Fréttablaðið - 12.10.2019, Page 92
TVÖFÖLD
VIRKNI
Ný tvöföld virkni sem
veitir hraða og langvarandi
vörn gegn tannkuli
FYLLIR
LOKAR
VERNDAR
STYRKIR
SensiVital+
LEIKHÚS
Sex í sveit
Marc Camoletti
Borgarleikhúsið
Leikstjóri: Bergur Þór Ingólfsson
Íslenskun og staðfærsla: Gísli
Rúnar Jónsson
Leikarar: Jörundur Ragnars-
son, Sólveig Guðmundsdóttir,
Sigurður Þór Óskarsson, Vala
Kristín Eiríksdóttir, Katrín Hall-
dóra Sigurðardóttir og Haraldur
Ari Stefánsson
Leikmynd: Petr Hlousek
Búningar: Stefanía Adolfsdóttir
Lýsing: Þórður Orri Pétursson
Leikgervi: Guðbjörg Ívarsdóttir
Hljóð: Þorbjörn Steingrímsson
Benedikt er í þann mund að skila
eiginkonu sinni, Þórunni, upp í
f lugvél á leið til Egilsstaða. Hug-
myndin er að nýta tækifærið og
skella í sumarbústaðarmatarboð
án hennar; gestir kvöldsins eru hjá-
konan Sóley og vinurinn Ragnar.
En um leið og Þórunn fréttir að
Ragnar er á leiðinni hættir hún
snögglega við f lugferðina, hún er
nefnilega að halda við Ragnar. Sól-
veig, veisluþjónustustarfsmaður
Saxbautans, blandast óvænt inn í
atburðarásina og þannig skapast
kjöraðstæður fyrir að allt fari
fjandans til. Sex í sveit snýr aftur á
stóra svið Borgarleikhússins í nýrri
útfærslu eftir rúmlega tuttugu ára
f jarveru, Bergur Þór Ingólfsson
leikstýrir og Gísli Rúnar Jónsson
endurvinnur handritið.
Enginn afsláttur
Hinum taugaveiklaða Benedikt,
manni með stórar hugmyndir en fá
plön, skilar Jörundur Ragnarsson
af miklum móð. Þá nýtur hann sín
sérstaklega þegar skrúfað er upp í
skrípalátunum. Sólveig Guðmunds-
dóttir leikur Þórunni af öryggi, eins
og hún hafi lítið annað gert en að
leika í försum á ferli sínum. Hún
er í senn munúðarfull og móður-
sjúk sem er frábær blanda fyrir Sex
í sveit. Sigurður Þór Óskarsson, í
hlutverki Ragnars, er sömuleiðis á
heimavelli. Líkamsbeiting hans og
örvænting er sjón að sjá. Samleikur
þeirra er virkilega vel unninn, eins
og reyndar hjá leikhópnum öllum.
Fjölhæfni Katrínar Halldóru Sig-
urðardóttur nýtur sín í hlutverki
hinnar brussulegu Sólveigar. Hér er
enginn afsláttur gefinn og Katrín
Halldóra leggur allt á borðið, norð-
lenski hreimurinn virkar og tíma-
setningar hennar eru óborganlegar.
Sóley, leikin af Völu Kristínu
Eiríksdóttur, mætir eins og glimm-
erhvirfilbylur í boðið. Vala Kristín
er langt komin með að verða hin
fínasta gamanleikkona þrátt fyrir
ungan aldur. Hún er hispurslaus í
túlkun sinni og lætur allt f lakka.
Haraldur Ari Stefánsson mætir á
sviðið þegar hamagangurinn nær
hámarki. Hann leysir hlutverkið
ágætlega og mætir orkustigi Katrín-
ar Halldóru að fullu. Vandamálið er
að norðlenska túlkunin og grodda-
skapurinn bætir litlu við það sem á
undan hefur komið.
Lunkinn með formið
Farsar krefjast handbragðs sem ekki
allir hafa getu til að framkvæma en
Bergur Þór er virkilega lunkinn með
formið, líkt og Gísli Rúnar. Orða-
brölt í bland við almennan mis-
skilning, tyggjónotkun Benedikts
og stöðugar tilfærslur Þórunnar á
forláta vasa skreyta ærslaleikinn á
skemmtilegan máta. En í sýningu
sem tekur tvo klukkutíma byrjar
æsingurinn aðeins of snemma sem
verður til þess að eftir hlé er erfitt að
halda sama hraða, hvað þá að bæta
við. Slíkt er stillingaratriði og allar
líkur eru til þess að sýningin formist
betur með fleiri sýningarkvöldum.
Fagurfræði Sex í sveit er vel
heppnuð. Leikmynd Petr Hlousek er
eins og smíðuð fyrir opnu í Hús og
híbýli, fullkominn leikvöllur fyrir
fólk sem á stærri sjóði en siðferðis-
legt vit. Spurningarmerki má setja
við svefnherbergið á efri hæðinni
sem virðist vera leifar af fyrri hug-
myndavinnu en er aldrei nýtt. Bún-
ingavinna Stefaníu Adolfsdóttur er
stórkostleg og passar glæsilega inn
í umhverfið og er stílfærð á hvern
karakter, fatnaður Þórunnar stend-
ur upp úr. Guðbjörg Ívarsdóttir, sem
sér um leikgervin, á skilið sérstakt
hrós fyrir hárgreiðslu og förðun.
Sex í sveit er hér uppfærð sóma-
samlega með öllum þeim nútíma-
lega subbuskap sem því fylgir. Leik-
arahópurinn sameinast í að koma
samkvæmisklúðrinu til skila. Hér er
á ferðinni strangheiðarleg útfærsla
á klassískum farsa sem heppnast
nákvæmlega eftir uppskriftinni.
Sigríður Jónsdóttir
NIÐURSTAÐA: Farsakennd kvöldstund
sem engan svíkur.
Súrsæt sveitasæla
Leikarahópurinn sameinast í að koma samkvæmisklúðrinu til skila. MYND/GRÍMUR BJARNASON
1 2 . O K T Ó B E R 2 0 1 9 L A U G A R D A G U R52 M E N N I N G ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð
1
2
-1
0
-2
0
1
9
0
5
:5
3
F
B
1
0
4
s
_
P
1
0
1
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
0
4
s
_
P
0
9
2
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
0
4
s
_
P
0
0
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
0
4
s
_
P
0
1
3
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 2
4
0
1
-B
6
F
0
2
4
0
1
-B
5
B
4
2
4
0
1
-B
4
7
8
2
4
0
1
-B
3
3
C
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
3
B
F
B
1
0
4
s
_
1
1
_
1
0
_
2
0
1
C
M
Y
K