Fréttablaðið - 12.10.2019, Page 38

Fréttablaðið - 12.10.2019, Page 38
Mathús Garða- bæjar leggur áherslu á þægi- legt andrúms- loft. Jólahlaðborðið verður í boði frá 14. nóvember en á næstu dögum er einnig von á nýjum og glæsilegum matseðli. FRÉTTABLAÐIÐ/ERNIR Á kvöldin um helgar verða lifandi tónlistaratriði í gangi í salnum og þar spila nokkrar af skærustu stjörnum landsins. FRÉTTABLAÐIÐ/ERNIR Það er tilvalið að kíkja á Mathúsið í jólastússinu og fá sér eitthvað gott. Mathús Garðabæjar var opnað í maí 2016 og þar er lögð áhersla á þægi­ legt andrúmsloft, góðan mat og þjónustu, sanngjarnt verð og góða aðstöðu fyrir börn. „Það sem gefur okkur kannski sérstöðu er að við erum hér í úthverfi og bæjarfélagið kemur mikið saman hérna hjá okkur,“ segir Agnes Guðmundsdóttir, rekstrarstjóri Mathúss Garða­ bæjar. „Það er líka algengt að fyrirtæki komi með starfsfólk sitt á hlaðborðið til okkar.“ „Já, við erum með fastan kúnna­ hóp Garðbæinga og við bjóðum upp á mjög gott aðgengi og mikið af bílastæðum, þannig að það er alltaf auðvelt að koma og heim­ sækja okkur,“ segir Garðar Aron Guðbrandsson, yfirkokkur Mat­ húss Garðabæjar. „Við bjóðum líka upp á mikil gæði í bæði mat og þjónustu, sérstaklega miðað við verð.“ Hefðbundið en öðruvísi hlaðborð „Við byrjum að bjóða upp á jóla­ kvöldverðarhlaðborð fimmtu­ daginn 14. nóvember og helgina þar á eftir förum við að bjóða upp á jólabröns,“ segir Garðar. „Mánudaginn eftir það byrjar svo jólahádegisverðarhlaðborð. Brönsinn verður í boði um helgar en hádegishlaðborðið verður í boði á virkum dögum.“ „Jólahádegismaturinn verður í raun léttari útgáfa af jólakvöld­ verðinum og hann var rosalega vinæll í fyrra,“ segir Agnes. „Þetta verður svo í boði fram að jólum, til 23. desember. Hádegisverðarhlaðborðið verður í boði á virkum dögum frá 11.30­14.30 og kostar 4.400 krónur og brönsinn er í boði um helgar og kostar 4.900 krónur,“ segir Agnes. „Kvöldverðarhlaðborðið er svo á 8.500 krónur frá sunnudegi til miðvikudags en á fimmtudögum, föstudögum og laugardögum er það á 9.900 krónur.“ „Hlaðborðið verður með hefð­ bundnu sniði og það verða heitir og kaldir réttir í boði, en svo er forréttur og eftirréttur keyrður út á diskum,“ segir Garðar. „Ég myndi segja að réttirnir séu jóla­ legir, en ekki alveg jól út í gegn. Við bjóðum upp á rétti sem eru hátíðlegir, en þeir eru ekki allir hefðbundnir jólaréttir og það gætir til dæmis asískra áhrifa í sumum þeirra. Þannig að það verður mikill jólafílingur í þessu, en þetta verður ekki allt gamli Útgefandi: Torg ehf Veffang: frettabladid.isÁbyrgðarmaður: Jóhanna Helga Viðarsdóttir Sölumaður auglýsinga: Arnar Magnússon, arnarm@frettabladid.is, s. 550 5652, Framhald af forsíðu ➛ jólamaturinn sem allir eru vanir. Auðvitað vill fólk halda í hefðirnar og það eru nokkrir hlutir á mat­ seðlinum sem verða að vera þar, en það er líka gaman að breyta til og prófa eitthvað nýtt.“ Fullkomið í jólastússinu „Ekki má heldur gleyma að á kvöldin um helgar verða lifandi tónlistaratriði í gangi í salnum hjá okkur þar sem nokkrar af skærustu stjörnum landsins ætla að spila,“ segir Agnes. „Það verður því hægt að koma til okkar og sökkva sér alveg í jólastemningu. Það eru líka margar rosa flottar búðir hérna í kringum okkur og það myndast oft skemmtileg jóla­ stemning þegar fólk er að versla og kemur svo við og fær sér eitthvað gott að borða á Mathúsinu.“ „Það eru auðvitað allir vel­ komnir til okkar og við bjóðum líka upp á sérstakt barnaherbergi sem hefur slegið í gegn hjá fjöl­ skyldufólki,“ segir Garðar. „Þar geta börnin svolítið séð um sig sjálf í góðu yfirlæti. Á næstu dögum er líka von á nýjum og glæsilegum matseðli sem verður í gangi fram að jólahlað­ borðinu,“ segir Garðar. „Það þarf því ekki að bíða til 14. nóvember til að koma að prófa eitthvað nýtt og spennandi hjá okkur.“ 2 KYNNINGARBLAÐ 1 2 . O K TÓ B E R 2 0 1 9 L AU G A R DAG U RJÓLAHLAÐBORÐ 1 2 -1 0 -2 0 1 9 0 5 :5 3 F B 1 0 4 s _ P 0 6 7 K .p 1 .p d f F B 1 0 4 s _ P 0 6 6 K .p 1 .p d f F B 1 0 4 s _ P 0 3 8 K .p 1 .p d f F B 1 0 4 s _ P 0 3 9 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 2 4 0 2 -1 9 B 0 2 4 0 2 -1 8 7 4 2 4 0 2 -1 7 3 8 2 4 0 2 -1 5 F C 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 5 B F B 1 0 4 s _ 1 1 _ 1 0 _ 2 0 1 C M Y K
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.