Fréttablaðið - 12.10.2019, Síða 24

Fréttablaðið - 12.10.2019, Síða 24
EF FÓLKI ER ILLA VIÐ ÚTLENDINGA ÞÁ VERÐUR ÞAÐ BARA AÐ VERA ÞANN- IG, ÉG GET EKKI BREYTT ÖÐRU FÓLKI. Bogdan Strætisvagnastjórar sjá um að keyra strætisvagna á milli stoppistöðva, passa að allir sem stíga um borð greiði fyrir það rétta upp­hæð og tryggja öryggi allra um borð. Vagnstjórar eiga í sam­ skiptum við rúmlega þrjú hundruð manns á hverri vakt, fólk af öllu tagi. Strætó BS, sem sér um einu al­ menningssamgöngurnar á höfuð­ borgarsvæðinu, fær reglulega á sig harða gagnrýni. Allt frá því að gleyma viðkvæmum farþegum um borð langtímum saman yfir í að fyrir tækið ráði eingöngu erlent vinnuafl til að spara pening. Nýverið rataði umræða um fjölda ábendinga til Strætó inn á fund borgarstjórnar, en ábendingarnar eru yfir níu þúsund á þremur árum. Um 220 vagnstjórar sjá um að keyra 150 vagna Strætó BS. Alls er um einn af þremur fastráðnum vagnstjórum af erlendu bergi brotinn, hlutfallið liggur ekki fyrir hjá verktökum, en það er töluvert hærra. Blaðamaður settist niður í róleg­ heitum með fjórum vagnstjórum, allt fjölskyldufólki af erlendu bergi brotnu, þeim Ewelinu Trzska, Jenny Johansson, Bogdan Brasoveanu og Basiliu Uzo. Þau voru öll tilbúin að koma fram undir nafni til að ræða hreinskilnislega um vinnu sína. Vagnstjórar skrifa undir trúnaðar­ yfirlýsingu en geta samt sem áður rætt um starf sitt á meðan ekki er um að ræða persónugreinanlegar upplýsingar. Blaðamaður fékk lof­ orð frá stjórnendum Strætó BS um að hvað sem þau segðu myndi á engan hátt hafa áhrif á stöðu þeirra innan fyrirtækisins. Bogdan: „Af hverju er ég strætó­ bílstjóri? Því ég elska að keyra.“ Ewelina: „Ég hætti í Kársnesskóla vegna myglu. Maðurinn minn sagði mér að ég yrði góður strætóbílstjóri. Ég hafði efasemdir, en hann þekkir mig miklu betur en ég sjálf.“ Jenny: „Að keyra er það skemmti­ legasta sem ég geri. Þessi vinnustað­ ur er líka svo þægilegur, við erum ein stór fjölskylda. Allir standa saman, ef eitthvað gerist þá eru allir til í að styðja þig.“ Basilia: „Mig hefur alltaf dreymt um að keyra strætó. Það er ekki gert ráð fyrir því í Nígeríu að konur keyri strætó. Ég vil alltaf vera í vinnunni, mér líður eins og ofurhetju að keyra um á svona risatæki.“ Þið töluðuð bara um aksturinn. Jenny: „Viltu tala um farþegana?“ Ewelina: „Ó, nei.“ Bogdan: „Lífið er of stutt til að vera leiður og reiður allan daginn. Ef við myndum alltaf mæta í vinnuna hugsandi um hvaða ógeð við fáum yfir okkur í dag þá gætum við ekki unnið við þetta.“ Basilia: „Ég þarf að vera gúgúl fyrir ferðamenn, svara af hverju ég er svört, hvernig mér líður að vera svört að aka hvítu fólki. Ég spurði bara á móti hvernig honum liði að vera hvítur að láta svarta konu keyra sig. Það er best bara að brosa. Brosa, bjóða góðan daginn og vona það besta.“ Jenny: „Það eru alveg níutíu og fimm prósent sem fatta alveg út á hvað strætó gengur. Það eru bara þessi fimm prósent.“ Bogdan: „Sumir eiga bara mjög slæman dag og láta það bitna á okkur.“ Unglingsstelpur verstar Hvaða farþegahópur er verstur, svona heilt yfir? Allir: „Unglingsstelpur.“ Ewelina: „Þær færa sig ekki fyrir fólki sem er í forgangi. Þær geta verið ótrúlega pirrandi við að borga, sýna manni ekki símann almennilega og troða honum í and­ litið á manni þegar ég bið um að fá að sjá hann. Eða kasta bara ein­ hverju klinki í boxið og halda að ég sjái það ekki.“ Jenny: „Ég kann að telja, ég veit hvað strætómiði kostar. Í alvör­ unni.“ Ewelina: „Í eitt skipti stoppaði ég fyrir barni með reiðhjól. Og ég sá í speglinum að það voru unglings­ stelpur sem sátu á hjólasvæðinu, hugsaði með mér „Ó, Guð“. Þær voru svo reiðar og með svo mikla stæla þegar ég bað þær að standa upp og færa sig. Þetta er algjörlega óþolandi lið. Strákar vilja frekar halda að þeir séu sniðugir. Ég veit alveg hvenær ég er að horfa á skjáskot af strætómiða og hvenær ekki. En unglingsstelpur eru verstar, þeim tekst að grafa sig inn í mann.“ Eldra fólk fordómafyllra Verðið fyrir einn fullorðinn í strætó er 470 krónur. Mjög reglulega reynir fólk að komast upp með að borga minna. Basilia: „Það hefur alveg komið fyrir að ég hleypi þannig fólki inn án þess að borga rétt. Hver sekúnda skiptir máli. Ég upplifi að það eru Best að brosa bara Um 220 vagnstjórar sjá um að keyra 150 vagna Strætó BS. Alls er um einn af þremur fast- ráðnum vagnstjórum af erlendu bergi brotinn. Fjórir vagnstjórar af erlendum uppruna settust niður með blaðamanni og ræddu um starf sitt. Basilia Uzo er frá Nígeríu. Hún hóf störf hjá Strætó árið 2017. „Ég elska að keyra,“ segir Bogdan Brasoveanu sem er frá Rúmeníu. Hann hóf störf hjá Strætó í október árið 2015. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON BRINK hverjum tíu. En hugsaðu aðeins málið, við reynum okkar besta við að hjálpa öllum og tölum flest mjög góða ensku.“ Bogdan: „Ég svara því neitandi hvort ég tala íslensku, þá hættir fólk oft að spyrja mig.“ Virðist það þá vera þannig að sumir farþegar, sem tala ensku, vilji ekki eiga í samskiptum við vagn- stjóra sem talar ekki íslensku? Basilia: „Fólk horfir á mig og gerir samstundis ráð fyrir því að ég tali ekki íslensku.“ Jenny: „Þetta er alltaf þannig ef maður lítur ekki út fyrir að vera Íslendingur. Ég býð góðan daginn á íslensku og sumir verða mjög ánægðir, ég er samt ekki íslensk.“ Ewelina: „Það er mjög augljóst á mörgum að þeir vilja ekki útlend­ inga á Íslandi. Eins og einn maður á Hlemmi um daginn, hann þurfti hjálp og fór að spyrja mig á íslensku. Ég get átt í einföldum samskiptum á íslensku en hann talaði mjög óskýrt og ég bað hann um að spyrja mig á ensku. Hann snöggreiddist og lýsti því yfir að það ætti ekki að ráða fólk sem talaði ekki íslensku. Ég svaraði honum á íslensku að hann gæti alltaf hringt á skrifstofuna til að kvarta.“ ÞAÐ ER EKKI GERT RÁÐ FYRIR ÞVÍ Í NÍGERÍU AÐ KONUR KEYRI STRÆTÓ. ÉG VIL ALLTAF VERA Í VINNUNNI, MÉR LÍÐUR EINS OG OFURHETJU AÐ KEYRA UM Á SVONA RISATÆKI. Basilia frekar Íslendingar sem reyna það, þeir láta eins og ég sé bara heimskur útlendingur sem skilji ekki hvernig reglurnar eru á Íslandi. Halda að ég sé heimsk.“ Jenny: „Svo eru þeir sem láta mig fá nokkra barnamiða og biðja um skiptimiða. Uuuu, nei. Þú ferð ekki í bíó með tvo barnamiða.“ Þau eru hins vegar sammála um að eldra fólk sé líklegra til að sýna fordóma. Jenny: „Það er oft sem farþegar kvarta eða eru með athugasemdir um að við vagnstjórar tölum ekki allir íslensku. Kannski einn af Ari Brynjólfsson arib@frettabladid.is 1 2 . O K T Ó B E R 2 0 1 9 L A U G A R D A G U R24 H E L G I N ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð 1 2 -1 0 -2 0 1 9 0 5 :5 3 F B 1 0 4 s _ P 0 8 1 K .p 1 .p d f F B 1 0 4 s _ P 0 8 0 K .p 1 .p d f F B 1 0 4 s _ P 0 2 4 K .p 1 .p d f F B 1 0 4 s _ P 0 2 5 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 2 4 0 1 -E 8 5 0 2 4 0 1 -E 7 1 4 2 4 0 1 -E 5 D 8 2 4 0 1 -E 4 9 C 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 8 B F B 1 0 4 s _ 1 1 _ 1 0 _ 2 0 1 C M Y K
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100
Síða 101
Síða 102
Síða 103
Síða 104

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.