsetur í Kampala í Úganda,
er sendiherra Íslands í Eþíópíu.
Hún segir að forsætisráðherrann sé
vel að þessu kominn. „Hann hefur
unnið ótrúleg afrek við erfiðar
aðstæður. Hann hefur tekið djarfar
ákvarðanir, sleppt tugum þúsunda
pólitískra fanga úr haldi og heimilað
endurkomu uppreisnarmanna sem
tilheyra mismunandi þjóðernis-
brotum. Það hefur ekki verið hættu-
laus vegferð,“ segir Unnur. „Stjórn-
völd eru heldur ekkert að reyna að
breiða yfir staðreyndir og upplýsa
um fjölda látinna í skæruárásum.
Þetta er lítið dæmi um atriði sem
hefði verið óhugsandi áður.“
Unnur segir að mikið umrót hafi
verið í Eþíópíu. Abiy hafi farið af
stað með áætlun um pólitíska og
efnahagslega endurreisn landsins
sem felur meðal annars í sér einka-
væðingu ríkisstofnana. Það sé gríð-
arstórt verkefni enda er landið tæp-
lega búið undir slíkt að neinu leyti.
Síðan þá hafi að minnst kosti
1.200 manns fallið í átökum og 1,2
milljónir manna séu á flótta innan-
lands. „Það er þó ekkert nýtt að átök
geisi á milli ólíkra hópa í þessu ríf-
lega 100 milljóna manna landi. En
í ljósi sögunnar, þá finnst sumum
hann vera veikur leiðtogi, að hann
ráði ekki við aðstæður og muni ekki
sitja mikið lengur. Aðferðir hans eru
gjörólíkar því sem fólk á að venjast.“
Magnús Ásbjörnsson, einn stofn-
enda Reykjavík Geothermal sem
hefur þróað jarðhitaverkefni í Eþí-
ópíu síðastliðin níu ár, þekkir vel til
í landinu. Hann segir að fyrir utan
það risaskref að skrifa undir friðar-
samning við Erítreu hafi Abiy byrj-
að stjórnartíð sína á því að sleppa
öllum pólitískum föngum í landinu,
bjóða stjórnarandstæðingum sem
höfðu verið í útlegð erlendis aftur
til Eþíópíu, auðveldað þeim að setja
upp fjölmiðla, og skipað fulltrúa
þeirra í stöður æðstu yfirmanna
hæstaréttar og hvatt til lýðræðis-
legra kosninga í landinu.
Magnús segir að áhrif Abiy megi
finna á f leiri sviðum, til dæmis í
jafnréttis- og umhverfismálum.
Helmingur af ríkisstjórn hans er
skipaður konum, og hann beitti sér
fyrir því að kona yrði kjörin forseti
landsins. Þá hafi hann líka beitt sér
í umhverfismálum.
Áætlað er að Abiy taki formlega
við friðarverðlaununum í Ósló þann
10. desember. david@frettabladid.is
Vindar vonar blása sterkar í Afríku
Abiy Ahmed, 43 ára for-
sætisráðherra Eþíópíu,
hlýtur friðarverðlaun
Nóbels í ár. Hrósað fyrir
að binda enda á tveggja
áratuga átök milli lands
síns og Erítreu.
Abiy Ahmed Ali, forsætisráðherra Eþíópíu, hlýtur hin virtu friðarverðlaun Nóbels í ár. Hann er 43 ára gamall af
þjóðflokki Orómóa og þykir hafa unnið ótrúleg afrek í þágu friðar við erfiðar aðstæður. NORDICPHOTOS/GETTY
Meira á frettabladid.is
E
N
N
E
M
M
/
S
ÍA
/
N
M
9
6
1
9
7
B
M
W
X
1
a
lm
e
n
n
5
x
2
0
o
k
t
VERIÐ VELKOMIN Í REYNSLUAKSTUR
Sheer
Driving Pleasure
BL ehf
Sævarhöfða 2 / 110 Reykjavík
525 8000 / www.bl.is
Nýr og sportlegri framendi með áberandi BMW einkennum í ljósum og grilli. Afturendinn hefur einnig
fengið ný afturljós sem setja fallegan svip. Sparneytin 2ja lítra dísilvélin með 8 gíra sjálfskiptingu notar
einungis 5,8 l á hverja 100 km samkvæmt nýjum WLTP viðmiðunarreglum. Vertu með þeim fyrstu
að koma og upplifa alvöru BMW aksturseiginleika og þægindi með því að reynsluaka nýjum
fjórhjóladrifnum BMW X1.
BMW X1 xDrive 18d. Verð frá: 6.590.000 kr.
NÝR BMW X1
OPIÐ Í DAG FRÁ 12–16
1 2 . O K T Ó B E R 2 0 1 9 L A U G A R D A G U R16 F R É T T I R ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð
1
2
-1
0
-2
0
1
9
0
5
:5
3
F
B
1
0
4
s
_
P
1
0
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
0
4
s
_
P
0
8
9
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
0
4
s
_
P
0
0
1
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
0
4
s
_
P
0
1
6
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
2
4
0
1
-9
E
4
0
2
4
0
1
-9
D
0
4
2
4
0
1
-9
B
C
8
2
4
0
1
-9
A
8
C
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
1
A
F
B
1
0
4
s
_
1
1
_
1
0
_
2
0
1
C
M
Y
K