Fréttablaðið - 12.10.2019, Page 22

Fréttablaðið - 12.10.2019, Page 22
Enginn veit hvað átt hefur fyrr en misst hefur er samsýning Landvernd-ar og Ólafs Sveinssonar í samstarf i við Nor-ræna húsið og Fram- tíðarlandið sem nú stendur yfir. Á sýningunni er að finna fjölda ljós- mynda af náttúru sem hefur glat- ast eða er í hættu. Til að mynda af Aldeyjarfossi í Skjálfandafljóti sem er í verndarf lokki ósamþykktrar rammaáætlunar. Sérstök sýning hugsuð fyrir börn um dýr í náttúru Íslands er í barnabókasafni hússins. „Þó svo að myndirnar sem eru sýndar í barnabókasafninu séu hugsaðar fyrir börn þá höfða þær ekki síður til fullorðinna,“ segir Telma Rós Sigfúsdóttir verkefnastjóri hjá Norræna húsinu. Myndirnar eru af fuglum og spendýrum eins og ref, hreindýri, sel, og svo fiskum og skordýrum. „Það eru margar myndir af fugl- um sem fáir hafa séð þótt fólk viti að þeir séu til í íslenskri náttúru,“ segir Telma en fuglar eru langal- gengustu villtu dýrin á Íslandi og því f lestar myndirnar af þeim. Á mánudaginn í næstu viku mun öllum börnum sem sýninguna sækja bjóðast að taka þátt í leik þar sem þau leysa einföld og skemmti- leg verkefni um dýrin á ljósmynda- sýningunni. Sýningin stendur til 17. nóvem- ber og er opin alla daga vikunnar milli 10 og 17. Þrjú heppin börn sem taka þátt í leiknum fá vegleg verðlaun í boði Fjölskyldu- og hús- dýragarðsins að henni lokinni. Hver vinningshafi fær tvö gjafa- bréf þar sem handhafi getur boðið fjórum öðrum aðilum (fjölskyldu og/eða vinum) með í heilan dag í Fjölskyldu- og húsdýragarðinn þar sem allir fá dagspassa í tæki skemmtigarðsins. – kbg Villt dýr á bókasafni Í barnabókasafni Norræna hússins er ljós- myndasýning af villtum dýrum sem lifa á Íslandi. Sýningin er einkum ætluð börnum en höfðar ekkert síður til fullorðinna. Hún er hluti sýningar um íslenska náttúru: Eng- inn veit hvað átt hefur fyrr en misst hefur. Hjörtur Gunnar Jóhannesson hjá Félagi íslenskra bifreiðaeigenda segir að það fyrsta sem öku- maður ætti að gera þegar dekk springur sé að huga að aðstæðum. „Ef springur á bíl á erfiðum stað, t.d. Reykjanesbrautinni, þá þarf að tryggja að aðstæður séu sem öruggastar,“ segir Hjörtur og minnir á að það er lögboðin skylda að hafa viðvörunarþríhyrning í bílnum. 1. Setjið bílinn í gír, handhemilinn á og steina við hjól ef þörf krefur. 2. Setjið viðvörunarþríhyrninginn 50-100 m fyrir aftan bílinn. 3. Takið hjólkoppinn af og losið um allar felgurærnar, en takið þær ekki af. 4. Náið í varahjólbarðann og tjakkinn. Stillið tjakknum undir bílinn. Upplýsingar um hvar hann er og hvar á að setja hann undir eru í eigandahandbókinni. 5. Lyftið bílnum þar til hjólbarð- inn, sem skipta á um, er í lausu lofti. 6. Skrúfið felgurærnar af og takið sprungna hjólbarðann undan. 7. Setjið varahjólbarðann undir og skrúfið rærnar að – sú hlið róarinnar sem er með úrtakinu (kóníska hliðin) á að snúa að hjólbarðanum (felgunni). Herðið rærnar á misvíxl, þannig að felgan sitji rétt á. 8. Slakið bílnum niður, takið tjakk- inn undan og herðið allar rærnar aftur. Setjið hjólkoppinn á. 9. Allt tekið saman og gengið frá með því að skrúfa allt fast á sinn stað. 10. Munið að láta gera við sprungna dekkið eins fljótt og auðið er. Setjið það strax undir því oft er varadekkið af annarri tegund eða minna slitið. Ítarlegri leiðbeiningar frá Hirti og kennslumyndband er að finna á frettabladid.is. Hjörtur Gunnar Jóhannesson sýnir hvar best er að staðsetja tjakkinn. Kennslumyndband er á frettabladid.is. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON BRINK Réttu handtökin Að skipta um dekk Landselur Landselur er útbreiddasta selategund heims. Hann er algengur allt í kringum Ísland. Honum hefur fækkað mikið undanfarin ár og er nú á vá- lista yfir dýr í bráðri hættu. Ljósmynd: Jóhann Óli Hilmarsson Haförn Örninn er stærsti og sjald- gæfasti ránfugl landsins, með yfir 2 metra vænghaf, oft nefndur konungur fuglanna. Um miðja síðustu öld var arnar- stofninn orðinn mjög lítill og lá við að honum yrði útrýmt. Ljósmynd: Sindri Skúlason 1 2 . O K T Ó B E R 2 0 1 9 L A U G A R D A G U R22 H E L G I N ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð HELGIN 1 2 -1 0 -2 0 1 9 0 5 :5 3 F B 1 0 4 s _ P 0 8 3 K .p 1 .p d f F B 1 0 4 s _ P 0 7 8 K .p 1 .p d f F B 1 0 4 s _ P 0 2 2 K .p 1 .p d f F B 1 0 4 s _ P 0 2 7 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 2 4 0 1 -D 4 9 0 2 4 0 1 -D 3 5 4 2 4 0 1 -D 2 1 8 2 4 0 1 -D 0 D C 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 6 B F B 1 0 4 s _ 1 1 _ 1 0 _ 2 0 1 C M Y K
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.