Fréttablaðið - 26.10.2019, Blaðsíða 66

Fréttablaðið - 26.10.2019, Blaðsíða 66
Kr i s t í n S i g u r ð a r -dóttir kennari býr á Húsavík og starfar þar í eldhúsi sjúkra-hússins en er stödd í miðborg Reykja- víkur þegar fundum okkar ber saman. „Ég er að rembast við að rata um hin ýmsu hverfi, stundum með hjálp gamals GPS-tækis sem er ekkert nema óþægðin við mig en ég bjarga mér,“ segir hún brosandi. Fyrir utan að heilsa upp á vini og vandamenn notar Kristín borgar- ferðir til að kíkja í búðir, meðal annars bókabúðir, því hún kveðst óforbetranlegur bókaormur. „Stundum gengur mér illa að sofa á nóttunni og þá les ég. Ég nýti hverja stund. Svo met ég hverja bók í mínum huga, gef henni umsögn og einkunn í lestrardagbók og er búin að fylla nokkrar slíkar. Ég vil ekki safna bókum í bókahillu, þar safna þær bara ryki og eru mér til ama. Þess vegna geymi ég bækurnar sem ég hef lesið í lestrardagbókum og ef ég vil lesa þær aftur sæki ég þær á bókasafnið.“ Áhugann á bókum segist Kristín hafa erft frá móður sinni. „Bóka- safn lestrarfélagsins var heima hjá okkur upphaf lega en svo fjölgaði okkur börnunum svo það varð ekki pláss fyrir það. En mamma las allt sem kom út. Innansveitarkrón- ikan var lengi á náttborðinu hjá henni og ef hún hafði ekkert annað að lesa greip hún hana. Hún hafði enga aðra afþreyingu en lesturinn og fannst alltaf notalegt að leggja sig með bók. Ég vil lesa í rúminu líka.“ Móðir Kristínar var vestan af Barðaströnd. „Mamma kom norður í Þingeyjarsýslu, giftist og fór að eiga börn. Heimilið var mannmargt svo hún átti ekki heimangengt og fór ekki vestur á sínar æskuslóðir í sextán ár. Það var bara eins og hún hefði komið frá Japan. Síminn var líka eins og hann var, ekkert hægt að tala um neitt persónulegt í hann, því aðrir gátu hlustað á samtölin. Þá var að halla sér að bókunum. Ég skil vel útlendingana sem eru komnir hingað í vinnu til okkar og eru með heimþrá. Ég tek málstað þeirra. Menningin er ólík milli svæða og það er erfitt að vera langt frá sínu fólki.“ Bókin oft það eina að hverfa til Þingeyingnum Kristínu Sigurðardóttur er bókmenntaáhugi í blóð borinn. Hún er metnaðarfullur lesandi sem heldur lestrardagbækur yfir það sem hún les og gefur hverri bók umsögn og stjörnur. Sjálf á hún sögu í smíðum. „Stundum gengur mér illa að sofa á nóttunni og þá les ég. Ég nýti hverja stund,“ segir Kristín. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON BRINK Gunnþóra Gunnarsdóttir gun@frettabladid.is Greinilegt er að Kristín lætur sér fátt mannlegt óviðkomandi enda kveðst hún alin upp við líf leg skoð- anaskipti um þjóðfélags- og menn- ingarmál. „Það var skápur í eld- húsinu heima, þegar ég var barn, sem ég faldi mig oft í þegar einhver kom, þar gat ég fylgst með samræð- um. Ég var frekar rekin í rúmið ef ég var undir borði. Þegar fólkið hennar mömmu kom að vestan í heimsókn og aðeins var fengið sér í staup – ekkert fyllerí samt – blossuðu umræðurnar upp, meðal annars um bókmenntir. Þá var skápurinn í miklu uppáhaldi.“ Barnaskólinn brást Kristín er fædd 1953 og uppal- in í Reykjahverfi, rétt sunnan við Húsavík. „Skógahlíð hét bærinn minn. Við vorum sex systkinin og ég yngst. Það voru tíu í heimilinu, afi var þar og frændi minn líka,“ lýsir hún. Þótt Þingeyingar séu þekktir fyrir sína menningu finnst Kristínu hafa vantað talsvert upp á metnaðinn í barnaskóla sveitarinnar þegar hún var þar. „Það var farskóli hjá okkur sem þýddi að kennarinn fór milli héraða. Við áttum að læra heima þegar hann var við kennslu á Tjör- nesi, samt var ekkert lagt upp úr því. Kennarinn var sautján ára strákur og það er ekki nóg að kennari sé vel að sér, hann þarf líka að ná til barnanna en þannig var það ekki í þessu tilfelli. Svo fengum við hvorki leikfimi- né tungumálakennslu,“ segir Kristín en bendir á að smæð hafi háð litlum sveitarfélögum og þau ekki haft bolmagn til að sinna skyldum sínum gagnvart íbúum. „Síðar sameinuðust nokkur sveitar- félög um uppbyggingu skóla og eftir það fengu nemendurnir menntaða kennara.“ En Kristín fór í héraðsskólann á Laugum þegar hún hafði aldur til. „Það var alveg brekka að fara í ungl- ingaskóla með þessa litlu undir- stöðu sem ég hafði, sérstaklega í sambandi við enskuna. Mér gekk samt vel að læra og langaði mjög í Samvinnuskólann á Bifröst en hún kom svo snemma fyrsta stelpan mín og þá fór ég bara að vinna í fiski á Húsavík, með heimilisstörfum.“ Í nám eftir barnauppeldið Menntunarþráin blundaði þó alltaf í Kristínu og þar kom að hún fór í frekara nám. „Það var einmitt elsta stelpan mín sem sagði: „Mamma, nú átt þú að fara í skóla, það er fullt af konum í framhaldsskólanum og ég sé alveg að þú átt heima í þeim hópi.“ Það var brjálað að gera hjá mér og allt í drasli, það fauk svo- lítið í mig og ég svaraði: „Hvað heldurðu að ég hafi tíma til þess?“ – fór út á snúru og fann að það var einhver tuddi í mér. Þetta kom við mig. Að lokum gerði ég þó eins og hún sagði, fór í Framhaldsskólann á Húsavík og það var æðislega gaman, skemmtilegur hópur sem ég var í. Svo lærði ég meira seinna, fór í kennaranám við Háskólann á Akureyri, hafði kompu þar en keyrði líka á milli. Þá var ég fimm- tug. Mér fannst mest gaman að skrifa verkefnin, líður alltaf vel fyrir framan tölvuna. Svo fór ég að kenna en eins og mig grunaði hafði ég ekki nógu sterka sjálfsmynd í það og gekk ekki vel með krakkana svo ég hætti f ljótlega. Þá fór ég að vinna á skrifstofu en sinnaðist við skrifstofustjórann svo ég fór bara aftur í fisk. Núna er ég að vinna í eldhúsinu á sjúkrahúsinu, þannig að ég hef farið til baka í frumgrein- arnar. En til að bæta mér það upp andlega hef ég skrifað, meðal ann- ars í Kvennablaðið, meðan það var og hét. Hef alltaf verið skrifandi. Í lesdagbókunum mínum þjálfast ég í að hafa stílinn knappan og slíp- aðan. Svo er ég með handrit sem getur orðið bók, að minnsta kosti fyrir börnin mín.“ Almennum lesendum vantreyst Í einum af pistlum sínum í Kvenna- blaðinu fjallar Kristín um lesenda- verðlaun. Ég bið hana að lýsa þeirri hugmynd. „Ég er ekki alltaf nógu ánægð með hvernig verðlaunahafar í bókmenntum eru valdir og finnst oft hinum almenna lesanda vera vantreyst. Mér þætti upplagt að til dæmis á degi bókarinnar í apríl fengju lesendur að velja bækur og höfunda sem þeim féllu best.“ Spurð sjálf um íslenskan eftir- lætishöfund og bestu bókina svarar Kristín: „Það er enginn einn höf- undur í uppáhaldi en Hallgrímur Helgason og Vilborg Davíðsdóttir eru á þeim lista. Líka Kristín Steins- dóttir sem mér finnst að hefði mátt fá verðlaun, eða að minnsta kosti tilnefningar fyrir bækur sínar, til dæmis fyrir bókina Ekki vera sár. Ég er hrifin af Indjánanum hjá Jóni Gnarr en Dísusaga Vigdísar Gríms- dóttur er í fyrsta sæti, það er svo mikið af mér í henni. Ég bý enn við mína Gríms og tala rósamál vegna þess að ég er af sömu kynslóð og Dísa og fékk ekki það veganesti að það þætti eðlilegt að ræða um erfiða hluti. Fólk var svo gríðarlega lokað – og er oft enn. Það var til dæmis alltaf einhver leynd sem hvíldi yfir fólk- inu mínu fyrir vestan og þegar ég fór að grufla í ættfræðinni komst ég að því að ég var í sjöunda lið frá Stein- unni á Sjöundá en það mátti ekkert ræða það. Það var stutt í skömmina hjá afa mínum á Barðaströnd. Hann var fæddur á sömu öld og atburðirn- ir á Sjöundá gerðust og langamma hans var sett á sveit eftir fangelsun Steinunnar móður hennar. Kannski kynntist hann þeirri konu og þekkti sem barn.“ Kristín varð ekkja fyrir rúmu ári og segir sorgina meðal þess sem sé ekki til siðs að tala um eftir að jarðarförin sé um garð gengin. „Ég leyfi mér þó að hampa manninum mínum í samtölum við fólk, minn- ist oft á hann. Það er viss lækninga- máttur fólginn í því að opna skápa, ég er alveg búin að átta mig á því. Samt er bókin oft það eina að hverfa til.“ Suðurglugginn Höfundur: Gyrðir Elíasson Dagsetning: Júní 2013 Rithöfundur fær leigðan sumar- bústað með von um betra gengi við skáldsöguna sem hann er að skrifa. Hann vill varðveita hverfula tilveru og neitar að tölvuvæðast í stað ritvélar. Hann gerist einrænn og forðast samskipti við ættingjana. Gyrðir nær frábærlega að skapa hinn algjöra hversdag með einmana- leika og depurð. Þér líður betur í Sloggi TILBOÐ Á NÆSTA ÚTSÖLUSTAÐ Sloggi Maxi 3 í pakka 2 6 . O K T Ó B E R 2 0 1 9 L A U G A R D A G U R30 H E L G I N ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð 2 6 -1 0 -2 0 1 9 0 4 :4 1 F B 0 8 8 s _ P 0 6 6 K .p 1 .p d f F B 0 8 8 s _ P 0 6 3 K .p 1 .p d f F B 0 8 8 s _ P 0 2 3 K .p 1 .p d f F B 0 8 8 s _ P 0 2 6 K .p 1 .p d f A u to m a tio n P la te re m a k e : 2 4 1 6 -D 1 C C 2 4 1 6 -D 0 9 0 2 4 1 6 -C F 5 4 2 4 1 6 -C E 1 8 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 8 A F B 0 8 8 s _ 2 5 _ 1 0 _ 2 0 1 C M Y K
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.