Fréttablaðið - 02.11.2019, Page 4

Fréttablaðið - 02.11.2019, Page 4
Það er fullkomlega eðlilegt að við slíkar aðstæður skapist ákveðin óánægja. Við höfum fullan skilning á því og viljum bregðast við því. Hanna Sigríður Gunn steins dóttir, forstjóri Vinnueftirlitsins Silja Dögg Gunnarsdóttir þingmaður Fram- sóknarf lokksins var formlega kjörin í emb- ætti forseta Norðurlanda- ráðs á næsta ári þegar Ísland fer með formennsku í ráðinu. Silja kynnti for- mennskuáætlun Íslands á þingi Norðurlandaráðs sem fór fram í Stokkhólmi í vikunni en næsta þing mun fara fram í Reykjavík. Atli Rafn Sigurðsson leikari sat fyrir héraðs- dómi þar sem kveðið var upp að Borgarleik- húsi og Kristínu Eysteinsdóttur leikhússtjóra beri að greiða Atla 5,5 milljónir í bætur vegna uppsagnar hans í desember 2017. Stjórn Leikfélags Reykja- víkur hefur tekið ákvörðun um að áfrýja dómnum til Lands- réttar. Julia Kuczynska ofurfyrirsæta hefur verið harðlega gagn- rýnd í pólskum lífsstílsmiðlum fyrir að traðka á íslenskum mosa. Julia var stödd hér á landi til að taka upp auglýsingu fyrir fataframleiðanda, en á myndunum sem birtast á lífs- stílsmiðlunum sést hún ásamt tökuliði sínu fara inn á mosa- gróin svæði sem afmörkuð eru með bandi. Þrjú í fréttum Forseti, fyrirsæta og Héraðsdómur TÖLUR VIKUNNAR 27.10.2019 TIL 02.11.2019 JEEP® GRAND CHEROKEE FÁANLEGUR MEÐ 33” EÐA 35” BREYTINGU ® ALVÖRU JEPPI - ALVÖRU FJÓRHJÓLADRIF • 3.0L V6 DÍSEL • 250HÖ / 570 NM TOG • 8 GÍRA SJÁLFSKIPTING • LOFTPÚÐAFJÖÐRUN • LÆSING Í AFTURDRIFI jeep.is JEEP® GRAND CHEROKEE VERÐ FRÁ 10.990.000 KR. UMBOÐSAÐILI JEEP® Á ÍSLANDI • ÍSLENSK-BANDARÍSKA • ÞVERHOLT 6 • 270 MOSFELLSBÆR • S. 534 4433 WWW.ISBAND.IS • ISBAND@ISBAND.IS • OPIÐ VIRKA DAGA 10-18 • LAUGARDAGA 12-16 33” BREYTTUR 1,7 prósenta hagvexti er spáð á næsta ári samkvæmt nýrri þjóðhagsspá Hagstofunnar. Í vor spáði Hag- stofan 2,6 pró- senta hagvexti. 80 starfsmenn KPMG fengu uppsölu- og niðurgangs- pest daginn fyrir árshátíð endurskoð- endafyrir- tækisins. 48,4 er skattahlutfall Frakka í pró- sentum, en þeir greiða hæstu skatta í Evrópu. Ísland situr í 17. sæti Evrópu- sambandsins. 83,2 prósent blaða- manna greiddu atkvæði með vinnustöðvun. Blaðamenn hafa ekki farið í verkfall í 40 ár. 183.107 farþegar komu til Íslands með skemmtiferðaskipum á þessu ári. Síðasta skip sumarsins sigldi úr Sundahöfn í vikunni. VINNUMARKAÐUR Starfsmanna- velta hjá Vinnueftirlitinu hefur verið mikil og stofnunin varð í þriðja neðsta sæti starfsmannakönnunar meðal stofnana. Ásmundur Einar Daðason félags- málaráðherra skipaði Hönnu Sigríði Gunn steins dótt ur forstjóra Vinnu- eftirlitsins í lok desember 2018. Fyrsta starfsár Hönnu hefur gengið brösulega því mikill órói hefur verið meðal starfsfólks. Segja heimildir Fréttablaðsins stjórnunar- hætti hennar hluta vandans Hanna vísar því á bug. Ýmsar nauðsynlega breytingar hafi verið gerðar á skipulagi. Sameyki, áður SFR og Starfs- mannafélag Reykjavíkurborgar, gerir ár hvert umfangsmikla starfs- mannakönnun þar sem líðan starfs- fólks er mæld. Vinnueftirlitið var í 62. sæti árið 2018 en í niðurstöð- unum í ár var stofnunin dottin niður í 80. og þriðja neðsta sæti. „Vinnueftirlitið hefur lengi komið illa út úr könnun Sameykis. Okkur þótti því mikilvægt að bregðast við þeim niðurstöðum með mark- vissum hætti,“ segir Hanna. Dýpri könnun hafi sýnt að starfsanda væri ábótavant. Voru niðurstöðurnar sláandi. Um 25 prósent starfsfólks kváðust hafa upplifað einelti á vinnustað og 20 prósent sögðust hafa upplifað ofbeldi þar. „Ég legg áherslu á að við tökum þessum ábendingum sem fram koma í könnununum mjög alvarlega og höfum þegar hafið vinnu við að betrumbæta þá þætti sem þær tóku til og fengu slaka útkomu,“ segir Hanna Sigríður. Meðal annars hafi verið samþykkt ný viðbragðsáætlun sem tekur á tilkynningum vegna slíkra mála. Þá hafi einnig verið gerður samn- ingur við sálfræðistofuna Líf og sál sem er sérhæfð á þessu sviði og starfsfólki bent á að það geti leitað þangað. Farið hafi fram samskipta- vinnustofa og ný mannauðsáætlun kynnt fyrir starfsmönnum. Alls hafa ellefu starfsmenn látið af störfum eða sagt upp það sem af er ári hjá Vinnueftirlitinu en heildar- fjöldi starfsmanna hefur verið um sjötíu manns. Að sögn Hönnu var gripið til uppsagna vegna halla sem verið hefur á rekstrinum síðustu ár. „Það er fullkomlega eðlilegt að við slíkar aðstæður skapist ákveðin óánægja. Við höfum fullan skilning á því og viljum bregðast við því. Verkefni okkar núna er að bæta samskiptin og innri upplýsingagjöf og skapa öfluga liðsheild sem vinnur vel saman,“ segir forstjórinn. Kristinn Tómasson, fyrrverandi læknir Vinnueftirlitsins og stað- gengill forstjóra, hætti um mitt ár. Síðan þá hefur enginn læknir starfað við stofnunina. Lögum samkvæmt á að starfa þar læknir. Hanna segir að í nýju skipulagi sé gert ráð fyrir sérstakri atvinnu- sjúkdóma- og heilbrigðisdeild í sam- ræmi við lög. „Það er ekki gert ráð fyrir öðru en að læknir veiti þess- ari deild forstöðu. Áður en starfið verður auglýst þótti ástæða til að greina nánar hvers konar sérþekk- ingu þyrfti á að halda innan eftir- litsins með tilliti til þeirra verkefna sem gert er ráð fyrir að læknir sinni,“ segir Hanna. bjorn@frettabladid.is Fjórði hver orðið fyrir einelti í starfi sínu hjá Vinnueftirlitinu Niðurstaða könnunar starfsmanna Vinnueftirlitsins bendir til þess að þar sér ekki allt með felldu. Nýr forstjóri, Hanna Sigríður Gunnsteinsdóttir, gengst við vandamáli með líðan starfsmanna en segir slíkt ekki vera nýtt af nálinni í stofnuninni. Gripið hafi verið til viðamikilla aðgerða til að laga ástandið. Fyrsta starfsár nýs forstjóra Vinnueftirlitsins gengur brösulega því órói er meðal starfsfólks. FRÉTTABLAÐIÐ/ERNIR 2 . N Ó V E M B E R 2 0 1 9 L A U G A R D A G U R4 F R É T T I R ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð 0 2 -1 1 -2 0 1 9 0 5 :0 7 F B 1 0 4 s _ P 1 0 1 K .p 1 .p d f F B 1 0 4 s _ P 0 9 2 K .p 1 .p d f F B 1 0 4 s _ P 0 0 4 K .p 1 .p d f F B 1 0 4 s _ P 0 1 3 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 2 4 2 4 -5 E 6 4 2 4 2 4 -5 D 2 8 2 4 2 4 -5 B E C 2 4 2 4 -5 A B 0 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 3 B F B 1 0 4 s _ 1 _ 1 1 _ 2 0 1 9 C M Y K
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.