Fréttablaðið - 12.10.2019, Page 28

Fréttablaðið - 12.10.2019, Page 28
Kynferðisofbeldi 2. hluti af 5 Karen Halldórsdóttir seg ist hafa ver ið lengi hugsi um hvort hún ætti að segja sögu bróður síns. „Að lokum fannst mér nauðsynlegt að stíga fram til að vekja athygli á þessum hópi aðstandenda brotamanna sem hingað til hefur verið þögn um og enginn ræðir. Saga bróður míns er í raun eymdarsaga,“ segir Karen um Þorstein Halldórsson, sem var dæmdur fyrir rúmu ári fyrir kyn- ferðisbrot gegn ungum dreng. Í síðustu viku var fjallað um upp- lifun aðstandanda þolanda kyn- ferðisof beldis. Móður sem skrifaði opið bréf til dómsmálaráðherra vegna dóttur sinnar sem hafði orðið fyrir alvarlegu of beldi en upplifði fjandsamlegt viðmót hjá lögreglu. Lögregla brást hratt og örugglega við og tilkynnti að ráðinn yrði sál- fræðingur til rannsóknardeildar. Nú er sjónum beint að upp- lifun aðstandenda kynferðisbrota- manna sem upplifa mikla skömm og erfiðleika. Með umfjölluninni vilja aðstandendur Þorsteins ekki skyggja á neyð þolenda of beldis og þörf þeirra fyrir aðstoð og úrræði og finnst erfitt og flókið að stíga fram. Karen tók af skarið úr þeirra hópi. „Alveg frá því að ég man eftir mér hefur hann verið öðruvísi og okkur samdi sjaldan. Hann er 14 árum eldri en ég,“ segir Karen en Þorsteinn er á sextugsaldri. „Hann flutti seint að heiman, hann átti ekki margar kærustur en að lokum kynntist hann ungri yndis- legri konu sem átti einn lítinn son, tæplega tveggja ára strák sem við tókum fagnandi inn í fjölskylduna. Þau saman eignuðust svo þrjú börn með skömmu millibili. Það var mikið basl á þeim strax, bróðir minn var er afar sérlundaður. Þau þurftu reglulega aðstoð og mikið gekk á í heimilishaldinu,“ segir Karen. Konan hafi að lokum farið frá honum. „Það varð mikið los á börnunum við þetta. Árin liðu, bróðir minn átti einhver kærustusambönd sem vörðu skammt og alltaf var bras á honum varðandi að halda vinnu,“ segir Karen og segir bróður sinn hafa haft andfélagslegt viðhorf til vinnu. „Hann sá sig alltaf sem eitthvað merkilegra en það sem honum bauðst miðað við reynslu og aðstæður,“ segir Karen sem seg- ist samt hafa fundið til með honum. „Hann var lánlaus og allt sem hann gerði einhvern veginn mislukkað- ist.“ Miklir erfiðleikar Ógæfan dundi yfir fjölskyldu Þor- steins. Barnsmóðir hans dó sviplega fyrir aldur fram frá fjórum börnum. „Yngsta barnið þeirra var 14 ára gamalt, sá elsti var 25 ára. Þau voru auðvitað miður sín og ekki var hægt Það hreinlega slokknaði líf í augum þeirra Dómur styttur af Landsrétti – önnur ákæra hálfu ári síðar Þorsteinn Halldórsson var dæmdur fyrir að hafa ítrekað tælt til sín dreng með fíkniefnum, lyfjum og gjöfum. Gefið honum peninga, tóbak og farsíma og nýtt sér yfirburði sína til að hafa við hann sam- ræði og önnur kynferðismök. Hann var dæmdur í sjö ára fangelsi en Landsréttur stytti dóminn síðasta vor í fimm og hálfs árs fangelsi. Nú í haust var Þorsteinn ákærður af héraðssaksóknara í öðru máli þar sem honum er gefin svipuð háttsemi að sök gegn barni. Meint brot voru framin bæði fyrir og eftir að það varð fimmtán ára gamalt. Málið hefur verið þingfest fyrir Héraðsdómi Reykjaness. „Saga bróður míns er í raun eymdarsaga,“ segir Karen Elísabet Halldórsdóttir. Bróðir hennar er Þorsteinn Halldórsson sem situr í fangelsi fyrir alvarleg kynferðisbrot. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON BRINK Karen Halldórsdóttir segir frá þeirri stund þegar hún færði börnum bróður síns fréttir sem urðu þeim þungt áfall. Að hann sæti í gæsluvarðhaldi vegna alvarlegra kynferðisbrota. að sjá að bróðir minn gæti hlúð almennilega að þeim. Að lokum treystu börnin hans helst á þann elsta í hópnum sem bjó í Sviss með unnustu sinni og barnungum syni. Hann var þeirra klettur og þau voru afskaplega náin, sérstaklega eftir fráfall móður þeirra. En því miður þá fyrirfór hann sér. Heimurinn ein- faldlega hrundi og allt varð svart. Á þessum tímapunkti skildi ég ekki hvernig systkinin gætu haldið áfram með sitt eigið líf, sorgin var svo mikil. Blóðfaðir þessa drengs tók einnig sitt eigið líf eftir þetta.“ K a ren seg ir hver t og eit t barnanna hafa verið í mikilli örvæntingu. „Og þau reyndu að deyfa sársauka sinn með hverri þeirri leið sem virkaði. Ég get sagt af reynslu að geðdeild Landspítalans er engan veginn fjármögnuð nægi- lega til þess að taka á móti þeim fjölda sem þangað leitar. Ég held að við séum öll sammála um að með- ferðarúrræði eru löngu sprungin og íslenskt samfélag treystir sífellt meira og meira á sjálfsprottin félaga- og stuðningssamtök heldur en eðlilegt er. Kannski þarf betra samstarf geðdeildar og slíkra sam- taka. Þau gætu til að mynda unnið nánar saman.“ Í EINFELDNI MINNI SPURÐI ÉG HVORT HANN HEFÐI VERIÐ TEKINN FULLUR Á BÍL, MÉR DATT EKKERT ANNAÐ Í HUG. EN NEI, ÞESSI ÁGÆTI LÖG- REGLUMAÐUR SAGÐI MÉR AÐ SAKIRNAR VÆRU MUN ALVARLEGRI EN ÞAÐ. Kristjana Björg Guðbrandsdóttir kristjana@frettabladid.is 1 2 . O K T Ó B E R 2 0 1 9 L A U G A R D A G U R28 H E L G I N ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð 1 2 -1 0 -2 0 1 9 0 5 :5 3 F B 1 0 4 s _ P 0 8 4 K .p 1 .p d f F B 1 0 4 s _ P 0 7 7 K .p 1 .p d f F B 1 0 4 s _ P 0 2 1 K .p 1 .p d f F B 1 0 4 s _ P 0 2 8 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 2 4 0 1 -C F A 0 2 4 0 1 -C E 6 4 2 4 0 1 -C D 2 8 2 4 0 1 -C B E C 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 6 A F B 1 0 4 s _ 1 1 _ 1 0 _ 2 0 1 C M Y K
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.