Fréttablaðið - 12.10.2019, Blaðsíða 38
Mathús Garða-
bæjar leggur
áherslu á þægi-
legt andrúms-
loft.
Jólahlaðborðið verður í boði frá 14. nóvember en á næstu dögum er
einnig von á nýjum og glæsilegum matseðli. FRÉTTABLAÐIÐ/ERNIR
Á kvöldin um helgar verða lifandi tónlistaratriði í gangi í salnum og þar spila nokkrar af skærustu stjörnum landsins. FRÉTTABLAÐIÐ/ERNIR
Það er tilvalið að kíkja á Mathúsið í jólastússinu og fá sér eitthvað gott.
Mathús Garðabæjar var opnað í maí 2016 og þar er lögð áhersla á þægi
legt andrúmsloft, góðan mat og
þjónustu, sanngjarnt verð og góða
aðstöðu fyrir börn.
„Það sem gefur okkur kannski
sérstöðu er að við erum hér í
úthverfi og bæjarfélagið kemur
mikið saman hérna hjá okkur,“
segir Agnes Guðmundsdóttir,
rekstrarstjóri Mathúss Garða
bæjar. „Það er líka algengt að
fyrirtæki komi með starfsfólk sitt á
hlaðborðið til okkar.“
„Já, við erum með fastan kúnna
hóp Garðbæinga og við bjóðum
upp á mjög gott aðgengi og mikið
af bílastæðum, þannig að það er
alltaf auðvelt að koma og heim
sækja okkur,“ segir Garðar Aron
Guðbrandsson, yfirkokkur Mat
húss Garðabæjar. „Við bjóðum
líka upp á mikil gæði í bæði mat og
þjónustu, sérstaklega miðað við
verð.“
Hefðbundið en
öðruvísi hlaðborð
„Við byrjum að bjóða upp á jóla
kvöldverðarhlaðborð fimmtu
daginn 14. nóvember og helgina
þar á eftir förum við að bjóða
upp á jólabröns,“ segir Garðar.
„Mánudaginn eftir það byrjar
svo jólahádegisverðarhlaðborð.
Brönsinn verður í boði um helgar
en hádegishlaðborðið verður í
boði á virkum dögum.“
„Jólahádegismaturinn verður
í raun léttari útgáfa af jólakvöld
verðinum og hann var rosalega
vinæll í fyrra,“ segir Agnes. „Þetta
verður svo í boði fram að jólum, til
23. desember.
Hádegisverðarhlaðborðið
verður í boði á virkum dögum frá
11.3014.30 og kostar 4.400 krónur
og brönsinn er í boði um helgar og
kostar 4.900 krónur,“ segir Agnes.
„Kvöldverðarhlaðborðið er svo
á 8.500 krónur frá sunnudegi til
miðvikudags en á fimmtudögum,
föstudögum og laugardögum er
það á 9.900 krónur.“
„Hlaðborðið verður með hefð
bundnu sniði og það verða heitir
og kaldir réttir í boði, en svo er
forréttur og eftirréttur keyrður
út á diskum,“ segir Garðar. „Ég
myndi segja að réttirnir séu jóla
legir, en ekki alveg jól út í gegn.
Við bjóðum upp á rétti sem eru
hátíðlegir, en þeir eru ekki allir
hefðbundnir jólaréttir og það
gætir til dæmis asískra áhrifa í
sumum þeirra. Þannig að það
verður mikill jólafílingur í þessu,
en þetta verður ekki allt gamli
Útgefandi: Torg ehf Veffang: frettabladid.isÁbyrgðarmaður: Jóhanna Helga Viðarsdóttir Sölumaður auglýsinga: Arnar Magnússon, arnarm@frettabladid.is, s. 550 5652,
Framhald af forsíðu ➛
jólamaturinn sem allir eru vanir.
Auðvitað vill fólk halda í hefðirnar
og það eru nokkrir hlutir á mat
seðlinum sem verða að vera þar, en
það er líka gaman að breyta til og
prófa eitthvað nýtt.“
Fullkomið í jólastússinu
„Ekki má heldur gleyma að á
kvöldin um helgar verða lifandi
tónlistaratriði í gangi í salnum
hjá okkur þar sem nokkrar af
skærustu stjörnum landsins ætla
að spila,“ segir Agnes. „Það verður
því hægt að koma til okkar og
sökkva sér alveg í jólastemningu.
Það eru líka margar rosa flottar
búðir hérna í kringum okkur og
það myndast oft skemmtileg jóla
stemning þegar fólk er að versla og
kemur svo við og fær sér eitthvað
gott að borða á Mathúsinu.“
„Það eru auðvitað allir vel
komnir til okkar og við bjóðum
líka upp á sérstakt barnaherbergi
sem hefur slegið í gegn hjá fjöl
skyldufólki,“ segir Garðar. „Þar
geta börnin svolítið séð um sig sjálf
í góðu yfirlæti.
Á næstu dögum er líka von á
nýjum og glæsilegum matseðli sem
verður í gangi fram að jólahlað
borðinu,“ segir Garðar. „Það þarf
því ekki að bíða til 14. nóvember til
að koma að prófa eitthvað nýtt og
spennandi hjá okkur.“
2 KYNNINGARBLAÐ 1 2 . O K TÓ B E R 2 0 1 9 L AU G A R DAG U RJÓLAHLAÐBORÐ
1
2
-1
0
-2
0
1
9
0
5
:5
3
F
B
1
0
4
s
_
P
0
6
7
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
0
4
s
_
P
0
6
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
0
4
s
_
P
0
3
8
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
0
4
s
_
P
0
3
9
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
2
4
0
2
-1
9
B
0
2
4
0
2
-1
8
7
4
2
4
0
2
-1
7
3
8
2
4
0
2
-1
5
F
C
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
5
B
F
B
1
0
4
s
_
1
1
_
1
0
_
2
0
1
C
M
Y
K