Fréttablaðið - 02.11.2019, Qupperneq 8
Það þarf að vera
miklu virkara
eftirlit til að tryggja að
vinnuveitendur fari eftir
reglunum.
Dovelyn Rannveig Mendoza
VINNUMARKAÐUR „Það er mikil-
vægt fyrir Ísland að hugsa til langs
tíma þegar kemur að innflytjendum
og erlendu vinnuaf li. Það verður
alltaf þörf fyrir vinnuafl. Það væri
kannski góð hugmynd að rifja upp
hvernig staðan var hérna snemma
á tíunda áratugnum þegar fólk
f luttist hingað og aðlagaðist sam-
félaginu,“ segir Dovelyn Rannveig
Mendoza, sem er sérfræðingur á
sviði fólksflutninga.
Dovelyn er frá Filippseyjum en
bjó og starfaði um tíma á Íslandi.
Hún sinnir nú rannsóknum og ráð-
gjöf til alþjóðastofnana og stjórn-
valda víða um heim. Í gær tók hún
þátt í pallborðsumræðum um mál-
efni erlends starfsfólks á Íslandi á
Þjóðarspegli Háskóla Íslands.
Dovelyn býr nú og starfar í Hol-
landi en hefur undanfarin ár að
mestu verið búsett í Bandaríkj-
unum. Hún fylgist þó með málum
á Íslandi og þekkir umræðuna um
erlent vinnuaf l. Lykilatriði sé góð
aðlögun innflytjenda að samfélag-
inu.
„Hlutirnir eru allt öðruvísi þegar
þú aðlagast samfélaginu og ert að
vinna við hliðina á heimamönnum.
Auðvitað er alltaf hætta á mismun-
un í sambandi við laun og ýmislegt
f leira en samskipti við heimamenn
breyta myndinni töluvert. Þegar
fólk einangrast í samfélaginu er
það í mjög viðkvæmri stöðu,“ segir
Dovelyn.
Vandamálin, bæði á Íslandi og
víðar, stafi oft af því að þörf hag-
kerfisins fyrir vinnuaf l sé oft árs-
tíða- eða tímabundin. Þá sé oft um
að ræða starfsmenn sem f lytjist
tímabundið milli landa og eigi því
erfiðara með að aðlagast samfélag-
inu.
Dovelyn segist oft heyra að
vandamálið snúist fyrst og fremst
um að erlent starfsfólk þekki ekki
réttindi sín. Reynsla hennar bendi
hins vegar til þess að oft sé fólk vel
meðvitað en sætti sig einfaldlega
við vissa mismunun þar sem því
bjóðist ekkert betra.
„Það er mjög mikilvægt að upp-
lýsa fólk um réttindi sín en í sumum
geirum er það ekki nóg. Það þarf
að vera miklu virkara eftirlit til
að tryggja að vinnuveitendur fari
eftir reglunum. Það er eitthvað sem
stjórnvöld verða á endanum að bera
ábyrgð á.“
Dovelyn undirbýr nú nýtt rann-
sóknarverkefni sem tengist stöð-
unni í Póllandi en þaðan hefur
mikið vinnuafl f lust til Íslands og
fleiri ríkja í Vestur-Evrópu.
„Nú er farið að bera á raunveru-
legum skorti á vinnuafli í Póllandi.
Þetta hefur leitt til þess að Pólverjar
þurfa að sækja sér vinnuaf l, aðal-
lega í Suður-Asíu.“
Hún segir hægt að ræða fólks-
f lutninga frá ótal hliðum en til-
hneigingin sé að einblína á það
sem miður fari. „Það er líka fullt af
jákvæðum sögum. Ég hef verið að
skoða tölfræði frá OECD og f leiri
aðilum varðandi Ísland. Staðan hér
er nokkuð góð í samanburði við
önnur Evrópulönd.“
Þannig sé atvinnuþátttaka inn-
f lytjenda mest á Íslandi innan
OECD og langtímaatvinnuleysi
sama hóps það fimmta minnsta.
„Við getum líka skoðað hluti eins
og hvort innflytjendur telji að verið
sé að brjóta á sér á vinnumarkaði.
Á Íslandi telja rúm átta prósent
erlends vinnuaf ls að svo sé. Það
er lægsta hlutfallið á Norðurlönd-
unum.“ sighvatur@frettabladid.is
Ekki nóg að upplýsa
fólk um réttindi sín
Íslendingar þurfa að hugsa til langs tíma þegar kemur að erlendu vinnuafli,
segir sérfræðingur á sviði fólksflutninga. Aðlögun sé lykilatriði. Staðan á Ís-
landi sé hins vegar að mörgu leyti góð hvað snertir alþjóðlegan samanburð.
Dovelyn Rannveig Mendoza segir stöðu erlends verkafólks á Íslandi góða í
alþjóðlegum samanburði samkvæmt athugunum. FRÉTTABLAÐIÐ/ERNIR
S Ö N G L E I K U R I N N
2.000 KR. AFSLÁTTUR Á MATTHILDI
EF KEYPT ER Á NETINU.
Í tilefni 30 ára afmælis Borgarleikhússins gefum
við afmælisgjöf!
Sýningar eru um helgar kl. 13.
Tilboðið gildir til 15. nóvember.
borgarleikhus.is
Tryggðu þér miða með því
að mynda þetta tákn.
VIÐSKIPTI Efnt var til stofnfundar
Rússnesk-íslensks viðskiptaráðs í
sendiráði Rússlands í gær. Mark-
miðið er að styrkja góð tengsl land-
anna á sviðum viðskipta, stjórn-
mála, menntunar og menningar.
Utanríkisráðherra Íslands, Guð-
laugur Þór Þórðarson, og sendi-
herra Rússlands á Íslandi, Anton V.
Vasilíev, tóku þátt í stofnfundinum
í gær ásamt stjórn og stofnendum
ráðsins.
Um fjörutíu fyrirtæki í sjávar-
útvegi og sjávarútvegstækni, mat-
vælaframleiðslu, nýsköpun og
ferðaþjónustu, standa að stofnun
ráðsins. Bæði er um að ræða fyrir-
tæki með langa viðskiptasögu í
Rússlandi sem og fyrirtæki sem eru
nú að hasla sér völl í landinu.
Í stjórn viðskiptaráðsins eru
Ari Edwald, forstjóri MS, Gunn-
þór Ingvason, framkvæmdastjóri
Síldarvinnslunnar, Tanya Zharov
lögfræðingur, Baldvin Johnsen, 3X
Skaginn, Bergur Guðmundsson,
Marel, Þorvarður Guðlaugsson, Ice-
landair, og Natalia Yukhnovskaya,
Icelandic Smoked Cod Liver.
Sigrún Lilja Guðbjartsdóttir er
framkvæmdastjóri ráðsins en hún
leiðir alþjóðlegu viðskiptaráðin hjá
Viðskiptaráði Íslands.
Ari Edwald, nýkjörinn formaður
ráðsins, segist finna mikinn áhuga
fyrirtækja til samvinnu í mark-
aðssókn á rússneska markaði.
„Umsvifin eru það mikil að það er
full þörf á að styðja við aukin við-
skipti ríkjanna. Við vonumst eftir
því að að endingu verði viðskiptin
enn liprari en þau eru í dag. Vinátta
þjóðanna hefur eflst undanfarin ár
og áhugi á samstarfstækifærum er
meiri en fyrr,“ segir hann.
Að sögn Ara verður fyrsti við-
burður ráðsins haldinn í Moskvu
26. nóvember þar sem íslensk fyrir-
tæki verða kynnt. Viðburðurinn
er hluti af dagskrá viðskiptasendi-
nefndar sem utanríkisráðherra
leiðir í tengslum við opinbera
heimsókn til Moskvu í lok þessa
mánaðar. david@frettabladid.is
Nýtt viðskiptaráð eflir
tengsl Rússa og Íslendinga
Stjórn Rússnesk-íslenska viðskiptaráðsins með þeim Guð-
laugi Þór Þórðarsyni utanríkisráðherra og Anton V. Vasilíev,
sendiherra Rússlands á Íslandi. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON BRINK +PLÚS
MENNING Magnús Geir Þórðar son
út varps stjóri hefur verið skipaður
næsti Þjóð leik hús stjóri og tekur
hann við leikhúsinu 1. janúar 2020.
Sjö um sækj endur voru um starf-
ið. Fram kemur í tilkynningu að
Þjóð leik hús ráð hafi veitt um sögn,
og sérstök hæfis nefnd mat hæfi
um sækj enda. Nefndin taldi fjóra
umsækjendur hæfasta. Í kjölfarið
boðaði ráðherra þá í viðtal.
Magnús Geir stundaði leik-
stjórnar nám við Bristol Old Vic
Thea ter School og lauk MA-gráðu
í leik hús fræðum frá Háskólanum
í Wa les. Þá hlaut hann MBA-gráðu
frá Há skólanum í Reykja vík. Áður
en hann tók við starfi út varps stjóra
var hann leik hús stjóri Borgar leik-
hússins og þar áður var hann leik-
hús stjóri Leik fé lags Akur eyrar. – jþ
Magnús Geir verður
Þjóðleikhússtjóri í janúar
Magnús Geir
Þórðar son,
verðandi Þjóð-
leikhússtjóri.
2 . N Ó V E M B E R 2 0 1 9 L A U G A R D A G U R8 F R É T T I R ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð
0
2
-1
1
-2
0
1
9
0
5
:0
7
F
B
1
0
4
s
_
P
0
9
7
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
0
4
s
_
P
0
9
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
0
4
s
_
P
0
0
8
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
0
4
s
_
P
0
0
9
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
2
4
2
4
-8
5
E
4
2
4
2
4
-8
4
A
8
2
4
2
4
-8
3
6
C
2
4
2
4
-8
2
3
0
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
7
B
F
B
1
0
4
s
_
1
_
1
1
_
2
0
1
9
C
M
Y
K