Fréttablaðið - 15.10.2019, Side 29
ÞAÐ ER OFTAST
MIKIÐ AÐ GERA HJÁ
OKKUR OG VINNUDAGURINN
ENDAR OFT EKKI FYRR EN
LANGT YFIR MIÐNÆTTI. HÉR ER
LÍKA UNNIÐ ALLAR HELGAR
MILLI ÞESS SEM VIÐ SKIPTUM Á
BLEIUM, LEIKUM VIÐ BÖRNIN
OG SINNUM VINUM OG FJÖL-
SKYLDU
Synirnir Ari
Sjafnar og Kári
Sjafnar eru
duglegir að sitja
fyrir í hönnun
móður sinnar.
Nýverið fór
Sjöfn að bjóða
upp á uppskrift-
ir að fullorðins
peysum enda
séu ekki allir að
prjóna á börn.
Það sama má segja um fullorðins
flíkurnar og peysur á unglingana.“
Langur vinnudagur
Litla hugmyndin er nú orðin að
fyrirtæki sem Sjöfn rekur ásamt
unnusta sínum Grétari Karli og eru
þau bæði í fullu starfi við rekstur-
inn. „Í netversluninni seljum við
prjónauppskriftir, hágæða garn,
prjóna, dúska, eina prjónabók og
leðurmerki til að skreyta flíkurnar
og sendum um allt land og Norður-
löndin á hagstæðu verði. Íslenska
síðan fær núna í kringum 30 til 40
þúsund heimsóknir mánaðarlega.
Ég sé alfarið um að hanna,
prjóna, skrifa uppskriftir og taka
myndir. Grétar sér um fjármálin,
auglýsingarnar, samskipti við lager
og allt annað sem fellur til. Það er
oftast mikið að gera hjá okkur og
vinnudagurinn endar oft ekki fyrr
en löngu eftir miðnætti. Hér er líka
unnið allar helgar milli þess sem
við skiptum á bleium, leikum við
börnin og sinnum vinum og fjöl-
skyldu,“ en börnin eru þrjú og sá
yngsti aðeins ellefu mánaða.
„Við reynum að draga mörkin
við svefnherbergið, það er að segja
að þegar við erum komin upp í rúm
sé vinnudegi lokið en stöndum nú
samt ekki alltaf við það og erum
að svara tölvupóstum eftir að við
leggjumst á koddann,“ viðurkennir
Sjöfn.
Þýða á önnur tungumál
Þau Sjöfn og Grétar opnuðu
snemma í ferlinu einnig netverslun
á dönsku og létu þýða allar upp-
skriftirnar. „Því miður erum við
ekki með virkan þýðanda eins og
er, en erum að ganga frá samkomu-
lagi við eina góða svo danska síðan
fer aftur á fullt von bráðar. Þýðandi
þarf nefnilega að hafa bæði tungu-
málin á hreinu sem og prjóna-
lingóið, eða prjónískuna eins og við
köllum þetta hér heima.
Við erum líka spennt fyrir því
að þýða yfir á þýsku og norsku
en þar sem við erum með einn 11
mánaða gorm heima og erum bara
tvö í þessu þá er tíminn af skornum
skammti. Við komum til með að
hjóla í þetta þegar Kári litli byrjar
á leikskóla.“
Kennir algjörum byrjendum
Eins og fyrr segir hefur barnafatn-
aðurinn slegið í gegn og nýverið
bættust fullorðins peysur við en
Sjöfn vildi ná til þeirra sem ekki
eru að prjóna á börn. „Ég finn oft
peysur í búðum sem eru fullkomnar
í sídd en of víðar eða með fullkomið
mynstur en of stuttar og þar fram
eftir götunum. Núna hanna ég það
snið sem mig langar í og veit að
fellur vel í kramið hjá mínum fylgj-
endum.“
Nýverið bætti Sjöfn einnig við
prjónanámskeiðum. „Með mér í
því er Andrea Ida Jónsdóttir, leikari,
áhrifavaldur og viðburðastjóri. Við
erum með námskeið fyrir algjöra
byrjendur þar sem við kennum
grunninn í prjóni, að fitja upp,
prjóna slétt og brugðið, fella af, lesa
uppskrift og mæla prjónfestu. Svo
höfum við verið með húfunámskeið
og tvö peysunámskeið en þá tökum
við ákveðnar peysur fyrir og lærum
að prjóna eftir þeim uppskriftum.
Þetta hefur gengið rosalega vel
og nemendur verið yfir höfuð
mjög ánægðir með námskeiðin,“
segir Sjöfn að lokum en það er svo
sannarlega ýmislegt á prjónunum
á næstunni hjá þeim hjúum.
bjork@frettabladid.is
Fyrir börn frá 3 ára og uppúr!
– S.J. Fréttablaðið
– DV
„Lífið er yndisleg sýning !“
– S.B.H. Morgunblaðið
„Það er allt fallegt við þessa sýningu.
Allar stjörnurnar í húsinu !“
– G.S.E. Djöflaeyjan
Sýningin sem hefur farið sigurför
um heiminn snýr aftur í Tjarnarbíó!
Sun . 13 . okt kl . 13 00
Sun . 20 . okt kl . 13 00
Sun . 27 . okt kl . 13 00
Sun . 03 . NOV kl . 13 00
Barnasýning ársins 2015 !
Miðasala á tix.is og í Tjarnarbíó
Í uppsetningu Leikhússins 10 fingur sem sló í gegn með leikritið Skrímslið litla systir mín
Leikarar : Sólveig Guðmundsdóttir & Sveinn Ólafur Gunnarsson Listrænir stjórnendur : Charlotte Bøving & Helga Arnalds
L Í F I Ð ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð 21Þ R I Ð J U D A G U R 1 5 . O K T Ó B E R 2 0 1 9
1
5
-1
0
-2
0
1
9
0
5
:3
6
F
B
0
3
2
s
_
P
0
2
9
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
3
2
s
_
P
0
2
8
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
3
2
s
_
P
0
0
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
3
2
s
_
P
0
0
5
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
2
4
0
4
-2
8
C
4
2
4
0
4
-2
7
8
8
2
4
0
4
-2
6
4
C
2
4
0
4
-2
5
1
0
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
3
B
F
B
0
3
2
s
_
1
4
_
1
0
_
2
0
1
C
M
Y
K