Fréttablaðið - 26.10.2019, Blaðsíða 82
KOMIN Í BÍÓ
MEÐ ÍSLENSKU OG ENSKU TALI
FRÁBÆR
SKEMMTUN
FYRIR ALLA
FJÖLSKYLDUNA
Hú n er með um hún tvö hundruð þúsund fylgjendur á samsfélagsmiðl-inum Instagram. Ása Steinarsdóttir,
ljósmyndari og áhrifavaldur, er
nýkomin úr tveggja vikna ferða-
lagi um Mongólíu, en að hennar
sögn er hún að lifa lífinu sem hana
alltaf dreymdi um; að fá að ferðast
um heiminn. Hún virðist mjög auð-
mjúk yfir velgengninni, en talar
beint út og er hreinskiptin um það
hlutskipti að vera áhrifavaldur.
Oft mikil vinna
„Ég myndi jú alveg segja að ég flokk-
ist sem áhrifavaldur,“ segir Ása
sem er meðvituð um þá neikvæðu
umræðu sem fylgir oft titlinum.
„Ég væri samt ekki að fá öll þessi
ótrúlegu tækifæri ef það væri ekki
fyrir samfélagsmiðlana. En mér
hefur oft fundist gott að kalla mig
fyrst og fremst ljósmyndara í þess-
um heimi, en eins skrýtið og það er
að segja það þá er það smá til að fá
meiri virðingu. Að vera stelpa í þess-
um heimi og fá öll þessi tækifæri til
að vinna með stórum fyrirtækj-
unum þá þarf maður smá að grípa
í þetta, að ég sé líka ljósmyndari og
legg mikla vinnu í það.“
Dugnaður Ásu og ljósmynda-
hæfileikar hafa komið henni langt.
Henni berst fjöldinn allur af til-
boðum um samstarf um allan heim
og hefur sú staðreynd hve fær hún er
í ljósmyndun haft mikil áhrif þar á.
„Svo í bland er þetta líka þetta
týpíska samfélagsmiðlalíf, maður
auglýsir og margt sem maður setur
fram er auðvitað bara markaðssetn-
ing en að baki henni liggur oft mikil
vinna og allt er útpælt.“
Flestar ferðirnar sem Ása deilir
með fylgjendum sínum eru farnar
í samstarfi við aðila sem vilja vekja
athygli og áhuga á áfangastaðnum.
Stundum er hún þó ráðin fyrst og
fremst sem ljósmyndari.
„Ég hef til að mynda verið að ljós-
mynda tónlistarhátíðir. Stundum er
þetta líka fyrir vörumerki, eins og
mér var boðið í Alpana að mynda
fyrir Audi. Mér var boðið í Mong-
ólíuferðina fyrst og fremst vegna
þess að ég er áhrifavaldur. Þýskur
strákur var að stofna fyrirtæki og
bauð ellefu öðrum áhrifavöldum til
Mongólíu til að vekja athygli á ferð-
unum. Hann er sjálfur með stóran
fylgjendahóp og er í raun mjög snið-
ugur, því hann veit alveg að þetta
virkar. Flestir af þeim sem voru með
mér í ferðinni eru með fleiri en hálfa
milljón fylgjenda. Þannig að saman-
lagt er þetta gífurlegur fjöldi fólks
sem hann nær til í gegnum það að
einstaklingarnir birti myndir úr
ferðinni á Instagram.“
Svipar smá til Íslands
Hópurinn keyrði í gegnum Mong-
ólíu á jeppum en Ása segir nánast
enga vegi vera í landinu, þorri
keyrslunnar hafi verið utanvegar.
„Minn ferill byrjar svolítið á því
að ég hef alltaf haft svo ótrúlega
mikinn áhuga á því að ferðast. Eftir
háskólanám vann ég eins og brjál-
æðingur til að geta farið í þrettán
mánaða heimsreisu. Þá fór ég meðal
annars til Mongólíu, þannig að það
er mjög áhugavert að koma þangað
aftur fimm árum seinna. Það er
mögulega ástæðan fyrir því að hann
vissi af mér því að það eru ekki endi-
lega margir að deila myndum frá
Mongólíu. En þetta hófst sem sagt
allt á mínum eigin vegum,“ segir Ása
en eins og áður kom fram hefur elja
hennar margborgað sig.
Ása segir Mongólíu stundum
minna hana á Ísland, nema bara
hundrað ár aftar í tíma.
„Það eru nánast engir vegir eins
og ég sagði áður, og ekki góð net-
tenging þannig að það var mjög
áhugavert að vera í hópi ellefu
Auðmjúkur
áhrifavaldur
Ása hefur alltaf haft brennandi áhuga
á því að ferðast. Hún er áhrifavaldur en
viðurkennir að hún sé meðvituð um þá
neikvæðu ímynd sem fylgir því. Elja hennar
og ljósmyndahæfileikar hafa borgað sig, því
í dag ferðast hún um allan heim.
Ása dvaldi í tvær vikur í Mongólíu með ellefu öðrum áhrifavöldum.
Ása segist einstaklega þakklát að fá að upplifa ferðadrauma sína rætast.
Ítarlegra viðtal og myndir úr
ferðalagi Ásu er að finna á
frettabladid.is.
áhrifavalda sem höfðu lítinn sem
engan aðgang að netinu í tvær
vikur. En ég held að það hafi verið
okkur líka mjög hollt. Þetta opnaði
augu mín fyrir mörgu. Ég grínast
stundum í fjölskyldunni minni með
að ef ég eignast börn muni ég senda
þau til Mongólíu, bara eins og fólk
sendi áður börn í sveit,“ segir Ása
hlæjandi en bætir svo við: „Þarna
sér maður hvernig alvöru líf er, þau
lifa ekki af náttúrunni heldur lifa í
samlyndi við hana.“
Flestir íbúar landsins búa í
tjöldum sem kallast Ger, en það
getur verið allt að fjörutíu stiga
frost að vetri til í landinu en þegar
Ása dvaldi þar var oftast um fimm-
tán stiga frost. Á meðan á dvölinni
stóð gisti Ása oftast í slíku tjaldi, en
þegar hún fór í fyrra skiptið gisti
hún stundum undir berum himni.
Matarmenningin er gjörólík þeirri
íslensku að sögn Ásu.
„Þau lifa fyrst og fremst á kjöti og
mjólkurvörum, þetta var smá erfitt
fyrir mig. Þarna var geitum slátrað
nánast fyrir framan mann og öllu
skellt í pott, innyflunum líka. Svo
var bara sett smá salt og pipar.
Eitt skiptið sáum við geit drepna
fyrr um daginn og um kvöldið
var hún orðin að geitadumplings.
Það er svo magnað hvað við erum
orðin ótengd náttúrunni að finn-
ast svona erfitt að sjá dýr drepið
en samt borðum við kjöt. Ég létt-
ist alltaf þegar ég fer til Mongólíu,“
segir Ása, sem mælir þó ekki beint
með því að fólk skelli sér til landsins
einvörðungu til að komast í kjólinn
fyrir jólin. steingerdur@frettabladid.is
ÞARNA VAR GEITUM
SLÁTRAÐ NÁNAST
FYRIR FRAMAN MANN OG ÖLLU
SKELLT Í POTT, INNYFLUNUM
LÍKA. SVO VAR BARA SETT SMÁ
SALT OG PIPAR.
2 6 . O K T Ó B E R 2 0 1 9 L A U G A R D A G U R46 L Í F I Ð ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð
LÍFIÐ
2
6
-1
0
-2
0
1
9
0
4
:4
1
F
B
0
8
8
s
_
P
0
8
2
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
8
8
s
_
P
0
7
9
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
8
8
s
_
P
0
0
7
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
8
8
s
_
P
0
1
0
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 2
4
1
6
-C
7
E
C
2
4
1
6
-C
6
B
0
2
4
1
6
-C
5
7
4
2
4
1
6
-C
4
3
8
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
7
A
F
B
0
8
8
s
_
2
5
_
1
0
_
2
0
1
C
M
Y
K