Fréttablaðið - 26.10.2019, Síða 64

Fréttablaðið - 26.10.2019, Síða 64
Ný skáldsaga Sjóns, K o r n g u l t h á r , grá augu, segir af Gunnari Kampen, ungum og alvöru-gefnum manni sem vorið 1958 stofnar andgyðinglegan stjórnmálaf lokk þjóðernissinna í Vesturbænum og vill gera sig gild- andi í heimssamtökum nýnasista. „Það að fólk telji sig vera merki- legra en annað fólk og fái stuðning við þær hugmyndir frá stórveldi úti í heimi, ég hef verið upptekinn af því nokkuð lengi. Í bókinni Með titrandi tár sem kom út árið 2001 skrifaði ég um útlending sem kemur til Íslands árið 1944, þegar allt er hér í uppgangi og stríðinu á að vera að ljúka. Þá voru hér á landi ýmsir vafasamir karakterar á kreiki. Á þessum tíma eignaðist ég dálítið af efni um framhaldslíf nas- ismans eftir stríð. Um það hvernig menn héldu saman og studdu hver annan. Sumir spyrja sig, hvernig gat nasisminn tekið sig upp aftur með þessum hætti skömmu eftir seinni heimsstyrjöldina? Svarið er að nasisminn fór hvergi, nasistar biðu færis og gera enn.“ Íslenskir og sænskir nasistar Í bókinni vefur Sjón raunverulegu fólki inn í skáldskapinn. Til dæmis nýaldarnasistanum Savitru Devi og George Lincoln Rockwell sem var giftur íslenskri konu, Þóru Hall- grímsdóttur, og bjó hér á landi um tíma. „George Lincoln Rockwell var búinn að gera margar tilraunir á Íslandi til að stofna íslenska þjóð- ernishreyfingu en gafst upp á þeim sem hann var að reyna að vinna með og vonaðist til að myndu fjár- magna hreyfinguna. Honum fannst þeir of huglausir. Hann f lutti til Bandaríkjanna og þar stofnaði hann The American Nazi Party og þá var marserað í fyrsta skipti frá millistríðsárum undir merkjum hakakrossins í Washington. Það sama gerðist víða annars staðar, í Evrópu, til dæmis í Svíþjóð þar sem menn höfðu ekki þurft að gera neitt upp,“ segir Sjón og rifjar upp tengsl íslenskra og sænskra nýnasista en árið 1956 stofnaði sænski nasistinn Göran Assar Oredsson Norræna ríkisf lokkinn. Flokkurinn gaf út áróðursblað sem var selt í bóka- búðum í Reykjavík. „Íslensku nýnasistarnir sóttu sér stuðning til þeirra sænsku og skrifuðu bréf. Oredsson minnist á bréfaskriftirnar í minningargrein um helsta framámann íslenska nas- istaflokksins, að þeir hafi átt í svo góðu bréfasambandi.“ Framámaðurinn sem Sjón vísar til var Bernard Haarde sem lést ungur og aðalsöguhetjan í skáld- sögu hans, hinn ungi Gunnar Kampen, minnir marga á. „Nú eru það spjallþræðir og leyni- síður. Samskiptin sem eiga sér stað þar eru algerlega hliðstæð við bréfa- skriftirnar. Þetta er sama kerfið. Sumt var ekki hægt að gera bréf- lega og þá voru menn sendir á milli landa, þeir voru duglegir að ferðast.“ Fórnarlambið og ofbeldið Aðalsöguhetjan er eftirlætisbarn en líka brotið barn og er að berjast við rof í tengslum við föður sinn. Þessi sársauki, er hann afdrifaríkur? „Gott að þú dregur það fram því hættan við að skrifa svona bók er að fólk sjái bara stóra efnið. En í skáldskap má koma með tilgátu um manneskjuna. Jafnvel þótt þú takir ítarlegt viðtal við nýnasista þá er manneskjan þar að stíga fram í ákveðinni ímynd, í ákveðnum búningi. Viðbúin því að fá ákveðin viðbrögð. Í skáldskapnum hefur maður næði til að vera með mann- eskjunni. Gunnar Kampen mjakast á þessa braut. Það er það sem ég hafði áhuga á að skoða. Hvernig verða þessar hugmyndir til? Eitt af því sem einkennir mál- flutning þessarar hreyfingar er það að meðlimir setja sig í fórnarlambs- stellingar. Þeir hafa upplifað höfn- un, finnst þeir ekki njóta sannmælis og eru í uppreisn. En fyrst og fremst eru þeir fórnarlömb. Það er áhuga- vert að skoða þessi tengsl. Hvernig það að vera í hlutverki fórnarlambs verður afsökun þeirra eða útskýr- ing á því of beldi sem manneskjan beitir. Þetta er tilraun til að skoða manneskjuna. Það er eitthvað brotið í Gunnari, en það er eitthvað brotið í okkur öllum. Enginn fer í gegnum lífið án þess að vera hafnað. En í tilfelli Gunnars þá rata þessar hugmyndir til hans. Þeir sem eru góðir við hann hafa þær. Þær eru í umhverfi hans.“ Vináttan við Alfreð Flóka Sjón segist stundum hafa velt því fyrir sér af hverju hann lenti á þeirri braut sem hann er á í dag. „Eitt af þeim tækjum sem maður hefur sem rithöfundur er maður sjálfur. Ég var sólginn í öfgafulla mynd- list og hryllingssögur sem krakki og svo er ég hér í dag, búinn að skrifa alls konar skrýtnar bækur. Þessi áhugi á hryllingi á unglings- árum, ég held hann sé tilkominn vegna þess að maður er að ganga í gegnum líkamlega umbreytingu. Einu listaverkin í samfélaginu sem takast á við óhugnað og sjálfsvið- bjóð eru hryllingssögur. Á þessum árum horfir maður í spegilinn og maður er bara að breytast, það ger- ist bara í hryllingssögum!“ Þegar ég var unglingur heillaðist ég af súrrealismanum og nútíma- ljóðinu. Ég var um það bil sautján ára gamall þegar ég kynnist Alfreð Flóka sem ég minnist á í bókinni. Við urðum góðir vinir og ég varð fastagestur á heimili hans. Hann var mér eins og annar faðir og lét mig hafa bækur að lesa og ræddi við mig um heima og geima. Flóki var lítið fyrir það að vera í samskiptum við fólk úti í heimi, eða að slá trumbuna eins og hann kallaði það. Hann hafði sýnt á stórri súrrealistasýningu árið 1976 og súrrealistar höfðu sett sig í sam- band við hann. Hann færði mér öll þau sambönd á silfurfati og ég settist niður og skrifaði þessu fólki sem bjó úti um allan heim. Í mörg ár skrifaði ég súrrealistum í Portúgal, Bandaríkjunum og Kanada.“ Á þessum tíma var Sjón ein drif- f jöðrin í Medúsuhópnum sem rak sýningarsalinn Skruggubúð í Suðurgötu. „Við gáfum út bækur og vorum að þýða eftir aðra höfunda. Ég var í svona búbblu rétt eins og Gunnar Kampen. Í rauninni var ég inni í neti fólks sem var með róttækar og mjög ákveðnar hug- myndir um tilveruna. Þetta nota ég auðvitað þegar ég er að smíða per- sónu eins og Gunnar. Hvernig stóð á því að ég mjakaðist í þessa átt en hann í aðra? “ Bíða færis Sjón segir alltaf verða til fólk sem aðhyllist nasisma og að það megi ekki sýna orðræðu blint umburðar- lyndi. Það eigi að taka á henni af festu. „Það veit enginn hvort Gunnar Kampen hefði látið af þessum hug- myndum ári síðar og orðið venju- legur borgari. Margir vöknuðu nefnilega upp við vondan draum og margir sem voru í þessari sellu muna ekkert eftir þessu í dag. Eru bara venjulegt fólk úti í bæ. En svo eru aðrir sem fylgjast með miklum áhuga með því sem er að gerast víða um heim og upplifa að loksins sé nú hægt að tala upphátt á kaffihúsum.“ Að fjalla um íslenska nasista, fannstu fyrir því að það væri við- kvæmt að róta í fortíðinni? „Þetta hefur kannski þótt svona leiðinlegt mál í fjölskyldum þessara manna en ég held að ef við ætlum að tala um þetta í samtímanum verð- um við að muna að þetta fór aldrei, þetta er viðvarandi verkefni þeirra sem virkilega trúa á þetta, þeir bíða færis. Það er ekki nema við skoðum þetta fólk sem manneskjur að við getum byrjað samtalið. En þetta er samt klemma, því hvernig talar maður við manneskju sem er alltaf reiðubúin til að beita of beldi í sam- talinu?“ Og er jafnvel haldið gallhörðum fordómum? Og vill jafnvel ekki vera í samtali? „Já, það er mikið af fólki þar en líka fólki sem er mjakað þangað. Það er mikilvægt fyrir fólk að vera vakandi fyrir því. Þessi spjallsvæði þar sem þessar hugmyndir eru boð- aðar og fólk skrifast á hafa verið skoðuð. Hvernig fólki er hrósað ef það lækar við einhvern rasista- brandara, þá fær það strax hrós fyrir það. Og ef þú deilir andstyggi- legum skilaboðum, til dæmis um gyðinga, þá færðu læk fyrir það. Eitt af bestu tækjunum er svo að setja rasismann í búning húmors. Þá er hægt að segja: Hefur þú ekki húmor fyrir þessu? Þetta er bara grín! En Gunnar segir aldrei slíka brandara þótt ef laust hefði hann gert það. Mig langaði að sýna alvar- leikann í hans verkefni. Hann er að finna sér stöðu í tilverunni. Faðir hans er í molum og drengurinn leitar annað eftir fyrirmynd. Eða til bróð- ur hans í Noregi sem situr í fangelsi og er í hlutverki fórnarlambs. Faðir hans er honum ekki nóg. Móðurfjöl- skyldan er úr Vestmannaeyjum og hann kemst í tengsl við þann arm hreyfingarinnar. Óvíða voru dug- legri nasistar en í Vestmannaeyjum. Þetta er saga þessa drengs innan þessarar fjölskyldu. Ég er að reyna að flækja myndina því það er ekki augljóst samband á milli of beldishneigðar og nasisma. Það getur einmitt verið viðkvæma barnið sem getur aðhyllst þessar hugmyndir.“ Nasistar bíða færis Þetta er tilraun til að skoða manneskjuna, segir rithöfundurinn Sjón um nýja skáld- sögu sína sem fjallar um nýnasista í Vestur- bænum í Reykjavík á sjöunda áratugnum. „Hvernig talar maður við manneskju sem er alltaf reiðubúin til að beita ofbeldi í samtalinu?“ FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON Kristjana Björg Guðbrandsdóttir kristjana@frettabladid.is EITT AF BESTU TÆKJUNUM ER SVO AÐ SETJA RASISM- ANN Í BÚNING HÚMORS. ÞÁ ER HÆGT AÐ SEGJA: HEFUR ÞÚ EKKI HÚMOR FYRIR ÞESSU? ÞETTA ER BARA GRÍN! 2 6 . O K T Ó B E R 2 0 1 9 L A U G A R D A G U R28 H E L G I N ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð 2 6 -1 0 -2 0 1 9 0 4 :4 1 F B 0 8 8 s _ P 0 6 5 K .p 1 .p d f F B 0 8 8 s _ P 0 6 4 K .p 1 .p d f F B 0 8 8 s _ P 0 2 4 K .p 1 .p d f F B 0 8 8 s _ P 0 2 5 K .p 1 .p d f A u to m a tio n P la te re m a k e : 2 4 1 6 -D 6 B C 2 4 1 6 -D 5 8 0 2 4 1 6 -D 4 4 4 2 4 1 6 -D 3 0 8 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 8 B F B 0 8 8 s _ 2 5 _ 1 0 _ 2 0 1 C M Y K
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.