Fréttablaðið - 12.10.2019, Page 70
Krummi er með tónleika í kvöld í
Djúpinu. FRÉTTABLAÐIÐ/ÞÓRSTEINN
Tónlistarmaðurinn og veit-ingafrömuðurinn Krummi Björgvinsson er með tónleika
um helgina. Krummi kemur fram
ásamt Bjarna M. Sigurðarsyni en
þeir félagar hafa starfað saman um
árabil, meðal annars í hinni goð-
sagnakenndu dauðarokkshljóm-
sveit Mínus.
Krummi er einstaklega fjöl-
hæfur en tónlistinni, sem hann er
búinn að vera að vinna að, og mun
flytja í kvöld, er lýst sem „þjóðlaga-
tónlist með skírskotun til útlaga-
kántrís og hippatónlistar 6. og 7.
áratugar“ í viðburðalýsingu.
Þá koma einnig fram þeir Daníel
Hjálmtýsson og Karl Henry.
Tónleikarnir fara fram í
Djúpinu, Hafnarstræti 15, og
hefjast þeir klukkan 21. Hægt er að
nálgast miða á tix.is.
Krummi í
Djúpinu
Bryndís Bolladóttir hönnuður hefur gert garðinn frægan um allan heim með hönnun sinni
Kúlu & Línu sem hún hannaði til
betri hljóðvistar í opnum rýmum
og prýðir nú fjölmörg fyrirtæki og
stofnanir hér á landi og ytra.
Kúla og Lína komust í fyrra í
fimm manna úrslit hjá stærsta og
virtasta hönnunartímariti Banda-
ríkjanna, Interior Design Magazine
US, sem er dreift um allan heim.
Þessa dagana stendur tímaritið
fyrir kosningu fyrir Best of Year-
verðlaunin 2019 þar sem Kúla
Glass Bryndísar er tilnefnd.
Bryndís höfðar til þjóðarstolts
Íslendinga og hvetur þá til að styðja
íslenska hönnun í Bandaríkjunum.
„Von mín er að með stuðningi
íslenska fótboltaandans takist
íslenskri hönnun að vinna miklu
stærri andstæðinga en ella,“ segir
Bryndís. „Ég er rosalega þakklát
fyrir að vera á þessum stað við hlið
stærstu fyrirtækjanna á heims-
markaði og væntingar mínar eru
að komast aftur í fimm efstu sætin
svo að ég fái frekari umfjallanir í
stóra hönnunarfrumskóginum.“
Kosning stendur til 18. október.
Þar kýs almenningur á móti dóm-
nefnd sem blaðið skipar og hægt
að kjósa einu sinni á 24 tíma fresti
með því að fara inn á linkinn
https://boyawards.secure-plat-
form.com/a/gallery/rounds/22/
details/29109
Kúla Bryndísar tilnefnd til verðlauna hjá Interior Design Magazine US
Á Októberhátíð er hefð að drekka
mikinn bjór. NORDICPHOTOS/GETTY
Uppruna Októberhátíðar-innar, má rekja til ársins 1810. Þann 12. október það
ár fór fram konunglegt brúðkaup
í borginni München í Þýskalandi.
Öllum íbúum borgarinnar var
boðið til veislu sem þótti heppnast
svo vel að ákveðið var að endur-
taka leikinn að ári. Síðan þá hefur
verið haldin mikil matar- og bjór-
hátíð í München ár hvert. Hefðin
hefur breiðst út og nú eru haldnar
Októberhátíðir um alla Evrópu og
jafnvel víðar.
Aðal Októrberhátíðin er þó eftir
sem áður í München sem laðar
að sér ferðamenn allstaðar að úr
heiminum. Þar er fjöldinn allur
af tjöldum þar sem seldar eru enn
fleiri tegundir af bjór og hægt er
að gæða sér á þýskum veitingum.
Í dag eru liðin 209 ár frá fyrstu
Októberhátíðinni.
Októbergleði
Bryndís undir verkinu Kúlu, svipuðu því sem nú er tilnefnt til verðlauna.
6 KYNNINGARBLAÐ FÓLK 1 2 . O K TÓ B E R 2 0 1 9 L AU G A R DAG U R
1
2
-1
0
-2
0
1
9
0
5
:5
3
F
B
1
0
4
s
_
P
0
7
0
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
0
4
s
_
P
0
6
3
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
0
4
s
_
P
0
3
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
0
4
s
_
P
0
4
2
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 2
4
0
2
-0
1
0
0
2
4
0
1
-F
F
C
4
2
4
0
1
-F
E
8
8
2
4
0
1
-F
D
4
C
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
3
A
F
B
1
0
4
s
_
1
1
_
1
0
_
2
0
1
C
M
Y
K