Fréttablaðið - 15.10.2019, Page 11
Brimborg Reykjavík
Bíldshöfða 6
Sími 515 7000
Brimborg Akureyri
Tryggvabraut 5
Sími 515 7050
Nýir og notaðir bílar:
Söludeildir eru opnar alla virka daga kl. 9-17
og laugardaga kl. 12-16
SÝNINGARBÍLAR
Á GEGGJUÐU
TILBOÐI!
ford.is
KOMDU STRAX Í DAG!
-245.000 kr.-890.000 kr.
FORD TRANSIT CONNECT
L1 AMBIENTE
1.5 TDCi dísil, 75hö, beinskiptur og 2ja sæta
Verð með aukabúnaði 3.325.000 kr.
Sértilboð 3.080.000 kr. með vsk.
2.483.000 kr. án vsk.
FORD TRANSIT 350
L2H1 TREND SINGLE CAB PALLBÍLL
2.0 TDCi dísil, 130hö, beinskiptur,
3ja sæta, FWD
Verð með aukabúnaði 6.280.000 kr.
Sértilboð 5.390.000 kr. með vsk.
4.346.000 kr. án vsk.
Transit Sýningarbílar TILBOÐ 5x15 20191011.indd 1 11/10/2019 13:31
HANDBOLTI Laugardalshöllin stenst
ekki alþjóðlegar kröfur, gólfflötur-
inn er ekki nógu stór og hefur Hand-
knattleikssamband Íslands, HSÍ,
þurft að reiða sig á velvilja Alþjóða-
handknattleikssambandsins til
að landsleikir megi fara hér fram.
Höllin var vígð 1965 og er þriðja
elsta þjóðarhöll Evrópu. Aðeins
hallirnar í Georgíu og Úkraínu eru
eldri.
Á síðasta stjórnarfundi HSÍ var
tekið fyrir erindi frá Evrópska
handknattleikssambandinu, EHF,
um höllina er varðar stöðu mála.
„Ljóst er að málið er grafalvarlegt
og þolinmæði EHF minnkar með
hverjum deginum,“ segir í fundar-
gerðinni.
Fyrst var fjallað um að Laugar-
dalshöll væri á undanþágu fyrir 30
árum í Morgunblaðinu. Síðan hefur
ekkert vatn runnið til sjávar. Laug-
ardalshöllin er enn þá á undanþágu
og er þolinmæði EHF komin nánast
á endastöð. Síðast þegar það gerðist
hjá EHF bannaði það landsliði Fær-
eyja að spila heimaleiki í Þórshöfn
og fór landsleikurinn fram í Skjern
í Danmörku.
„Við erum ekki akkúrat á sama
stað og Færeyingar voru en það gæti
auðvitað gerst. Okkur hefur verið
bent á að það þurfi eitthvað að fara
að gerast í okkar málum og þetta
geti ekki gengið svona til lengdar.
Það er þó ekki verið að fara loka á
okkur í haust eða næsta vetur en við
uppfyllum ekki þessar kröfur sem
gerðar eru í dag.
Ég hef ekki aðeins verið að horfa
á handboltann í þessu samhengi
heldur aðrar íþróttir líka. Hvernig
hús þarf hér að rísa svo körfubolt-
inn, fimleikar og f leiri séu sáttir –
því þetta kostar mikla peninga. Það
sem hefur gerst er að ríki og borg
hafa rætt um þetta og það er vinna
í gangi innan borgarinnar. En þetta
er samt ekki komið mjög langt,“
benti Guðmundur B. Ólafsson, for-
maður HSÍ, á fyrir um mánuði.
Það er þétt setið um Laugardals-
höllina, hvort sem það er vegna
Eurovision, f lokksþinga, árshátíða
eða annars. Höllin er í mikilli
notkun. Ársreikningur Hallarinnar,
sem er í eigu Reykjavíkurborgar og
Samtaka iðnaðarins, frá 2017 sýnir
að tap var af rekstri félagsins upp á
22 milljónir króna. Heildareignir
námu um þremur milljörðum en
heildarskuldir námu um 2,2 millj-
örðum. Eigið fé nam 667,8 millj-
ónum. Enginn ársreikningur hefur
borist fyrir árið 2018.
benediktboas@frettabladid.is
Þolinmæði EHF fer hratt þverrandi
Guðjón Valur Sigurðsson, einn besti handboltamaður landsins, sagði árið 2015 í samtali við Morgunblaðið aðstæður vera fyrir neðan allar hellur. Guð-
mundur Guðmundsson landsliðsþjálfari sagði við Viðskiptablaðið í fyrra að aðstöðuleysi landsliðsins væri til háborinnar skammar. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON
Stjórn Handknattleiks-
sambandsins tók fyrir
erindi Evrópska hand-
knattleikssambandsins
á síðasta stjórnarfundi
um Laugardalshöll.
Málið er grafalvarlegt
og þolinmæði EHF
er á þrotum.
Laugardalshöll
n Höllin var tekin í notkun
4. desember 1965.
n EHF gerir þær lágmarkskröfur
að íþróttahallir taki að minnsta
kosti 2.000 manns í sæti.
n Undanþága HSÍ snýr aðallega
að öryggissvæðinu. Öryggis
svæðið fyrir aftan mörkin er of
stutt, það eru ekki nema tveir
metrar út í steyptar súlur.
n Gólfflötur er of lítill og aðgengi
blaðamanna, sjónvarpsstöðva
og áhorfenda ekki nægilegt.
n Nú er staðan sú að landsliðið
æfir þar sem það get ur fengið
tíma hverju sinni. Við erum að
tala um ís lenska landsliðið,
flagg skip íþrótt ar inn ar hér á
landi,“ sagði Guðjón Valur í
samtali við Morgunblaðið árið
2015.
n Á Íslandi er langelsta þjóðar
höll í Vestur Evrópu og eftir
46 ár verðum með þá elstu í
Evrópu.
Guðmundur B.
Ólafsson, for-
maður HSÍ.
S P O R T ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð 11Þ R I Ð J U D A G U R 1 5 . O K T Ó B E R 2 0 1 9
1
5
-1
0
-2
0
1
9
0
5
:3
6
F
B
0
3
2
s
_
P
0
2
2
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
3
2
s
_
P
0
1
9
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
3
2
s
_
P
0
1
1
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
3
2
s
_
P
0
1
4
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 2
4
0
4
-2
D
B
4
2
4
0
4
-2
C
7
8
2
4
0
4
-2
B
3
C
2
4
0
4
-2
A
0
0
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
4
A
F
B
0
3
2
s
_
1
4
_
1
0
_
2
0
1
C
M
Y
K