Fréttablaðið - 26.10.2019, Síða 23
Í MÍNUM DRAUMAHEIMI
VÆRI FRÁBÆRT EF BÖRN
FENGJU AÐ VERA HEIMA
MEÐ FORELDRUM SÍNUM
EINN DAG Í VIKU. ÞAÐ
VÆRI SKÓLASKYLDA
FJÖLSKYLDUNNAR EINN
VIRKAN DAG Í VIKU.
Uppáhaldstími dagsins er þegar börnin eru komin heim.
Siemens heimilistækin fást hjá Smith & Norland.
Nóatúni 4 • Sími 520 3000 • www.sminor.is
Gerum alla daga
einstaka.
Innbyggðu heimilistækin frá Siemens geta svo margt – með því að sameina
nýjustu tækni, framúrskarandi hönnun og gegnheil gæði.
Siemens heimilistæki
BS
H
-s
am
st
ey
pa
n
e
r
le
yfi
sh
afi
v
ör
u
m
er
ki
s
í e
ig
u
m
S
ie
m
en
s
A
G
Emmu. „Emma okkar naut þess að
vera með okkur foreldrana með sér
fyrstu tvö árin hér heima. Við Karen
ákváðum að gera það líka fyrir tví
burana og viljum vera mikið til
staðar fyrir þá þessi fyrstu ár í lífi
þeirra. Nú eru þeir hluta dags á
ungbarnaleikskóla hér í Skjern
og það er gott fyrir þá líka,“ segir
Björgvin Páll og lýsir degi í lífi fjöl
skyldunnar.
„Eldri stelpan mín er í haustfríi
í skólanum svo Karen og hún ætla
að eiga saman gæðadag. Ég fer á
æfingu og eftir hana sæki ég krílin á
leikskólann og fer á danska hjólinu
mínu, svona kassahjóli sem þeir
geta setið báðir í. Það er ofsalega fal
legt og ljúft haustveður og ég hlakka
alltaf svo til að sækja þá. Hér í Dan
mörku eru engar brekkur að drepa
mann og ekkert lárétt rok beint í
andlitið. Þetta er oft uppáhalds
tími dagsins. Svo er það fjölskyldu
lífið sem tekur við seinnipartinn,
eða úlfatíminn, eins og sumir kalla
þennan tíma dags,“ segir Björgvin
sposkur. „Krakkarnir eru auðvitað
í misjöfnu skapi þegar þau koma
heim og maður þarf því svolítið
að fara eftir líðan þeirra, hvað við
gerum saman. Hvort við perlum
eða litum, bökum eða förum út að
gera eitthvað.“
Niðurbrot og uppgjör
Færsla Björgvins Páls á Facebook
þar sem hann lýsir andlegum erfið
leikum í upphafi árs hefur vakið
mikla athygli. Björg vin segir frá
því þegar hann sat fyrir utan dóm
kirkjuna í Köln í janúar síðast
liðnum, um miðja nótt, eftir að ís
lenska karla lands liðið tapaði fyrir
Frökkum á HM.
„Það er nánast enginn á ferli fyrir
utan mig, enda nið dimmt, mið nótt
og há vetur. Ég ætti að vera sofandi
á hóteli lands liðsins, í ná grenni
við lestar stöðina í Köln. Í langan
tíma hef ég reynt að láta ein kenni
um and legt og líkam legt hrun sem
vind um eyru þjóta,“ sagði Björgvin
Páll á Facebook. Færslan er úr upp
hafskafla ævisögu hans: Án filters,
sem hann gaf út í vikunni og fyrsta
kafla bókarinnar má lesa hér aftar
í viðtalinu.
„Þegar ég og þú ræddum saman
í viðtali fyrir nærri tveimur árum
síðan var einhver úrvinnsla farin
af stað hjá mér. En svo kom þetta
af fullum krafti upp á yfirborðið
í janúar á þessu ári. Ég ætlaði mér
aldrei að skrifa ævisögu. Sá það alls
ekki fyrir mér en eftir að ég brotnaði
niður í upphafi árs fór ég að púsla
saman lífi mínu. Sjá hlutina í betra
samhengi og skrifa. Ég ákvað síðan
að gefa þetta út fyrir aðra því f leiri
eru að glíma við svipaða líðan,“
segir hann.
Björgvin Páll segist hafa fundið
fyrir sterkum tilgangi. Hann vildi
nýta andlegt niðurbrot sitt til að
byggja sig upp og kortleggja ferða
lagið fyrir aðra. „Ég vildi líka skoða
það af hverju ég bjó til þessa leið,
að verða þessi geðveiki karakter
innan vallar. Þegar mín raunveru
legu gildi eru mjúk. Að vera góður
pabbi og leggja rækt við fjölskyld
una. Ég er í raun að jarða egóið og
lokakaflinn í því var nú að klippa
mig stutt. Mörgum finnst það ef til
vill skrýtið en mig hefur oft langað
að klippa mig en ég fylltist kvíða við
tilhugsunina. Það er gott að horfa í
spegilinn á þennan stuttklippta
mann. Því í huga mér er ég nú
endanlega búinn að kveðja ímynd
harða handboltamannsins,“ segir
Björgvin Páll.
Ég er ekki villtur og brjálaður
Björgvin er fæddur á Hvammstanga
árið 1985 en f lutti í Kópavoginn
fjögurra ára gamall. Foreldrar hans
skildu þegar hann var tveggja ára.
Pabbi hans varð eftir á Hvamms
tanga og samband foreldra hans var
ekki gott og samskiptin lítil.
Uppgjör Björgvins Páls hófst fyrir
nokkrum árum. Hann glímdi við
mikla vanlíðan og hegðunarörðug
leika og dvaldi um tíma á BUGL eftir
að hafa verið tekinn með hníf í skól
anum átta ára gamall. Heimilisað
stæður hans áttu þátt í vandanum.
„Ég stend við það sem ég sagði,
ég á handboltanum bæði líf mitt og
barnanna að þakka. Ég fann stað
þar sem ég gat notið mín og fengið
heilbrigða útrás. En hann var hins
vegar engin töfralausn, vandamálin
fóru ekkert.“
Björgvin Páll fékk að skoða skjöl
sem voru til um hann í kerfinu og
það var erfitt fyrir hann að lesa
þau á sínum tíma. Þetta voru skjöl
H E L G I N ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð 23L A U G A R D A G U R 2 6 . O K T Ó B E R 2 0 1 9
2
6
-1
0
-2
0
1
9
0
4
:4
1
F
B
0
8
8
s
_
P
0
6
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
8
8
s
_
P
0
6
3
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
8
8
s
_
P
0
2
3
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
8
8
s
_
P
0
2
6
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 2
4
1
6
-D
1
C
C
2
4
1
6
-D
0
9
0
2
4
1
6
-C
F
5
4
2
4
1
6
-C
E
1
8
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
8
A
F
B
0
8
8
s
_
2
5
_
1
0
_
2
0
1
C
M
Y
K