Fréttablaðið - 12.10.2019, Qupperneq 90
Snæbjörn Arngrímsson, f y r r ve r a nd i b ók aú t-gefandi, hlýtur Íslensku ba r nabók averðlau n i n í ár fyrir fyrstu skáld-sögu sína, Rannsóknin á
leyndardómum eyðihússins. Snæ-
björn, sem býr í Danmörku, kom
hingað til lands til að taka á móti
verðlaununum.
Snæbjörn, sem rak um tíma sjö
bókaforlög á Norðurlöndum, gaf út
Harry Potter-bækurnar á Íslandi og
spennusögur Dans Brown í Dan-
mörku. Hann seldi forlögin síðan
eitt af öðru. Það var eftir að hafa
selt það síðasta sem hann sá aug-
lýsingu um Íslensku barnabóka-
verðlaunin og ákvað að spreyta
sig á barnabókaskrifum.
Snæbjörn hefði, vegna nafns
síns og stöðu í bókmenntaheim-
inum, auðveldlega getað fengið
skáldverk eftir sig útgefið hjá
hvaða bókaforlagi sem er. Hann er
spurður hvort það hafi skipt hann
máli að senda handrit í samkeppni
undir dulnefni. „Ég hefði aldrei sent
handrit undir eigin nafni. Ég er viss
um að útgefendur hefðu miskunnað
sig yfir mig sama hvað ég hefði sent
inn og gat ekki hugsað mér það,“
segir hann.
Hann segist aldrei hafa gengið
með skáldadrauma. „Ég var oft
spurður sem forleggjari: Skrifarðu
ekki sjálfur? Ég svaraði því til að
mér dytti það ekki í hug. Ég hef aðal-
lega þýtt en ekki skrifað eigin bók
fyrr en nú. Ég lærði margt á að skrifa
þessa bók, og það er mjög áhugavert
að vera kominn í hlutverk rithöf-
undar í stað útgefanda.“
Maður úr framtíðinni
Snæbjörn segist hafa ákveðnar hug-
myndir um það hvernig barnabók
hann vildi skrifa. „Þetta átti að vera
spennubók fyrir börn, bók sem
væri gjörsamlega ómótstæðileg,
svo grípandi að þau börn sem læsu
hana vildu bara lesa meira. Ég man
sjálfur vel eftir þessari tilfinningu
í gamla daga, þegar maður fann
góðar bækur, hvernig það var að
gefa sig á vald bóklestrinum. Að
sökkva niður í söguheim vegna þess
að bókin sem maður las hafði alveg
dáleitt mann. Ég vildi skrifa bók
sem væri æsispennandi en höfðaði
samtímis til vitsmuna barna sem
lesenda.“
Maðurinn sem hvarf
Aðalpersónurnar eru tvær, stelpan
Milla og strákur sem heitir Guðjón
G. Georgsson. „Ég hafði nokkurn
veginn mótað aðalpersónurnar
í höfðinu þegar ég settist niður
og skrifaði fyrstu setninguna:
Þetta var sumarið þegar Guðjón
G. Georgsson kom í fyrsta sinn til
þorpsins. En hvernig ég ætti að
halda áfram var ég ekki vissi um. Ég
velti mjög vöngum yfir því hvernig
ég gæti gert spennandi sögu með
þessar tvær aðalpersónur.
Svo var það kvöldið þegar ég
hafði skrifað fyrstu setningu bók-
arinnar að ég rakst á blaðagrein
frá The New York Times frá árinu
1976. Þetta var sönn saga um mann
sem hafði gengið inn í Wall Street
með 80 dollara í vasanum og fór að
kaupa hlutabréf. Öll hans viðskipti
heppnuðust, hann keypti og seldi á
réttum tíma. Á fimm dögum keypti
hann og seldi hlutabréf 157 sinnum
og hann græddi stórfé í öllum við-
skiptunum sínum. Á fimmta degi
var hann svo handtekinn af lög-
reglunni, færður til yfirheyrslu og
var spurður hvar hann hefði fengið
innherjaupplýsingar. „Ég kem úr
framtíðinni, ég veit hvað gerist á
morgun,“ svaraði hann. Hann var
settur í fangelsi en leystur úr haldi
næsta dag því ókunnugur maður
kom og borgaði lausnarfé fyrir
hann. Hinn handtekni lét sig síðan
hverfa. Þegar lögreglan fór að leita
að honum og lýsa eftir honum fund-
ust ekki nokkur skjöl um að þessi
maður hefði verið til, það fannst
ekkert um þennan mann. Þessi
saga fannst mér áhugaverð og fór
að rannsaka hvað hefði orðið um
manninn og afraksturinn er í þess-
ari bók.“
Rowling er fyrirmynd
Spurður hvernig tilfinning það hafi
verið að fá verðlaunin segir hann:
„Mér leið mjög vel, ég var hreinlega
hamingjusamur. Ég hef svo gaman
af verðlaunum. Í fyrra sagði ég við
strákinn minn að mig langaði til
að vinna gullverðlaun í einhverju
fyrir áramót. Svo gerðist það ekki.
Hann hafði hins vegar keypt lítinn
gullpening handa mér og gaf mér í
verðlaun fyrir föðurhlutverkið. Það
gladdi mig. Svo fékk ég þessi bók-
menntaverðlaun í ár, mín önnur
gullverðlaun á stuttum tíma.“
Sem útgefandi Harry Potter er
hann spurður hvort Potter-áhrifa
gæti í bókinni og svarar: „Rowling
er mín fyrirmynd í barnabókaskrif-
um, hún er stórkostleg. Og bækurn-
ar um Harry Potter eru mikið afrek
sem hafa haft mikla þýðingu, bæði
aukið bóklestur og sett ný viðmið
um hvað sé góð barnabók. Ég stefni
auðvitað á toppinn en til að komast
þangað þarf ég að halda áfram að
æfa mig, halda áfram að skrifa og
læra handbragð meistarans.“
ÉG VILDI SKRIFA BÓK
SEM VÆRI ÆSISPENN-
ANDI EN HÖFÐAÐI SAMTÍMIS
TIL VITSMUNA BARNA SEM
LESENDA.
Langaði að vinna gullverðlaun í einhverju
Bókaútgefandinn fyrrverandi Snæbjörn Arngrímsson hlýtur Íslensku barnabókaverðlaunin fyrir fyrstu
skáldsögu sína. Maður úr framtíðinni, sönn frétt úr The New York Times, varð kveikja að sögunni.
Rowling er mín fyrirmynd í barnabókaskrifum, hún er stórkostleg, segir Snæbjörn. FRÉTTABLAÐIÐ/ERNIR
Kolbrún
Bergþórsdóttir
kolbrunb@frettabladid.is
BÆKUR
Sláturtíð
Gunnar Theódór Eggertsson
Útgefandi: Vaka Helgafell
Fjöldi síðna: 432
Má eitthvert dýr borða annað dýr?
Eru öll dýrin í skóginum vinir? Eru
þau jöfn eða eru sum dýr krútt-
legri og þar af leiðandi rétthærri en
önnur? Í skáldsögunni Sláturtíð eru
þessi sígildu viðfangsefni heims-
bókmenntanna tekin til skoðunar
út frá dýrasiðfræðilegu sjónarhorni
en einnig er brugðið upp fyndinni
en jafnframt raunsærri mynd af
samtímanum.
Dýraréttindasinninn Sólveig
Boer virðist horfin eftir að hafa
setið af sér dóm í Hollandi fyrir
skemmdarverk í þágu málstaðarins.
Heimildarmyndagerðarmaðurinn
Ásbjörn reynir að hafa upp á henni
vegna myndar sem dýraverndar-
samtök á Íslandi hafa ráðið hann til
að gera. Leitin dregur hann um Evr-
ópu og á slóðir dýraverndarsinna,
mótmæla og hugmyndafræðilegs
ágreinings en hann þarf einnig að
horfast í augu við ýmislegt í sjálfum
sér í leiðinni.
Sláturtíð er fyrsta „fullorðins-
bók“ Gunnars Theódórs Eggerts-
sonar sem hefur áður sent frá sér
bæði barna- og ungmennabækur
og unnið til viðurkenninga og verð-
launa fyrir þær. Hann hefur einnig
nýlokið doktorsprófi þar sem hann
skrifaði um bókmenntir og dýrasið-
fræði og viðfangsefni bókarinnar er
öðrum þræði langt og mikið samtal
um réttindi dýra, dýravernd, öfga-
dýravernd og grænkeralífsstíl. Það
er þó bara annar þráðurinn, hinn
liggur í ýmsar áttir enda er Sláturtíð
marglaga og þétt skáldsaga, lýsingar
á fólki og staðháttum orðmargar og
vel skrifaðar, frásagnarhátturinn
lifandi og kaldhæðinn á köflum og
söguþráðurinn áhugaverður og vel
f léttaður.
Við fylgjum Ásbirni eftir í leit
hans að efni sem passar í kvikmynd
og sjáum söguna með hans augum
sem hins utanaðkomandi gests,
e n h it t u m
h a n n l í k a
fyrir í ýmsum
m e n n s k u m
breysk lei k a ,
eins og raunar
f lestar sögu-
per sónu r na r,
sem aftur vekur
upp upp ýmsar
o r w e l l s k a r
h e i m s p e k i -
spurningar um
af hverju sum dýr
eru merkilegri en
önnur, gæludýr
ha r m r æn n i en
húsdýr, falleg og
klár dýr virðingar-
verðari en ljót og
heimsk dýr, og um mannskepnuna
sem telur sig merkilegri en allt
annað lifandi á jörðinni. Bókin er
fyndin, stundum galsafengin í lýs-
ingum sínum á heimi aktívista og
hvernig þeir athafna sig og reyna að
hafa áhrif á samfélagið en líka beitt
í sjónarhorni sínu á grimmdina og
skeytingarleysið sem menn leyfa
sér þegar kemur að dýrum og vel-
ferð þeirra.
Gunnari Theódóri hefur hér tek-
ist að skrifa skemmtilega og í senn
nístandi skáldsögu um áhugavert
viðfangsefni sem er fengur fyrir þá
sem láta sig velferð dýra, og manna,
varða. Brynhildur Björnsdóttir
NIÐURSTAÐA: Vel skrifuð og
fyndin en um leið áleitin skáld-
saga.
Orwell í Hálsaskógi
Gunnar Theódór Eggertsson. FRÉTTABLAÐIÐ/SIGTRYGGUR ARI
1 2 . O K T Ó B E R 2 0 1 9 L A U G A R D A G U R50 M E N N I N G ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð
1
2
-1
0
-2
0
1
9
0
5
:5
3
F
B
1
0
4
s
_
P
1
0
3
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
0
4
s
_
P
0
9
0
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
0
4
s
_
P
0
0
2
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
0
4
s
_
P
0
1
5
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 2
4
0
1
-A
3
3
0
2
4
0
1
-A
1
F
4
2
4
0
1
-A
0
B
8
2
4
0
1
-9
F
7
C
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
1
B
F
B
1
0
4
s
_
1
1
_
1
0
_
2
0
1
C
M
Y
K