Fréttablaðið - 26.10.2019, Blaðsíða 59

Fréttablaðið - 26.10.2019, Blaðsíða 59
FOOTGUARD kremið hentar sérstaklega vel þeim sem eiga við þrálát sprungu- vandamál á fótum að stríða. Kerecis kynnir MariCell, íslensk krem sem innihalda Omega-3TM fjölómettaðar fitusýrur, ávaxtasýrur og karb- amíð. Kremin eru CE-merkt og flokkast því ekki sem snyrtivörur heldur lækningavörur. Húðlæknirinn Baldur Tumi Baldursson stendur að baki MariCell kremunum sem fást í nokkrum mismunandi gerðum og eru framleidd af Kerecis á Ísafirði. „Það hefur lengi þótt freistandi að nota Omega 3 fitusýrur í meðferð við hinum ýmsu sjúkdómum og þá sérstaklega húðsjúkdómum. Áhrif þeirra eru mjög góð á húðina en lyktin hefur staðið mönnum fyrir þrifum, enda eru fitusýrurnar unnar úr fiskiroði og öðru sjávar- fangi. Við hittum hins vegar á mjög góða blöndu sem hefur virkni án þess að lyktin trufli,“ segir Baldur Tumi. MariCell FOOTGUARD er einstaklega virkt krem sem er sérþróað til meðhöndlunar á siggi, þykkri húð og sprungnum hælum. Mýkri fætur og betri líðan Kremið FOOT- GUARD í MariCell línunni er sérstaklega þróað fyrir fætur og hentar sérstaklega vel þeim sem eiga við þrálát sprungu- vandamál á fótum að stríða og einnig þeim sem þurfa að standa mikið við vinnu og eru með slæma fótaheilsu. Jafnframt er kremið tilvalið til þess að mýkja og fegra fæturna. Auk Omega 3 fitusýra inniheldur kremið ávaxtasýru sem brýtur niður sigg og þykka húð og karbamíð sem er rakagefandi. Sprungur á hælum geta myndast þegar fitusýrurnar í húðinni rýrna og húðin verður þurr. Í kjölfarið minnkar teygjanleik- inn og húðin strekkist þar til hún á endanum gefur eftir og springur. Regluleg notkun á FOOTGUARD getur komið í veg fyrir þetta. Önnur krem í Mari- Cell línunni innihalda mOmega3™ fitusýrur, ávaxtasýrur og karb- amíð í mismunandi styrk. Sölustaðir: Apótek MariCell Footguard Meðhöndlar sigg, þykka húð og sprungna hæla Wound – nýr Omega sáraúði frá Kerecis Wound sáraúðinn er einfaldur og þægilegur í notkun n Hreinsið sárið vel með hreinu vatni og hristið brúsann vel. n Úðið úr fimm til tíu sentimetra fjarlægð á húð og umhverfis sárið. n Hyljið með sáraumbúðum sem henta hverju sinni. Wound sáraúðinn inni-heldur bæði Jóhannesar-jurtarolíu og Neemolíu, en báðar þessar olíur eru þekktar fyrir græðandi eiginleika og inni- halda fjöl ómettaðar fitusýrur. Úðinn er til dæmis hentugur til að meðhöndla núningssár, hruflsár, væg brunasár, sár eftir blöðrur, sár eftir inngróna nögl, litla skurði og skrámur. Úðinn er 100 prósent náttúru- legur og án rotvarnarefna. Hann hefur bakteríuhemjandi eiginleika og samverkandi áhrif olíanna flýta fyrir sáragræðslunni. Sáraúðinn er CE merkt lækn- ingavara og er nú þegar fáanlegur í apótekum. Kerecis kynnir Wound sáraúð- ann sem inni- heldur Omega olíur úr jurtarík- inu og flýtir fyrir náttúrulegri sára- græðslu. Dagur 1 Dagur 1 Dagur 14 Dagur 14 Þórey Sigrún Leifsdóttir hefur upplifað það frá 9 ára aldri að vera með sigg á hælum og tábergi. „Amma kenndi því um að ég gengi um berfætt en seinna kom í ljós að þetta var sóriasis,“ segir Þórey. Sigg og sprungur ágerðust með aldrinum hjá Þóreyju. „Þegar verst lét var ég komin á það stig að vakna á nóttunni vegna kláða og pirrings í fótum, oft með blæðandi sprungur í sigginu. Stundum brá ég á það ráð að raspa fæturna um miðjar nætur og smyrja þá með smyrsli og vanlíðanin var mikil,“ segir Þórey sem fyrir tveimur árum fór til húðlæknis sem benti henni á kremið MariCell FOOTGUARD frá Kerecis. „Hann mælti eindregið með kreminu, bar það á annan fótinn til prufu og eftir aðeins sólarhring fann ég stóran mun. Ég ber nú kremið á mig eftir þörfum og tek skorpur en sprungurnar eru horfnar og ég hef ekki vaknað út af kláða og blæðandi sprungum í tvö ár. Ég hef í raun ekki verið jafn góð síðan ég var barn,“ segir Þórey sem hefur ekki tölu á hversu mörgum hún hefur bent á MariCell FOOTGUARD. „Ég mæli með því fyrir alla sem kljást við sprungur og sigg, því það er það besta sem ég hef notað á mitt vandamál.“ FÓLK KYNNINGARBLAÐ 5 L AU G A R DAG U R 2 6 . O K TÓ B E R 2 0 1 9 2 6 -1 0 -2 0 1 9 0 4 :4 1 F B 0 8 8 s _ P 0 7 0 K .p 1 .p d f F B 0 8 8 s _ P 0 5 9 K .p 1 .p d f F B 0 8 8 s _ P 0 1 9 K .p 1 .p d f F B 0 8 8 s _ P 0 3 0 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 2 4 1 6 -A A 4 C 2 4 1 6 -A 9 1 0 2 4 1 6 -A 7 D 4 2 4 1 6 -A 6 9 8 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 4 A F B 0 8 8 s _ 2 5 _ 1 0 _ 2 0 1 C M Y K
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.