Fréttablaðið - 26.10.2019, Page 60
Hjördís Erna
Þorgeirsdóttir
hjordiserna@frettabladid.is
Það eru þeir Nicolas Kunysz og Sindri Geirsson sem bjuggu til lowercase nights árið 2014.
Þeir eru báðir verið að gera sveim-
tónlist og Sindri vinnur á Prikinu,
svo kvöldin eru búin að vera þar
síðustu ár,“ útskýrir Gunnar.
„Pælingin er sú að listamaður eða
listamenn koma saman og spinna
músík yfir kvikmynd að eigin vali.
Sveimtónlist er þarna í aðalhlut-
verki, en listamönnum er í raun
gefið algjört frelsi til að gera það
sem þeir vilja.“
„Þetta er hiklaust ein af mínum
uppáhaldstónleikaseríum í
bænum, og í raun algjör stofnun og
öldungur að verða. Ég bý í mið-
bænum og finnst fátt notalegra
en að reka inn nefið á Prikinu á
sunnudögum og detta í smá leiðslu
undir góðri músík og kvikmynd,“
segir Gunnar. „Þessi kvöld eru mjög
gott þynnkumeðal og enn betri
sálfræðingur! Sveimlistamenn eiga
það líka oft sameiginlegt að hafa
gott auga fyrir áhugaverðu mynd-
efni, svo þetta er alltaf veisla fyrir
augu og eyru,“ segir Gunnar, fullur
eftirvæntingar.
Samstarfið skrifað í skýin
„Ég, Arnljótur og Kristinn Gunnar
höfum allir spilað áður á lowercase
nights, en þetta er í fyrsta sinn sem
við spilum allir þrír saman, svo ég
er gríðarlega spenntur fyrir því.
Við erum líka miklir aðdáendur
kvikmyndarinnar sem við ætlum
að spila yfir, en valið er leyndarmál
enn sem komið er. Fólk þarf bara að
mæta og láta koma sér á óvart.“
Gunnar segir tónlistarmanninn
Kristin Gunnar Blöndal , einn-
ig þekktur sem KGB, hafa átt
frumkvæðið að þessu forvitnilega
samstarfi. „KGB hafði samband
við mig og stakk upp á því að við
myndum gera eitthvað saman. Mig
hefur lengi langað til að spila með
honum, enda er hann einn af helstu
tónlistarmönnum og plötusnúðum
landsins. Við vorum síðan sam-
mála um að fá Arnljót inn í þetta
með okkur, því við erum svo miklir
aðdáendur hans.“
Gunnar hefur lengi þekkt Arnljót
og segir hann koma úr afar hæfi-
leikaríkri fjölskyldu. „Ég var með
eldri bróður Arnljóts í hljómsveit
í gamla daga, sem varð til þess að
ég kynntist fjölskyldunni hans vel.
Öll systkinin eru tónlistarmenn
og miklir snillingar.“ Þá sé tilhugs-
unin ein um það hversu hæfileika-
ríkur Arnljótur er nóg til þess að
gera Gunnar agndofa. „Ég ver oft
löngum stundum í að hugsa um
hvað Arnljótur er mikill og hreinn
listamaður. Hann hefur verið að
gera músík undir nafninu Kraftgalli
síðustu misseri, til dæmis gaf hann
út þriggja laga EP-plötu fyrir ekki
svo löngu sem heitir Trítill og er
eins konar orðagrínsmúsík. Ég held
að það sé ný tónlistarstefna, sem er
mjög í anda Arnljóts,“ segir Gunnar,
hugfanginn.
„Við KGB erum síðan báðir Breið-
holtsdrengir, en ég kynntist honum
aðallega í gegnum tónlistarlífið í
miðbænum, hann er náttúrulega
gangandi tónlistaralfræðibók og
algjör unaður að spjalla við hann
um músík, svo það lá beinast við
að búa til músík saman líka. Hann
hefur gert tónlist undir nafninu
Justman síðustu ár, til viðbótar við
að vera þekktur plötusnúður. Þeir
Arnljótur hafa líka spilað saman
svo þetta spunakvöld okkar er
skrifað í skýin myndi ég halda.“
Ný tónlist í smíðum
Gunnar hefur tekið þátt í ýmsu
samstarfi í gegnum tíðina en í raf-
Rafmagnað
og framsækið
andrúmsloft
Á sunnudaginn verður lowercase-
kvöld á Prikinu. Gunnar Jónsson tón-
listarmaður hvetur fólk til að mæta
og upplifa listilegt tóna- og sjónar-
spilið með eigin augum, og eyrum.
Gunnar Jónsson tónlistarmaður kemur fram ásamt KGB og Arnljóti Sigurðssyni. FRÉTTABLAÐIÐ/ERNIR
heimum kemur hann einn fram
undir nafninu Gunnar Jónsson
Collider. „Ég hef verið að sinna
tónlist síðan ég var mjög ungur,
með hinum og þessum böndum.
Gunnar Jónsson Collider byrjaði
bara sem hliðar-sólóverkefnið
mitt sem ég sinnti samfara öðrum
verkefnum,“ segir hann.
„Það var eins konar leið til að fá
útrás fyrir alls kyns músík sem ég
hafði áhuga á að gera, en komst
ekki að í hinum verkefnum mínum,
eins og sveimtónlist, raftónlist og
alls kyns tilraunapoppi. Gunn-
ar Jónsson Collider tók síðan á
endanum alveg yfir. Ég er búinn að
gefa út slatta af músík á þessu stigi
málsins, bæði hjá íslenskum og
erlendum útgáfum.“
„Til viðbótar við það hef ég líka
spilað sem „session“-leikari fyrir
önnur verkefni, til dæmis fyrir
ROFOROFO (hljómsveit Ómars
Guðjónssonar og þýska trommu-
leikarans Tommy Baldu) og Krist-
jönu Stefánsdóttur,“ segir Gunnar.
„Ég hef verið mjög heppinn með
að fá að spila undir hjá alls kyns
frábærum listamönnum, sem ég
dái mikið, í gegnum tíðina, eins og
einmitt Ómari og Kristjönu, sem
og Damo Suzuki og Ben Frost svo
eitthvað fleira sé nefnt. En ég er
alltaf spenntastur fyrir því næsta
sem ég geri, sem í þessu tilviki eru
lowercase nights tónleikarnir með
strákunum.“
Hann segir ýmislegt á döfinni.
„Ég byrjaði fyrst að koma fram sem
Gunnar Jónsson Collider af viti
árið 2015, eftir að ég gaf út Ape-
shedder EP-plötuna mína. Ég hef
gefið út eitthvað af músík á hverju
einasta ári síðan þá, nema í ár. Ég er
nefnilega búinn að vera að vinna
að tveimur plötum, en önnur er
einmitt sveimtónlist í anda lower-
case nights sem ég klára vonandi
bráðum.“
Gunnar segist vera búinn að
einangra sig töluvert í stúdíóinu
undanfarna mánuði. „Ég er þar af
leiðandi búinn að loka mig mikið
af í stúdíóinu þetta árið, þar sem
ég sé ekki til sólar og bogra yfir
hljóðgervlum og græjum og verð
skrítnari með hverjum deginum
sem líður. Maður getur orðið
klikkaður á þannig vinnu, svo ég er
sérstaklega spenntur fyrir lower-
case kvöldinu og að spinna músík
með öðru fólk. Maður afskrítnast
vonandi eitthvað við það! Vonum
það besta,“ segir Gunnar, léttur í
lund.
Viðburðurinn fer fram á Prikinu
á sunnudaginn, 27. október, frá
klukkan 21.30 til miðnættis og er
aðgangur ókeypis.
FERMINGARGJAFIR
Fimmtudaginn 15. mars gefur Fréttablaðið út
bráðsniðugt aukablað sem innheldur ótal
hugmyndir að fjölbreyttum fermingargjöfum.
Allir sem hafa fermst vita að dagurinn og ekki síst
gjarnar lifa í minningunni um aldur og ævi.
Tryggðu þér gott auglýsingapláss
í langmest lesna dagblaði landsins.
Upplýsingar hjá auglýsingadeild Fréttablaðsins í síma 512 5402
eða sendu okkur póst á netfangið serblod@frettabladid.is
VEGAN
Föstudaginn 1. nóvember er alþjóðlegi vegan dagurinn og í tilefni hans
ætlar Fréttblaðið að gefa út sérblaðið Vegan þann sama dag.
Tryggðu þér gott auglýsingapláss í langmest lesna dagblaði landsins.
Nánari upplýsingar um blaðið veitir
Arnar Magnússon
Sölu- og markaðsfulltrúi Fréttablaðsins
arnarm@frettabladid.is Sími: 550-5652
6 KYNNINGARBLAÐ FÓLK 2 6 . O K TÓ B E R 2 0 1 9 L AU G A R DAG U R
2
6
-1
0
-2
0
1
9
0
4
:4
1
F
B
0
8
8
s
_
P
0
6
9
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
8
8
s
_
P
0
6
0
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
8
8
s
_
P
0
2
0
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
8
8
s
_
P
0
2
9
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 2
4
1
6
-A
F
3
C
2
4
1
6
-A
E
0
0
2
4
1
6
-A
C
C
4
2
4
1
6
-A
B
8
8
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
4
B
F
B
0
8
8
s
_
2
5
_
1
0
_
2
0
1
C
M
Y
K