Fréttablaðið - 26.10.2019, Blaðsíða 64
Ný skáldsaga Sjóns, K o r n g u l t h á r , grá augu, segir af Gunnari Kampen, ungum og alvöru-gefnum manni sem
vorið 1958 stofnar andgyðinglegan
stjórnmálaf lokk þjóðernissinna í
Vesturbænum og vill gera sig gild-
andi í heimssamtökum nýnasista.
„Það að fólk telji sig vera merki-
legra en annað fólk og fái stuðning
við þær hugmyndir frá stórveldi
úti í heimi, ég hef verið upptekinn
af því nokkuð lengi. Í bókinni
Með titrandi tár sem kom út árið
2001 skrifaði ég um útlending sem
kemur til Íslands árið 1944, þegar
allt er hér í uppgangi og stríðinu
á að vera að ljúka. Þá voru hér á
landi ýmsir vafasamir karakterar á
kreiki. Á þessum tíma eignaðist ég
dálítið af efni um framhaldslíf nas-
ismans eftir stríð. Um það hvernig
menn héldu saman og studdu hver
annan. Sumir spyrja sig, hvernig gat
nasisminn tekið sig upp aftur með
þessum hætti skömmu eftir seinni
heimsstyrjöldina? Svarið er að
nasisminn fór hvergi, nasistar biðu
færis og gera enn.“
Íslenskir og sænskir nasistar
Í bókinni vefur Sjón raunverulegu
fólki inn í skáldskapinn. Til dæmis
nýaldarnasistanum Savitru Devi
og George Lincoln Rockwell sem
var giftur íslenskri konu, Þóru Hall-
grímsdóttur, og bjó hér á landi um
tíma.
„George Lincoln Rockwell var
búinn að gera margar tilraunir á
Íslandi til að stofna íslenska þjóð-
ernishreyfingu en gafst upp á þeim
sem hann var að reyna að vinna
með og vonaðist til að myndu fjár-
magna hreyfinguna. Honum fannst
þeir of huglausir. Hann f lutti til
Bandaríkjanna og þar stofnaði
hann The American Nazi Party og
þá var marserað í fyrsta skipti frá
millistríðsárum undir merkjum
hakakrossins í Washington. Það
sama gerðist víða annars staðar, í
Evrópu, til dæmis í Svíþjóð þar sem
menn höfðu ekki þurft að gera neitt
upp,“ segir Sjón og rifjar upp tengsl
íslenskra og sænskra nýnasista en
árið 1956 stofnaði sænski nasistinn
Göran Assar Oredsson Norræna
ríkisf lokkinn. Flokkurinn gaf út
áróðursblað sem var selt í bóka-
búðum í Reykjavík.
„Íslensku nýnasistarnir sóttu
sér stuðning til þeirra sænsku og
skrifuðu bréf. Oredsson minnist á
bréfaskriftirnar í minningargrein
um helsta framámann íslenska nas-
istaflokksins, að þeir hafi átt í svo
góðu bréfasambandi.“
Framámaðurinn sem Sjón vísar
til var Bernard Haarde sem lést
ungur og aðalsöguhetjan í skáld-
sögu hans, hinn ungi Gunnar
Kampen, minnir marga á.
„Nú eru það spjallþræðir og leyni-
síður. Samskiptin sem eiga sér stað
þar eru algerlega hliðstæð við bréfa-
skriftirnar. Þetta er sama kerfið.
Sumt var ekki hægt að gera bréf-
lega og þá voru menn sendir á milli
landa, þeir voru duglegir að ferðast.“
Fórnarlambið og ofbeldið
Aðalsöguhetjan er eftirlætisbarn en
líka brotið barn og er að berjast við
rof í tengslum við föður sinn. Þessi
sársauki, er hann afdrifaríkur?
„Gott að þú dregur það fram því
hættan við að skrifa svona bók er
að fólk sjái bara stóra efnið. En í
skáldskap má koma með tilgátu
um manneskjuna. Jafnvel þótt þú
takir ítarlegt viðtal við nýnasista
þá er manneskjan þar að stíga fram
í ákveðinni ímynd, í ákveðnum
búningi. Viðbúin því að fá ákveðin
viðbrögð. Í skáldskapnum hefur
maður næði til að vera með mann-
eskjunni. Gunnar Kampen mjakast
á þessa braut. Það er það sem ég
hafði áhuga á að skoða. Hvernig
verða þessar hugmyndir til?
Eitt af því sem einkennir mál-
flutning þessarar hreyfingar er það
að meðlimir setja sig í fórnarlambs-
stellingar. Þeir hafa upplifað höfn-
un, finnst þeir ekki njóta sannmælis
og eru í uppreisn. En fyrst og fremst
eru þeir fórnarlömb. Það er áhuga-
vert að skoða þessi tengsl. Hvernig
það að vera í hlutverki fórnarlambs
verður afsökun þeirra eða útskýr-
ing á því of beldi sem manneskjan
beitir.
Þetta er tilraun til að skoða
manneskjuna. Það er eitthvað
brotið í Gunnari, en það er eitthvað
brotið í okkur öllum. Enginn fer í
gegnum lífið án þess að vera hafnað.
En í tilfelli Gunnars þá rata þessar
hugmyndir til hans. Þeir sem eru
góðir við hann hafa þær. Þær eru í
umhverfi hans.“
Vináttan við Alfreð Flóka
Sjón segist stundum hafa velt því
fyrir sér af hverju hann lenti á þeirri
braut sem hann er á í dag. „Eitt af
þeim tækjum sem maður hefur sem
rithöfundur er maður sjálfur.
Ég var sólginn í öfgafulla mynd-
list og hryllingssögur sem krakki og
svo er ég hér í dag, búinn að skrifa
alls konar skrýtnar bækur.
Þessi áhugi á hryllingi á unglings-
árum, ég held hann sé tilkominn
vegna þess að maður er að ganga í
gegnum líkamlega umbreytingu.
Einu listaverkin í samfélaginu sem
takast á við óhugnað og sjálfsvið-
bjóð eru hryllingssögur. Á þessum
árum horfir maður í spegilinn og
maður er bara að breytast, það ger-
ist bara í hryllingssögum!“
Þegar ég var unglingur heillaðist
ég af súrrealismanum og nútíma-
ljóðinu. Ég var um það bil sautján
ára gamall þegar ég kynnist Alfreð
Flóka sem ég minnist á í bókinni.
Við urðum góðir vinir og ég varð
fastagestur á heimili hans. Hann
var mér eins og annar faðir og lét
mig hafa bækur að lesa og ræddi við
mig um heima og geima.
Flóki var lítið fyrir það að vera
í samskiptum við fólk úti í heimi,
eða að slá trumbuna eins og hann
kallaði það. Hann hafði sýnt á
stórri súrrealistasýningu árið 1976
og súrrealistar höfðu sett sig í sam-
band við hann. Hann færði mér
öll þau sambönd á silfurfati og ég
settist niður og skrifaði þessu fólki
sem bjó úti um allan heim. Í mörg ár
skrifaði ég súrrealistum í Portúgal,
Bandaríkjunum og Kanada.“
Á þessum tíma var Sjón ein drif-
f jöðrin í Medúsuhópnum sem
rak sýningarsalinn Skruggubúð í
Suðurgötu. „Við gáfum út bækur og
vorum að þýða eftir aðra höfunda.
Ég var í svona búbblu rétt eins og
Gunnar Kampen. Í rauninni var
ég inni í neti fólks sem var með
róttækar og mjög ákveðnar hug-
myndir um tilveruna. Þetta nota ég
auðvitað þegar ég er að smíða per-
sónu eins og Gunnar. Hvernig stóð
á því að ég mjakaðist í þessa átt en
hann í aðra? “
Bíða færis
Sjón segir alltaf verða til fólk sem
aðhyllist nasisma og að það megi
ekki sýna orðræðu blint umburðar-
lyndi. Það eigi að taka á henni af
festu.
„Það veit enginn hvort Gunnar
Kampen hefði látið af þessum hug-
myndum ári síðar og orðið venju-
legur borgari. Margir vöknuðu
nefnilega upp við vondan draum
og margir sem voru í þessari sellu
muna ekkert eftir þessu í dag. Eru
bara venjulegt fólk úti í bæ. En svo
eru aðrir sem fylgjast með miklum
áhuga með því sem er að gerast víða
um heim og upplifa að loksins sé nú
hægt að tala upphátt á kaffihúsum.“
Að fjalla um íslenska nasista,
fannstu fyrir því að það væri við-
kvæmt að róta í fortíðinni?
„Þetta hefur kannski þótt svona
leiðinlegt mál í fjölskyldum þessara
manna en ég held að ef við ætlum að
tala um þetta í samtímanum verð-
um við að muna að þetta fór aldrei,
þetta er viðvarandi verkefni þeirra
sem virkilega trúa á þetta, þeir bíða
færis. Það er ekki nema við skoðum
þetta fólk sem manneskjur að við
getum byrjað samtalið. En þetta
er samt klemma, því hvernig talar
maður við manneskju sem er alltaf
reiðubúin til að beita of beldi í sam-
talinu?“
Og er jafnvel haldið gallhörðum
fordómum? Og vill jafnvel ekki vera
í samtali?
„Já, það er mikið af fólki þar en
líka fólki sem er mjakað þangað.
Það er mikilvægt fyrir fólk að vera
vakandi fyrir því. Þessi spjallsvæði
þar sem þessar hugmyndir eru boð-
aðar og fólk skrifast á hafa verið
skoðuð. Hvernig fólki er hrósað
ef það lækar við einhvern rasista-
brandara, þá fær það strax hrós
fyrir það. Og ef þú deilir andstyggi-
legum skilaboðum, til dæmis um
gyðinga, þá færðu læk fyrir það.
Eitt af bestu tækjunum er svo að
setja rasismann í búning húmors.
Þá er hægt að segja: Hefur þú ekki
húmor fyrir þessu? Þetta er bara
grín! En Gunnar segir aldrei slíka
brandara þótt ef laust hefði hann
gert það. Mig langaði að sýna alvar-
leikann í hans verkefni. Hann er að
finna sér stöðu í tilverunni. Faðir
hans er í molum og drengurinn leitar
annað eftir fyrirmynd. Eða til bróð-
ur hans í Noregi sem situr í fangelsi
og er í hlutverki fórnarlambs. Faðir
hans er honum ekki nóg. Móðurfjöl-
skyldan er úr Vestmannaeyjum og
hann kemst í tengsl við þann arm
hreyfingarinnar. Óvíða voru dug-
legri nasistar en í Vestmannaeyjum.
Þetta er saga þessa drengs innan
þessarar fjölskyldu.
Ég er að reyna að flækja myndina
því það er ekki augljóst samband á
milli of beldishneigðar og nasisma.
Það getur einmitt verið viðkvæma
barnið sem getur aðhyllst þessar
hugmyndir.“
Nasistar
bíða færis
Þetta er tilraun til að skoða manneskjuna,
segir rithöfundurinn Sjón um nýja skáld-
sögu sína sem fjallar um nýnasista í Vestur-
bænum í Reykjavík á sjöunda áratugnum.
„Hvernig talar maður við manneskju sem er alltaf reiðubúin til að beita ofbeldi í samtalinu?“ FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON
Kristjana Björg
Guðbrandsdóttir
kristjana@frettabladid.is
EITT AF BESTU TÆKJUNUM
ER SVO AÐ SETJA RASISM-
ANN Í BÚNING HÚMORS.
ÞÁ ER HÆGT AÐ SEGJA:
HEFUR ÞÚ EKKI HÚMOR
FYRIR ÞESSU? ÞETTA ER
BARA GRÍN!
2 6 . O K T Ó B E R 2 0 1 9 L A U G A R D A G U R28 H E L G I N ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð
2
6
-1
0
-2
0
1
9
0
4
:4
1
F
B
0
8
8
s
_
P
0
6
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
8
8
s
_
P
0
6
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
8
8
s
_
P
0
2
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
8
8
s
_
P
0
2
5
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 2
4
1
6
-D
6
B
C
2
4
1
6
-D
5
8
0
2
4
1
6
-D
4
4
4
2
4
1
6
-D
3
0
8
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
8
B
F
B
0
8
8
s
_
2
5
_
1
0
_
2
0
1
C
M
Y
K