Fréttablaðið - 12.10.2019, Page 46

Fréttablaðið - 12.10.2019, Page 46
Verkefnastjóri samskipta heimila og skóla á skóla- og frístundasviði Reykjavíkurborgar Skóla- og frístundasvið Vakin er athygli á stefnu Reykjavíkurborgar um jafnan hlut kynja í störfum og að vinnustaðir borgarinnar endurspegli það margbreytilega samfélag sem borgin er. Skóla- og frístundasvið Reykjavíkurborgar auglýsir starf verkefnastjóra samskipta heimila og skóla á grunnskólahluta fagskrifstofu. Skóla- og frístundasvið veitir börnum og fjölskyldum í borginni heildstæða þjónustu og annast m.a. rekstur 36 grunnskóla, 62 leikskóla, 5 frístundamiðstöðva, starfsemi Námsflokka Reykjavíkur og skólahljómsveita. Grunnskólahluti fagskrifstofu veitir forystu í fagmálum grunnskóla, þróun starfshátta og skólastarfs á grunni grunnskólalaga, aðalnámskrár grunnskóla og stefnu Reykjavíkurborgar. Skrifstofan er hluti af fagskrifstofu SFS, en þar eru einnig skrifstofur leikskóla- og frístundamála. Verkefnastjóri veitir ráðgjöf til foreldra og skóla vegna erfiðra mála sem koma upp og varða samskipti foreldra við skólann og á samstarf við Barnavernd Reykjavíkur, þjónustumiðstöðvar, farteymi, sérdeildir og sérskóla vegna sértækra mála, s.s. hegðunarvanda, ástundunarvanda og fíknivanda. Verkefnastjóri svarar fyrirspurnum um ýmis málefni er varða starfsemi grunnskóla, s.s. kennsluhætti, aðbúnað, aðalnámskrá og fleira er tengist skólastarfi. Næsti yfirmaður er skrifstofustjóri grunnskólahluta fagskrifstofu. Leitað er eftir einstaklingi sem hefur framúrskarandi samskiptahæfni, er lausnamiðaður og hefur skilning á ólíkum þörfum barna og fjölskyldna í flóknum aðstæðum. Umsókn fylgi yfirlit yfir nám og fyrri störf og rökstuðningur fyrir hæfni viðkomandi í starfið. Laun eru samkvæmt samningi Reykjavíkur- borgar og KÍ vegna Skólastjórafélags Íslands eða viðkomandi stéttarfélags. Umsóknarfrestur er til og með 4. nóvember 2019. Starfið er laust nú þegar eða eftir samkomulagi. Umsækjendur eru beðnir um að sækja um starfið á heimasíðu Reykjavíkurborgar, www.reykjavik.is/storf Nánari upplýsingar um starfið veitir Soffía Vagnsdóttir í síma 411-1111 og tölvupósti soffia.vagnsdottir@reykjavik.is Helstu verkefni og ábyrgð • Ráðgjöf til foreldra og skóla. • Sáttamiðlun milli foreldra og skóla í erfiðum málum. • Samstarf við grunnskóla borgarinnar, Barnavernd Reykjavíkur, þjónustumiðstöðvar, farteymi, sérdeildir, sérskóla og aðra aðila vegna sértækra mála. • Þátttaka í starfshópum og teymum er varða málflokkinn á vegum sviðsins. Menntunar- og hæfniskröfur • Kennaramenntun eða önnur uppeldismenntun sem nýtist í starfi. • Framúrskarandi hæfni í samskiptum. • Hæfni og reynsla í sáttamiðlun. • Yfirgripsmikil þekking á starfsemi grunnskóla og sértækri þjónustu við börn og unglinga. • Reynsla af vinnu með börnum og fjölskyldum í flóknum aðstæðum. • Stjórnunarreynsla á sviði uppeldis og menntunar æskileg. • Frumkvæði í starfi, skipulagshæfileikar og sjálfstæð vinnubrögð. Mennta- og menningarmálaráðuneytið auglýsir laust til umsóknar starf safnstjóra Listasafns Einars Jónssonar. Um er að ræða fullt starf. Leitað er að háskólamenntuðum einstak- lingi með reynslu af stjórnun og rekstri og staðgóða þekkingu og reynslu á sviði menningar og lista. Nánari upplýsingar er að finna á vef ráðu- neytisins, menntamalaraduneyti.is Umsóknarfrestur er til og með 1. nóvember 2019 Starf safnstjóra Listasafns Einars Jónssonar EMBASSY CHAUFFEUR Sendiráð Bandaríkjanna auglýsir stöðu bílstjóra lausa til umsóknar. Umsóknarfrestur er til og með 20. október 2019. Frekari upplýsingar er að finna á heimasíðu sendiráðsins: https://is.usembassy.gov/embassy/jobs/ Umsóknir skulu sendar í gegnum Electronic Recruitment Application (ERA) The U.S. Embassy in Reykjavik is seeking an individual for the position of Chauffeur. The closing date for this postion is October 20, 2019. Application instructions and further information can be found on the Embassy’s home page:https://is.usembassy.gov/embassy/jobs/ Applications must be submitted through Electronic Recruitment Application (ERA) GILDI VISTOR ERU ÁREIÐANLEIKI, HREINSKIPTNI OG FRAMSÆKNI Helstu verkefni • Sala og markaðssetning lyfja • Kynningar og fræðslufundir fyrir heilbrigðisstarfsfólk og aðra hagsmunaaðila í samræmi við markmið og áætlanir birgja og deildarinnar • Samstarf við erlenda birgja • Þátttaka í þjálfun og ráðstefnum erlendis Hæfniskröfur • Háskólamenntun af heilbrigðissviði • Menntun á sviði viðskipta, hagfræði eða lýðheilsufræða æskileg • Reynsla af sölu- og markaðsmálum æskileg • Góðir greiningar- og skipulagshæfileikar • Mjög góð enskukunnátta og kunnátta í Norðurlandamáli æskileg • Góð almenn tölvukunnátta • Framúrskarandi samskiptahæfileikar og ánægja af samstarfi við fólk VIÐSKIPTASTJÓRI Vistor leitar að öflugum liðsmanni í sterka heild til að sinna starfi viðskiptastjóra. Um krefjandi starf er að ræða fyrir einn af viðskiptavinum okkar. Umsóknarfrestur er til og með 20. október 2019. Tekið er við umsóknum í gegnum heimasíðu Vistor, www.vistor.is. Umsókn skal fylgja ítarleg ferilskrá og kynningarbréf þar sem fram koma ástæður þess að sótt er um starfið, auk rökstuðnings fyrir því hvers vegna umsækjandi telur sig hæfan til að gegna starfinu. Nánari upplýsingar veita Gunnur Helgadóttir, framkvæmdastjóri s. 535-7160, gh@vistor.is og Pétur Veigar Pétursson, starfsmannastjóri s. 897-1626, petur@veritas.is. Vistor hf. er leiðandi fyrirtæki á sviði markaðssetningar á lyfjum, heilsuvörum og dýraheilbrigðisvörum á Íslandi. Fyrirtækið er samstarfsaðili fjölmargra alþjóðlegra lyfjafyrirtækja og veitir þeim þjónustu við skráningar, sölu- og markaðsmál, klínískar rannsóknir, auk þess að hafa milligöngu um innflutnings- og dreifingarstarfsemi. Grímsnes- og Grafningshreppur Húsvörður við Félagsheimilið Borg, Kerhólsskóla og stjórnsýsluhús Grímsnes- og Grafningshrepps Laust er til umsóknar starf húsvarðar við Félagsheimilið Borg, Kerhólsskóla og stjórnsýsluhús Grímsnes- og Graf- ningshrepps. Um er að ræða fullt starf með sveigjanlegum vinnutíma. Starf húsvarðar felst meðal annars í: • Útleigu og þrifum á Félagsheimili. • Lokun húsanna seinni part dags. • Umsjón/eftirliti með öryggiskerfum húsanna. • Móttöku pantanna og skráningu á útleigu Félagsheimilisins. • Gæta að aðgengi húsanna með tilliti til snjóa og hálku. • Minniháttar viðhaldi á mannvirkjum, umhverfi, áhöldum, tækjum og tæknibúnaði sem tilheyrir Félagsheimilinu. Viðkomandi þarf að vera stundvís, reglusamur og hafa góða færni í almennum samskiptum. Gerð er krafa um að húsvörður hafi aðsetur á Borg og er húsnæði sem getur fylgt starfinu. Umsækjandi þarf að sýna fram á hreint sakavottorð. Laun eru samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga og Félags opinberra starfsmanna á Suðurlandi, FOSS. Umsóknir með upplýsingum um menntun, starfsreynslu og umsagnaraðila berist til sveitarstjóra á netfangið gogg@gogg.is eða á skrifstofu sveitarfélagsins eigi síðar en 24. október n.k. Öllum umsóknum verður svarað. Jafnframt er óskað eftir að umsókn fylgi framtíðarsýn umsækjenda á notkun og útleigu hússins. Frekari upplýsingar um starfið veitir Ingibjörg Harðardóttir, sveitarstjóri í síma 480-5500 eða á netfangið gogg@gogg.is Húsvö ður við Félagsheimilið Borg, Kerhólsskóla og stjórnsýsluhús Grímsnes- og Grafningshrepps Laust er til umsóknar starf húsvarðar við Félagsheimilið Borg, Kerhólsskóla og stjórnsýsluhús Grímsnes- og Grafningshrepps. Um er að ræða fullt starf með sveigjanlegum vinnutíma. Starf húsvarðar felst meðal annar í: ➢ Útleigu og þrifum á Félagsheimili. ➢ Lokun húsanna seinni part dags. ➢ Umsjón/eftirliti með öryggiskerfum húsanna. ➢ Móttöku pantanna og skráningu á útleigu Félagsheimilisins. ➢ Gæta að aðgengi húsanna með tilliti til snjóa og hálku. ➢ Minniháttar viðhaldi á mannvirkjum, umhverfi, áhöldum, tækjum og tæknibúnaði sem tilheyrir Félagsheimilinu. Viðkomandi þarf að vera stundvís, reglusamur og hafa góða færni í almennum samskiptum. Gerð er krafa um að húsvörður hafi aðsetur á Borg og er húsnæði sem getur fylgt starfinu. Umsækjandi þarf að sýna fram á hreint sakavottorð. Laun eru samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga og Félags opinberra starfsmanna á Suðurlandi, FOSS. Umsóknir með upplýsingum um menntun, starfsreynslu og umsagnaraðila berist til sveitarstjóra á netfangið gogg@gogg.is eða á skrifstofu sveitarfélagsins eigi síðar en 24. október n.k. Öllum umsóknum verður svarað. Jafnframt er óskað eftir að umsókn fylgi framtíðarsýn umsækjenda á notkun og útleigu hússins. Frekari upplýsingar um starfið veitir Ingibjörg Harðardóttir, sveitarstjóri í síma 480-5500 eða á netfangið gogg@gogg.is 1 2 -1 0 -2 0 1 9 0 5 :5 3 F B 1 0 4 s _ P 0 5 9 K .p 1 .p d f F B 1 0 4 s _ P 0 5 4 K .p 1 .p d f F B 1 0 4 s _ P 0 4 6 K .p 1 .p d f F B 1 0 4 s _ P 0 5 1 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 2 4 0 2 -0 F D 0 2 4 0 2 -0 E 9 4 2 4 0 2 -0 D 5 8 2 4 0 2 -0 C 1 C 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 4 B F B 1 0 4 s _ 1 1 _ 1 0 _ 2 0 1 C M Y K
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.