Fréttablaðið - 12.10.2019, Side 75
ÞETTA VAR BARA EINS
OG ÚT ÚR BÍÓMYND, ÞAÐ
KOM ÞYRLA OG SÓTTI
OKKUR EFTIR AÐ VOPNA-
HLÉ HAFÐI VERIÐ SETT
Á Í KLUKKUTÍMA.
Bókabúð Forlagsins | Fiskislóð 39 | Opið alla virka daga 10–18 | Laugardaga 11–16 | www.forlagid.is
LANDSINS MESTA ÚRVAL BÓKA
PERSÓNULEG OG
ÁHRIFAMIKIL
Sæunn Kjartansdóttir,
sálgreinir og dóttir Ástu,
leyfir minningunum að
streyma fram í leit að
skilningi á mömmu sinni.
Saga Ástu Bjarnadóttur
sem ætíð fór sínar
eigin leiðir.
„Við þurftum til dæmis að skilja
eftir ófríska konu. Hún var með
hríðir en gat ekki fætt barnið því að
líf beinið lokaði fæðingarveginum,
svo að við vissum að hún þyrfti
keisaraskurð. Hún mátti ekki koma
með okkur í þyrluna og við vorum
mjög hrædd um að við værum að
skilja hana eftir til að deyja. En
hún var sem betur fer sótt og fékk
hjálpina sem hún þurfti til að lifa
af og við fengum fregnir af henni,“
segir hún.
Sjálfstæði mikilvægt
Þrátt fyrir að Láru hafi þótt erfitt
að fara frá Suður-Súdan segir hún
það mikla sérstöðu Lækna án
landamæra að samtökin geti tekið
sínar eigin ákvarðanir um það hvar
þeirra sé þörf og hvar ekki. ,,Læknar
án landamæra er ekki rekið á ríkis-
fjármagni og það gefur okkur sjálf-
stæði til ákvarðanatöku. Ef okkar er
ekki þörf á einhverjum stað eða ef
við metum það svo að það sé ekki
öruggt fyrir okkur að vera þar þá
bara pökkum við saman og færum
okkur annað,“ segir Lára.
„Ef hjálparsamtök eru rekin á
fjármagni frá ríkjum þá breytist það
hvernig þau vinna. Þau taka ekki
ákvarðanir sínar alveg sjálf og þau
segja ekki oft frá hörmungunum
sem þau upplifa þar sem hjálpin er
veitt,“ segir hún.
„Við höfum til dæmis verið að
vekja máls á því hvernig ebólu-far-
aldrinum í Lýðræðisríkinu Kongó er
farinn úr böndunum og ástandinu
á Miðjarðarhafinu og Læknar án
landamæra geta sagt þetta af því að
við erum ekki hrædd um að missa
okkar fjármagn eins og mörg önnur
samtök,“ útskýrir Lára.
Sinnti flóttamönnum í Líbanon
Eftir Suður-Súdan fór Lára til Líb-
anons þar sem hún starfað á sjúkra-
húsi sem sinnti sýrlenskum flótta-
mönnum. ,,Mér fannst skrítið og
erfitt að vera í Líbanon því þar voru
svo miklar andstæður í gangi,“ segir
hún.
„Við bjuggum í fínum húsum í
Beirút, starfsfólkið okkar var vel
menntað og um helgar gátum við
farið á ströndina eða á fínan kok-
teilbar en á sama tíma vorum við að
sinna flóttamönnunum frá Sýrlandi
sem eru afar fátækir og lágu algjör-
lega fyrir utan kerfið. Ég varð alveg
pínu reið yfir þessum aðstæðum og
fannst fólkið í landinu ekki alveg
gera sér grein fyrir ömurðinni í
kringum það,“ segir Lára.
Frábært að vera berfætt í drullu
Þegar blaðamaður hitti Láru var
hún nýlega komin til Íslands eftir að
hafa starfað í stærstu flóttamanna-
búðum heims í Bangladess. ,,Þarna
býr um milljón manna við ömur-
legar aðstæður,“ segir hún
„Fólkið er frá Mjanmar en hefur
ekkert ríkisfang sem gerir það að
verkum að það hefur ekki rétt á
menntun til dæmis,“ útskýrir hún.
„Þetta fólk er með þrautseigju
sinni búið byggja upp hálfgerða
borg í f lóttamannabúðunum þar
sem húsin eru byggð úr bambus
og plasti. Við rekum svo sjúkrahús
þarna og fæðingardeild,“ segir Lára.
„Það er alveg magnað að labba
um þessi litlu stræti,“ segir Lára.
„Ég kom þarna á regntímabilinu og
þá er allt í drullu. Af minni reynslu
að dæma er best að vera bara í sand-
ölum við slíkar aðstæður og þegar
það gengur ekki lengur þá er maður
bara berfættur,“ bætir hún við.
„Flestir eru berfættir þarna og það
er ekki bara vegna þess að þau séu
svo fátæk og við þurfum að senda
þeim notaða skó, heldur af því að
það er langbesta leiðin. Svo er svo
margt annað verra í lífinu en að
vera berfættur í drullu. Þegar ég sé
einhver samtök vera að safna skóm
og senda á svona svæði þá hugsa ég
bara að það að lifa lífinu berfættur
getur verið frábært en það að komast
ekki í skóla verður ekkert endilega
betra þótt þú eigir skó,“ segir Lára.
Mikilvægt að taka afstöðu
„Það er svo mikil pólitík í gangi
þarna og Kína og Rússland stjórna
þarna öllu en ef alþjóðasamfélagið
krefðist þess að Mjanmar eða
Bangladess gæfi þessu fólki ríkis-
fang svo það gæti farið í skóla þá
myndi það líklega gerast. Og þó að
til dæmis litla Ísland sé ekki að fara
að bjarga heiminum þá er mikil-
vægt að taka afstöðu og sýna að við
erum ekki bara þjóð sem þegir og
horfir á,“ segir hún.
Starf Láru felur það í sér að hún
veit ekki alltaf hver næsti áfanga-
staður verður þegar hún hefur lokið
verkefnum.
„Núna er ég á leiðinni til Genfar
og svo til Ástralíu,“ segir Lára. „Ég
nýt þess enn að starfa við þetta og
mér líkar vel. Ég veit að ég er ekki að
fara að bjarga heiminum en ég veit
líka að ég er að gera eitthvað gott. En
fyrir mér er þetta bara vinna sem
á vel við mig og ég er góð í henni,“
segir hún.
„Hún er hvorki göfugri né betri
en önnur vinna og enginn með eitt-
hvert svona hetju-„complex“ mun
nokkurn tímann þrífast vel í þessu
starfi og f lestir mannúðarstarfs-
menn þola það ekki þegar það er
sagt að við séum hetjur því að það er
svo margt að og það er mjög margt
sem mætti gera betur þarna eins og
annars staðar,“ segir Lára.
Aðspurð hvað tekur við segist
Lára vera farin að hugsa heim
til Íslands. „Mig langar að koma
heim en það er oft erfitt að fá fólk
til að skilja hvaða reynslu maður
hefur þegar maður hefur unnið í
mannúðarstarfi, enda ekki mik-
ill markaður fyrir slíkt á Íslandi.
Það er þó reynsla sem nýtist á
svo mörgum sviðum enda eru
mannúðarmál mjög þverfaglegt
starf,“ segir hún.
„Ég er orðin örlítið leið á því að
búa í ferðatösku og er nýlega búin
að koma mér upp búslóð. Hér líður
mér eins og ég sé heima en þannig
líður mér þar sem ég þarf ekki að rit-
skoða mig menningarlega. Þar sem
ég skil hvernig hlutirnir virka, veit
hvenær ég er kurteis eða ókurteis og
svo framvegis,“ segir Lára.
H E L G I N ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð 35L A U G A R D A G U R 1 2 . O K T Ó B E R 2 0 1 9
1
2
-1
0
-2
0
1
9
0
5
:5
3
F
B
1
0
4
s
_
P
0
8
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
0
4
s
_
P
0
7
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
0
4
s
_
P
0
1
9
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
0
4
s
_
P
0
3
0
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
2
4
0
1
-B
B
E
0
2
4
0
1
-B
A
A
4
2
4
0
1
-B
9
6
8
2
4
0
1
-B
8
2
C
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
4
A
F
B
1
0
4
s
_
1
1
_
1
0
_
2
0
1
C
M
Y
K