Fréttablaðið - 26.10.2019, Síða 8

Fréttablaðið - 26.10.2019, Síða 8
Café AUSTURSTRÆTI • SKÓLAVÖRÐUSTÍG • LAUGAVEGI AKUREYRI • VESTMANNAEYJUM Komdu í kaff i BRETLAND John Downey, 67 ára maður sem grunaður er um morð á tveimur breskum hermönnum árið 1972, gaf sig fram við lögregluna á Írlandi fyrr í mánuðinum og var í kjölfarið framseldur til Norður- Írlands. Downey var meðlimur í hryðjuverkasamtökunum IR A og er  einnig grunaður um f leiri ódæði. Á þriðjudag ákvað dómari að Downey yrði í varðhaldi fram að réttarhöldum enda væri mikil hætta á að hann reyndi að flýja. Þann 25. ágúst árið 1972 voru hermennirnir Alfred Johnston og James Eams að skoða bifreið á Irv- inestown-veginum, nálægt Cherry- mount í suðvesturhluta Norður- Írlands, þegar hún sprakk og þeir létust báðir. Þetta var á mestu átaka- tímunum sem vörðu í 30 ár, eða allt þar til friðarsamkomulag var gert árið 1998. Downey, sem búsettur hefur verið á Írlandi undanfarna áratugi, var einn af þeim 200 liðsmönnum IRA sem Tony Blair, þáverandi for- sætisráðherra og Gerry Adams, leið- togi Sinn Fein, stjórnmálaarms IRA, sömdu um að yrðu ekki ákærðir fyrir glæpi sína. Þegar íhaldsstjórn Davids Cameron komst til valda árið 2010 var þetta samkomulag sett í uppnám. Árið 2013 var Downey kærður fyrir tvær sprengjuárásir í Hyde Park og Regent’s Park í Lundúnum þann 20. júlí árið 1982, þar sem 11 hermenn létust. Downey mætti fyrir réttinn í Lundúnum en mál- inu var vísað frá þar sem lögreglu- yfirvöld  á Norður-Írlandi höfðu fullvissað hann um að ekkert yrði aðhafst gegn honum á grundvelli samkomulagsins. Haustið 2018 gáfu lögregluyfir- völd á Norður-Írlandi út evrópska handtök ut ilsk ipu n á hendu r Downey fyrir morðin frá árinu 1972. Á sama tíma höfðuðu fjöl- skyldur hermannanna í Lundúnum einkamál á hendur honum. Opinber beiðni um framsal frá Írlandi barst hæstaréttinum í Dyf linni 5. nóv- ember og var Downey handtekinn í Donegal sama dag en settur í stofu- fangelsi á meðan framsalsbeiðnin var í vinnslu. Í mars úrskurðaði hæstiréttur að framsal væri mögu- legt og í október var hann fram- seldur. Sinn Fein hafa haldið uppi vörn- um fyrir Downey og segja framsalið brjóta í bága við friðarsamkomu- lagið. Einnig að Downey sjálfur hafi átt þátt í því að samkomulagið var gert árið 1998. „Það er ljóst að breska ríkisstjórnin vinnur þetta mál í slæmri trú. Downey ætti að vera heima í Donegal með fjölskyldu sinni,“ sagði Frankie Molloy, þing- maður f lokksins. Segja þeir málið skapa hættulegt fordæmi fyrir frek- ari ákærur. Sambandssinnar fagna hins vegar framsalinu og segja að löngu sé kominn tími á réttlæti fyrir fjölskyldur hermannanna. Þó að friðarsamkomulagið 1998 hafi verið bylting í samskiptum kaþólikka og mótmælenda á Norð- ur-Írlandi má lítið út af bera til að átök blossi ekki upp á ný. Hafa ber í huga að enn eru voðaverk stunduð í landinu af skæruliðahópum, til að mynda af NIRA, sem lýsa sér sem arftaka IRA og hafa meðal annars sprengt  á Norður-Írlandi og Eng- landi. Væntanleg útganga Bretlands úr Evrópusambandinu hefur verið vatn á myllu slíkra hópa og hafa þeir heitið árásum á landamæra- verði og aðrar stofnanir sem hindra frjálsar samgöngur og verslun á milli norðurs og suðurs. kristinnhaukur@frettabladid.is Réttað yfir fyrrverandi IRA-liða vegna morða Réttað verður yfir fyrrverandi IRA-liða vegna sprengjuárásar á tvo hermenn árið 1972. Eftir friðarsamkomulagið 1998 var 200 IRA-liðum heitið friðhelgi. Mál Downeys og útganga Bretlands úr ESB er vatn á myllu öfgahópa í landinu. John Downey leiddur af lögreglu á Norður-Írlandi. Eitt ódæðið sem hann er sakaður um beindist að vörðum Bretadrottningar. NORDICPHOTOS/GETTY S. 414 7000 · Glæsibær / Vesturhús, 2. hæð · 104 Reykjavík · www.augljos.is Það gleður okkur að tilkynna að Elva Dögg Jóhannesdóttir augnlæknir hefur hafið störf á augnlæknastofunni Augljósi Tímapantanir í síma 414 7000 Elva Dögg Jóhannesdóttir Augnlæknir Tilkynning Gámabíllinn er nú til ítarlegrar rannsóknar lögreglu. NORDICPHOTOS/GETTY BRETLAND Þrennt er í haldi bresku lögreglunnar í tengslum við fund á 39 líkum í gámabíl í Essex á Eng- landi fyrr í vikunni. Maður, kona og ökumaður gámabílsins hafa verið færð til yfirheyrslu vegna málsins, en það hefur vakið mikinn óhug. Ráðist hefur verið í þrjár húsleitir á Norður-Írlandi í tengslum við málið. Af þeim 39 sem fundust er 31 karlmaður og átta konur. Upphaf- lega var talið að þau hefðu öll verið kínverskir ríkisborgarar en sam- kvæmt heimildum BBC eru þrír frá Víetnam. Talið er víst að málið tengist mansali. Ekki hefur fengist staðfest hvort málið tengist hvarfi hinnar 26 ára Pham Tra My. Hún sendi sms-skila- boð á fjölskyldumeðlim á þriðju- dagskvöldið þar sem stóð: „Ég er að deyja, ég get ekki andað“. Fjölskyld My segist hafa greitt smyglurum 30 þúsund pund, eða rúmar 4,8 milljónir króna. Síðast vissu þau af henni í Belgíu, þaðan sem gámurinn kom til Bretlands. Sendiráð Víetnam hefur verið í sam- skiptum við lögregluna í Essex. – ab Talið víst að líkfundur í Essex tengist mansali 2 6 . O K T Ó B E R 2 0 1 9 L A U G A R D A G U R8 F R É T T I R ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð HVER VANN? Sportið á frettabladid.is færir þér allar nýjustu fréttirnar úr heimi íþróttanna. Ekki missa af neinu, fylgdu Fréttablaðinu á Facebook 2 6 -1 0 -2 0 1 9 0 4 :4 1 F B 0 8 8 s _ P 0 8 1 K .p 1 .p d f F B 0 8 8 s _ P 0 8 0 K .p 1 .p d f F B 0 8 8 s _ P 0 0 8 K .p 1 .p d f F B 0 8 8 s _ P 0 0 9 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 2 4 1 6 -C C D C 2 4 1 6 -C B A 0 2 4 1 6 -C A 6 4 2 4 1 6 -C 9 2 8 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 7 B F B 0 8 8 s _ 2 5 _ 1 0 _ 2 0 1 C M Y K
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.