Fréttablaðið - 15.10.2019, Side 28

Fréttablaðið - 15.10.2019, Side 28
Sjöfn segist hafa fengið prjónaáhugann í kringum tólf ára aldurinn en móðir hennar var mikil prjóna-kona og hannaði meðal annars uppskriftir fyrir prjónablaðið Ýr. „Í einu kennara- verkfallinu á menntaskólaárunum fannst mér ég þurfa að hafa eitthvað að gera og datt í hug að prjóna mér peysu. En eins og mitt nánasta fólk veit þá kann ég ekki að fara eftir uppskriftum svo ég fór í garnbúðina í hverfinu, keypti garn og prjóna og spurði afgreiðslukonuna: „Hvernig prjóna ég svo peysu?“ Svo rölti ég reglulega niður í búð til að fá aðstoð við það sem ég ekki skildi. Áður en ég vissi af var ég farin að hjálpa vinkonum að prjóna sér peysur og eftir verkfallið skipti ég yfir á hönnunar- og textílbraut í FB. Þar útskrifaðist ég með toppein- kunnir en á þeim tíma sá ég ekki fyrir mér að geta framf leytt mér sem prjónakona svo ég fór í háskóla- nám og kláraði uppeldis- og mennt- unarfræði, bæði BA- og MA-próf, og prjónarnir fóru í biðstöðu.“ Eins og hebreska fyrir mér Það var svo árið 2015 þegar Sjöfn gekk með sitt annað barn að hún tók prjónana aftur upp af fullum krafti. „Ég reyndi við uppskriftir, bæði á dönsku og á íslensku, en þetta er bara eins og hebreska fyrir mér. Endalausar skammstafanir og allt- af gert ráð fyrir því að maður kunni allt. Á endanum gafst ég upp og fór að prjóna upp úr höfðinu á mér. Einn daginn spurði Grétar, maðurinn minn, mig hvers vegna ég gerði ekki uppskriftir að f lík- unum sem ég var að prjóna. Í fyrstu fannst mér þetta galin hugmynd enda kunni ég ekkert að skrifa upp- skriftir en ákvað svo að taka þessari áskorun og prófaði að gera eina upp- skrift. Hún heppnaðist vel miðað við litla sem enga þekkingu á því sviði.“ Uppskriftirnar eru nú orðnar yfir hundrað talsins og Sjöfn segir þekk- inguna hafa aukist dag frá degi. „Ég Hannar prjónauppskriftir á mannamáli Sjöfn og Grétar eru bæði í fullu starfi við netverslunina sem fær um 30 til 40 þúsund heimsóknir mánaðarlega og afgreiddu í síðustu viku pöntun númer 25 þúsund. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON BRINK Í dag klæðist nánast hvert einasta íslenskt mannsbarn heimaprjón- uðu. Sjöfn Kristjánsdóttir segist aldrei hafa getað farið eftir uppskriftum en hannar núna sjálf aðgengilegar uppskriftir fyrir aðra og hefur hönnun hennar slegið í gegn. smíða mínar uppskriftir að mestu leyti út frá sjálfri mér. Með tímanum sá ég hvað það var sem mér fannst vanta fyrir til dæmis óvana prjónara og það var að leiða þá í gegnum ferlið frá upphafi til enda, hafa góðar og ítarlegar útskýringar á hverju skrefi fyrir sig.“ Allir í heimaprjónuðu Sjöfn selur uppskriftirnar í gegnum vefsíðu sína stroff.is og segir við- brögðin hafa verið góð frá fyrsta degi. „Þegar ég byrjaði var ekki mikið framboð af svona uppskrift- um og þær uppskriftir sem ég hafði prjónað eftir eða reynt að prjóna eftir voru torlesnar og f lóknar í framsetningu. Mig langaði að koma með uppskriftir á mannamáli, uppskriftir sem f lestir geta lesið sig í gegnum án þess að vera þaul- vanir prjónarar. Viðskiptahópurinn okkar er orðinn mjög stór og aldurs- bilið mjög breitt. Það er sérstaklega gaman þegar maður rekst á Insta gram-prófíla hjá þekktu og efnilegu ungu íslensku fólki sem er að pósta myndum af f líkum sem prjónaðar eru eftir mínum uppskriftum. Nýlega sá ég að okkar allra f lottasta Salka Sól er farin að prjóna og prjónar eftir mínum uppskriftum. Það gleður mig mikið að sjá hversu margir prjóna eftir mig og segir mér að ég sé að gera eitthvað rétt.“ Sjöfn segir prjónaflíkur sannar- lega vera að sækja í sig veðrið. „Það er nánast hvert einasta íslenska mannsbarn í heimaprjónuðum fötum. Ekki bara peysum heldur samfellum, buxum, stuttbuxum, göllum, húfum, vettlingum og fleiru. 1 5 . O K T Ó B E R 2 0 1 9 Þ R I Ð J U D A G U R20 L Í F I Ð ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð LÍFIÐ 1 5 -1 0 -2 0 1 9 0 5 :3 6 F B 0 3 2 s _ P 0 2 9 K .p 1 .p d f F B 0 3 2 s _ P 0 2 8 K .p 1 .p d f F B 0 3 2 s _ P 0 0 4 K .p 1 .p d f F B 0 3 2 s _ P 0 0 5 K .p 1 .p d f A u to m a tio n P la te re m a k e : 2 4 0 4 -2 8 C 4 2 4 0 4 -2 7 8 8 2 4 0 4 -2 6 4 C 2 4 0 4 -2 5 1 0 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 3 B F B 0 3 2 s _ 1 4 _ 1 0 _ 2 0 1 C M Y K

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.