Fréttablaðið - 02.11.2019, Qupperneq 2
Verkurinn er alltaf
með mér en ég leyfi
honum ekki að ráða neinu.
Steingrímur Sævarr Ólafsson,
fjölmiðlaráðgjafi
Veður
Austanátt í dag, víða 5-10 en 10-15
á Suðausturlandi. Dálítil rigning og
síðar snjókoma austan til á landinu
en þurrt síðdegis. Lengst af bjart-
viðri um vestanvert landið.
SJÁ SÍÐU 40
Tékkað á Tákni
Stytturnar ellefu í listaverkinu Tákni eftir Steinunni Þórarinsdóttur fengu í gærmorgun grænt ljós til vetrardvalar á þaki Arnarhvols, byggingu
fjármálaráðuneytisins. Var farið yfir festingarnar því ákveðið hefur verið að þær standi áfram á þakinu í vetur og allt til 1. október á næsta ári.
Tákn var hluti verkefnis Listasafns Reykjavíkur um list í almenningsrými og átti í upphafi að vera á Arnarhvoli sumarlangt. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON BRINK
SAMFÉL AG Steingrímur Sævarr
Ólafsson, fjölmiðlaráðgjafi og fyrr-
verandi ritstjóri, hefur lifað með
höfuðverk í 28 ár. Þann 31. október
árið 1991, þegar Steingrímur var 25
ára, lenti hann í hörðum árekstri
á gatnamótum Grensásvegar og
Miklubrautar og lífið varð ekki
samt á eftir.
„Ég lenti í þriggja bíla árekstri
þar sem tveir bílar sameinuðust
um að keyra á mig. Öryggisbeltið
tók höggið af fyrri árekstrinum en
ekki þeim síðari. Þá kom hnykkur
sem leiddi til höfuðverks þetta sama
kvöld,“ segir Steingrímur.
Samkvæmt dagbókum lögregl-
unnar taldist þetta lítill árekstur,
en bíllinn gjöreyðilagðist og Stein-
grímur þurfti aðhlynningu á sjúkra-
húsi. Síðar fékk hann metna örorku
upp á fjögur prósent vegna höfuð-
verksins sem fylgt hefur allar götur
síðan. „Það er lífið fyrir áreksturinn
og hausverkurinn eftir hann,“ segir
Steingrímur.
Þó að verkurinn sé viðvarandi er
hann ekki alltaf jafn sterkur. Stein-
grímur lýsir þessu eins og svengd,
sem sveif last yfir daginn. Hann
segir að verstu verkirnir séu eins og
mígreni. Hann verði ljósfælinn og
þurfi að leggjast út af á meðan þetta
gengur yfir.
„Stundum átta ég mig ekki á því
að verkurinn sé þarna, en hann er
alltaf þarna. Ég held að allt venjist
og það er hægt að lifa með öllum
sársauka, hvort sem hann er líkam-
legur eða andlegur,“ segir hann.
„Ég er búinn að sætta mig við að
verkurinn sé samferðamaður minn
í gegnum lífið og þar af leiðandi
búinn að venjast honum. Ég læt
þetta ekki stjórna mér. Verkurinn
er alltaf með mér en ég leyfi honum
ekki að ráða neinu.“
Þó að Steingrímur hafi sæst við
þessi örlög hefur hann ekki gefist
upp á að reyna að minnka eða
jafnvel eyða verknum og leyfir
sér að vera bjartsýnn um að það
takist einhvern tímann. Varla er
til sú remedía sem hann hefur ekki
reynt. Ótal tegundir nuddmeðferða,
sjúkraþjálfun, hnykkingar, jóga,
hugleiðsla, nálastungur, heilun,
koddar, bakstrar, krem og öll leyfi-
leg lyf, bæði náttúrulyf og önnur.
Meira að segja áruhreinsun.
Steingrímur segir að leitinni að
töfralausninni ljúki aldrei en val-
kostunum, sem honum hefur verið
bent á, fækki með hverju árinu.
„Sumt hefur dugað til skamms
tíma, sumt virkar alls ekki og ekk-
ert hefur virkað til langs tíma,“
segir hann. Aðspurður um hvað
hafi virkað best segir hann það vera
blönduna af reglulegri hreyfingu
og minnkun sykurs í mataræði, en
þetta hafi hann uppgötvað fyrir
ekki svo löngu.
Tilfelli Steingríms er ekki eins-
dæmi og er hann í sambandi við
fleira fólk sem þjáist af langvarandi
höfuðverkjum. „Ég segi ekki að við
höfum stofnað samtök en við ræð-
umst við, deilum ráðum og berum
saman bækur okkar um hvað hafi
virkað.“
kristinnhaukur@frettabladid.is
Með höfuðverk í 28 ár
Steingrímur Sævarr Ólafsson lenti í bílslysi árið 1991 og hefur þjáðst af höfuð-
verkjum síðan. Hann leyfir „samferðamanninum“ ekki að stjórna lífi sínu.
Steingrímur lenti í afdrifaríkum þriggja bíla árekstri 1991. FRÉTTABLAÐIÐ/ERNIR
Ökuland ehf.
Ökuskóli
Akstursþjálfun
hjá Mercedes-Benz í Þýskalandi
fyrir ökumenn og eigendur
hópbifreiða sem og aðra áhugasama
• Metin til endurmenntunar bílstjóra
• Heimsókn í hópbifreiðaverksmiðju
• Tæknisafnið í Speyer
Fararstjóri: Guðni Sveinn 899 1779
gudni@okuland.is
Verð: 185.000.kr.
Hægt er að sækja um styrki til ferðarinnar.
Nánari upplýsingar um ferðatilhögun: www.okuland.is
Skráningu fer að ljúka.
01.-04. des. 2019
DÓMSMÁL Íslenska ríkið nýtur ráð-
gjafar norska lögmannsins Thomas
Horn vegna Landsréttarmálsins
sem er nú til meðferðar hjá yfirdeild
Mannréttindadómstóls Evrópu.
Þetta staðfestir Áslaug Arna
Sigurbjörnsdóttir dómsmálaráð-
herra. Greinargerð ríkisins í mál-
inu verður send dómstólnum síðar
í þessum mánuði.
Áslaug segir ekki hafa verið
ákveðið hvort Horn muni f lytja
málið fyrir Ísland, en munnlegur
málf lutningur er fyrirhugaður
við dóminn í febrúar á næsta ári,
en hann veiti ráðgjöf bæði vegna
greinargerðar ríkisins og vegna
málflutningsins. Hún áréttar þó að
ríkislögmaður hafi forræði í málinu
af hálfu ríkisins.
Thomas Horn veitti ríkinu einn-
ig ráðgjöf eftir að dómur Mannrétt-
indadómstólsins var kveðinn upp
12. mars síðastliðinn í aðdraganda
þess að ákvörðun var tekin um að
vísa málinu til yfirdeildar.
Aðeins eitt mál frá Íslandi hefur
verið f lutt munnlega við yfirdeild
dómsins en það er mál lögmann-
anna Gests Jónssonar og Ragnars
Hall. Það var f lutt fyrir mánuði í
Strassborg og ætla má að nokkrir
mánuðir líði áður en dómur í því
verður kveðinn upp. – aá
Thomas Horn
aðstoðar ríkið í
Landsréttarmáli
Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir.
FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON BRINK
HEILSA Mikilvægt er að þeir sem
starfa í veitingahúsum, mötu-
neytum, verslunum og matvæla-
vinnslum forðist að meðhöndla
matvæli í tvo sólarhringa eftir að
einkenni niðurgangspestar hverfa.
Þetta kemur fram í leiðbeiningum
sem Matvælastofnun hefur sent frá
sér.
Tilefni þessa er að nóróveiru-
sýkingar hafa verið áberandi að
undanförnu. Bent er á að smitleiðir
séu margar og veiran geti smitast
beint milli manna við snertingu.
Algeng smitleið sé mengun mat-
væla frá sýktum einstaklingum.
Þá segir að helstu einkenni sýk-
ingarinnar séu niðurgangur, upp-
köst, kviðverkir, beinverkir, höfuð-
verkur og vægur hiti. Liðið geti
einn til tveir sólarhringar frá smiti
þar til einkenna verður vart. Sjúk-
dómurinn gengur í langf lestum
tilfellum yfir á einum til þremur
sólarhringum. – jþ
Matur getur
borið nórósmit
2 . N Ó V E M B E R 2 0 1 9 L A U G A R D A G U R2 F R É T T I R ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð
0
2
-1
1
-2
0
1
9
0
5
:0
7
F
B
1
0
4
s
_
P
1
0
3
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
0
4
s
_
P
0
9
0
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
0
4
s
_
P
0
0
2
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
0
4
s
_
P
0
1
5
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
2
4
2
4
-4
A
A
4
2
4
2
4
-4
9
6
8
2
4
2
4
-4
8
2
C
2
4
2
4
-4
6
F
0
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
1
B
F
B
1
0
4
s
_
1
_
1
1
_
2
0
1
9
C
M
Y
K