Fréttablaðið - 26.10.2019, Blaðsíða 2
AKUREYRI Akureyrarstofa safnar nú
hugmyndum um notkun á Sigur-
hæðum, húsi Matthíasar Jochums-
sonar, en mikil reiði blossaði upp
eftir að bæjarstjórn tilkynnti að til
stæði að selja húsið.
„Við erum sannfærð um að Sigur-
hæðir eigi að vera menningarsetur
og að heiðra ætti minningu þjóð-
skáldsins Matthíasar með því að
hafa þarna lifandi starfsemi,“ segir
Karl Ágúst Úlfsson, formaður Rit-
höfundasambands Íslands, en sam-
bandið sendi inn athugasemdir til
Akureyrarstofu.
Karl segir að til dæmis gætu
Sigurhæðir nýst sem starfsaðstaða
fyrir rithöfunda, en um áratuga-
skeið þjónaði húsið þeim tilgangi,
og höfðu rithöfundar þar einnig
gistiaðstöðu. Síðan hefur það lagst
af og engin starfsemi verið í húsinu
frá árinu 2016.
Að mati Karls væri óskandi
að húsið yrði að föstum punkti
í menningarstarfsemi bæjarins.
„Við óttumst að ef húsið verður selt
á opnum markaði rofni þessi menn-
ingartengsl. Sá sem myndi kaupa
húsið yrði ekki skuldbundinn til
að sinna neinum menningarlegum
skyldum,“ segir hann. „En Akureyri
er mikill menningarbær og ég hef
trú á því að bærinn vilji halda reisn
á því sviði.“ Þetta kristallist í því að
margir hafi látið í sér heyra og sé
ekki sama um húsið. – khg
Við óttumst að ef
húsið verður selt á
opnum markaði rofni þessi
menningartengsl.
Karl Ágúst Úlfs-
son, formaður
Rithöfundasam-
bands Íslands
Það er mikill heiður
að verða fyrir
valinu fyrir hönd Evrópu.
Arnar Davíð Jónsson
Veður
Hæg norðlæg eða breytileg átt
í dag, en 8-13 við SA-ströndina
framan af. Víða léttskýjað, en
dálítil él NA-lands fram eftir degi.
Frost 0 til 9 stig, kaldast inn til
landsins. SJÁ SÍÐU 38
VERÐ FRÁ 499.900 KR.
NÁNAR Í SÍMA 585 4000 EÐA Á UU.IS
Á MANN M.V. 2 FULLORÐNA
5.-15. APRÍL 2020
EGYPTALAND
Heilsurækt í hádeginu
Heilsa og líkamsrækt er ekki háð aldri, kyni eða líkamsástandi, heldur ekki staðsetningu, veðri eða vindum. Starfsfólk sem starfar í og við mið
bæ Reykjavíkur iðkaði líkamsrækt á Arnarhóli í hádeginu í gær. Lét það ekki hita við frostmark eða napra norðanátt á sig fá. Má gera ráð fyrir
að hádegishreyfingin brjóti upp vinnudaginn og veiti útrás fyrir streitu sem á það til að leggjast yfir vinnandi fólk. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON BRINK
Óttast að tengsl
rofni við sölu
KEILA Íslendingurinn Arnar Davíð
Jónsson verður fulltrúi Evrópu
þegar úrslitin á heimstúrnum í keilu
fara fram í Kúveit þann 7. nóvember
næstkomandi. Arnar, sem æfir og
keppir í Svíþjóð, varð fyrir valinu
þegar Keilusamband Evrópu átti
að tilnefna keppanda og er einn
sex þátttakenda sem eru búnir að
tryggja sér þátttökurétt. Skiljanlega
var Arnar, sem var valinn keilari
ársins 2018 á Íslandi, hrærður yfir
útnefningunni en á sama tíma stolt-
ur og spenntur fyrir því að keppa í
Kúveit í næsta mánuði.
„Alþjóða keilusambandið (e.
World Bowling Federation) heldur
þessi úrslit á hverju ári í lok tíma-
bilsins á heimstúrnum og yfirleitt
hafa bara þrír keppt til úrslita en í ár
ákvað formaður heimssambands-
ins að bjóða þremur til viðbótar
í bæði karla- og kvennaf lokki. Fá
inn keppendur frá Evrópu, Asíu og
Suður-Ameríku, annars hefðu þetta
bara verið Ameríkanar. Þá hafði
Keilusamband Evrópu samband
við mig því þeir vildu velja þann
keilara sem var stigahæstur á Evr-
ópumótaröðinni sem ég var þá og
er enn þann dag í dag,“ segir Arnar
glaðbeittur. „Það er mikill heiður
að verða fyrir valinu fyrir hönd
Evrópu og vera búinn að tryggja
sér þátttökurétt. Það var ekki erfitt
að segja já við þessu.“ Arnar er full-
trúi Evrópu í karlaflokki á mótinu
þrátt fyrir að hann sé að keppa í ein-
staklingsíþrótt. „Ég er að fara fyrir
Evrópu en ég er auðvitað að keppa
fyrir mína hönd.“
Arnar stefnir á að keppa meira í
Bandaríkjunum á næsta ári þar sem
risamótin fara fram.
„Það er erfitt að segja hvort þetta
sé stærsta sviðið í keilu. Að mínu
mati er US Open stærsta mótið í
heiminum, ef þú nærð þar inn ertu
kominn á stærsta sviðið en í Kúveit
verða bestu keilarar heimsins sam-
ankomnir sem eru búnir að vinna
sér þátttökurétt þarna. Þeir bestu
Heiður að vera valinn
Evrópska keilusambandið valdi Arnar Davíð Jónsson til þess að keppa í úr
slitunum á heimstúrnum í keilu sem fara fram í Kúveit í byrjun nóvember.
Arnar keppti fyrir hönd ÍR á Reykjavíkurleikunum. MYND/KEILUSAMBANDIÐ
á US Open verða í Kúveit svo að
þetta er ekki langt frá því,“ segir
Arnar enn fremur, aðspurður
hvort þetta væri stærsta sviðið
sem keilarar gætu komist á.
Arnar tók þátt í tveimur mótum
á heimstúrnum sjálfum, einu í Sví-
þjóð skammt frá þeim stað þar sem
hann er búsettur og öðru í Taílandi.
„Ég er aðeins búinn að kynnast
leikmönnum á túrnum á þessum
tveimur mótum sem ég hef farið á
og er búinn að skoða verðandi and-
stæðinga mína. Þetta verður spenn-
andi,“ segir Arnar.
kristinnpall@frettabladid.is
SAMFÉLAG Rétturinn til að gleymast
á við um stórar leitarvélar eins og
Google, en ekki Landsbókasafnið.
Örn Hrafnkelsson, sviðsstjóri varð-
veislusviðs Landsbókasafns, hefur
fengið margar fyrirspurnir frá
Íslendingum á síðustu árum sem
vilja fá að gleymast í tengslum við
ný persónuverndarlög.
„Við höfum fengið fyrirspurnir í
þó nokkur ár. Íslendingar hafa beðið
um að fá að gleymast,“ segir Örn.
Landsbókasafnið er með samn-
ing við útgefendur dagblaða um að
varðveita öll gögn.
„Við geymum allt og fjarlægjum
ekkert,“ segir Örn. „Við höfum ekki
heimild til að ritskoða efni. Ekkert
fer út og við felum ekkert, annars
værum við að ritskoða.“
Íslenskur sagnfræðingur segir
gögn um íslenska nýnasista hverfa
af netinu.
– ilk / Sjá nánar á frettabladid.is
Landsbókasafn
gleymir engum
2 6 . O K T Ó B E R 2 0 1 9 L A U G A R D A G U R2 F R É T T I R ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð
2
6
-1
0
-2
0
1
9
0
4
:4
1
F
B
0
8
8
s
_
P
0
8
7
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
8
8
s
_
P
0
7
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
8
8
s
_
P
0
0
2
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
8
8
s
_
P
0
1
5
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
2
4
1
6
-9
1
9
C
2
4
1
6
-9
0
6
0
2
4
1
6
-8
F
2
4
2
4
1
6
-8
D
E
8
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
1
B
F
B
0
8
8
s
_
2
5
_
1
0
_
2
0
1
C
M
Y
K