Fréttablaðið - 02.11.2019, Qupperneq 10
SKIPULAG
UM FRAMTÍÐINA
samspil skipulags við aðra áætlanagerð
um byggð, samgöngur og nýtingu lands
SKIPULAGSDAGURINN 2019
haldinn af Skipulagsstofnun í samvinnu
við Samband íslenskra sveitarfélaga
Skráning og nánari dagskrá er á skipulag.is
Stafrænt skipulag
Helena Björk Valtýsdóttir, teymisstjóri landupplýsinga á
Skipulagsstofnun
Gréta Hlín Sveinsdóttir, fagstjóri hjá Eflu
Pétur Ingi Haraldsson, skipulagsstjóri Akureyrarbæjar
Skipulag í samspili við stefnumótun um heimsmarkmið SÞ
Eva Björk Harðardóttir, oddviti Skaftárhrepps
Bergljót S. Einarsdóttir, verkefnisstjóri aðalskipulags hjá
Kópavogsbæ
Skipulag í samspili við áætlanagerð um ferðamál
Guðmundur Gunnarsson, bæjarstjóri Ísafjarðarbæjar
Björg Ágústsdóttir, bæjarstjóri Grundarfjarðarbæjar
Skipulag um framtíðina
umræður með spurningum úr sal
Guðmundur Ingi Guðbrandsson, umhverfis- og
auðlindaráðherra
Ásdís Hlökk Theodórsdóttir, forstjóri Skipulagsstofnunar
Guðjón Bragason, sviðsstjóri hjá Sambandi íslenskra
sveitarfélaga
Jóhannes Þórðarson, arkitekt Glámu-Kími
Jökull Sólberg Auðunsson, ráðgjafi
Sigurborg Ósk Haraldsdóttir, formaður skipulags- og
samgönguráðs Reykjavíkurborgar
Ráðstefnuslit, léttar veitingar 16.00
Húsið opnar kl 8.15
Dagskrá hefst kl 9.00
Ávarp Guðmundar Inga Guðbrandssonar, umhverfis-
og auðlindaráðherra
Andri Snær Magnason, rithöfundur slær tóninn fyrir
daginn með hugvekju – Um endurhönnun alls
Aldís Hafsteinsdóttir, formaður Sambands íslenskra
sveitarfélaga
Ásdís Hlökk Theodórsdóttir, forstjóri
Skipulagsstofnunar
Landsskipulagsstefna um loftslag, landslag og
lýðheilsu
Hrafnhildur Bragadóttir, sviðsstjóri á
Skipulagsstofnun
Kaffihlé
Skipulag í samspili við áætlanagerð um
húsnæðis- og samgöngumál
Sverrir Bollason, umhverfisverkfræðingur, VSÓ ráðgjöf
Kristján Þór Magnússon, sveitarstjóri Norðurþings
Hrafnkell Proppé, svæðisskipulagsstjóri á
höfuðborgarsvæðinu
Árni Freyr Stefánsson, sérfræðingur í samgöngu- og
sveitarstjórnarráðuneytinu
Hádegishlé kl 12.00
8. nóvember kl. 9-16 Norðurljósasal Hörpu
JÁRNIÐNAÐARMAÐUR
Faxaflóahafnir sf óska eftir að ráða járniðnaðarmann til starfa.
Starfið felst í vinnu við ýmis viðhaldsverkefni við hafnirnar.
Starfsmaðurinn mun hafa starfsstöð í Bækistöð Faxaflóahafna
að Fiskislóð 12 í Reykjavík.
Umsókn, ásamt ferilskrá sendist til Faxaflóahafna sf.,
á netfangið olafur@faxafloahafnir.is , eigi síðar en
föstudaginn 10. maí n.k.
Nánari upplýsingar um starfið gefur
Jóhann P. Guðnason yfirverkstjóri í síma 525 8951
Málþing með notendum
Faxaflóahafna
Fimmtudaginn 7. nóvember 2019,
kl. 16:00 í Hörpu
Til þess að kynna það sem efst er á baugi hjá Faxaflóahöfnum sf.
og fræðast um starfsemina á hafnarsvæðum fyrirtækisins boða
Faxaflóahafnir sf. til málþings fimmtudaginn 7. nóvember kl. 16:00,
Björtuloft, 5. hæð, Hörpu.
Dagskrá málþingsins á að snerta málefni sem flestra á hafnar-
svæðum Faxaflóahafna sf. og verður sem hér segir:
16:00 Ávarp formanns
Skúli Þór Helgason, stjórnarformaður
16.10 Yfirlit hafnarstjóra um verkefni og
framkvæmdir ársins 2020
Gísli Gíslason, hafnarstjóri
16:30 Uppbygging á Austurbakka
– skipulag í Örfirisey
Hildur Gunnlaugsdóttir, skipulagsfulltrúi
16:45 Rafmagn til skipa – framhald mála
Gunnar Tryggvason, aðstoðarhafnarstjóri
17:00 Hátækni vöruhús Innnes
Jóhanna Þ. Jónsdóttir, framkvæmdastjóri
aðfangakeðju Innness
17:15 Átakið #kvennastarf
Jón Hjalti Ásmundsson, skólastjóri
Skipstjórnar- og Véltækniskóla Tækniskólans
17:30 Umræður og fyrirspurnir
18:00 Fundarslit
Fundarstjóri:
Erna Kristjánsdóttir, markaðs- og gæðastjóri
Fundurinn er opinn öllum, en þeir sem eru með starfsemi á
hafnar svæðum Faxaflóahafna sf. eru sérstaklega hvattir til
að mæta. Á fundinum gefst tækifæri til þess að koma með
fyrirspurnir og ábendingar um það sem varðar hafnarrekstur,
þjónustu og aðstöðu fyrir viðskiptavini.
Gísli Gíslason,
hafnarstjóri
á höfuðborgarsvæðinu til sölu.
Upplýsingar gefur Helgi í síma 615 2426.
Bakarí
kaffihús
KJARAMÁL Brúðkaup Fígarós eftir
Mozart var sett upp í Íslensku óper-
unni í samvinnu við Þjóðleikhúsið.
Verkið var frumsýnt í byrjun sept-
ember og var gert ráð fyrir sex sýn-
ingum auk nokkurra aukasýninga
ef undirtektir yrðu góðar.
Ef marka má viðtökur áhorf-
enda og gagnrýnenda var um vel-
heppnaða sýningu að ræða. Svo fór
að óperan var sýnd átta sinnum.
Síðasta sýningin var 25. október
síðastliðinn.
Brúðkaup Fígarós er farsakennt
verk með alvarlegum undirtón og
því má segja að það sé að einhverju
leyti kaldhæðnislegt að eftir að
hlátrasköllin og gleðin eru hljóðnuð
í sal Þjóðleikhússins standi eftir
barátta söngvara sýningarinnar
fyrir betri kjörum.
Laun listamanna sem koma að
sýningum sem þessari skiptast
í kjör fyrir æfingatíma verksins
og greiðslur fyrir hverja sýningu.
Telja söngvararnir að mikið álag
hafi verið á æfingatíma verksins og
því hafi verið brotið á rétti þeirra.
Félag íslenskra hljómlistarmanna
hafi fyrir þeirra hönd gert kröfu um
leiðréttingu á launum fyrir æfinga-
tímann en Íslenska óperan hafi ekki
fallist á hana.
„Við teljum að þessi krafa FÍH sé
á misskilningi byggð. Í einfölduðu
máli byggir hún á eldri kjarasamn-
ingum þegar söngvarar voru fast-
ráðnir við Íslensku óperuna sem
hefur ekki verið raunin í tvo ára-
tugi. Þar er kveðið á um kjör fyrir
æfingatíma og síðan sýningar. Krafa
FÍH er sú að hækka aðeins launin
fyrir æfingatímabilið í takt við
þessa samninga en halda sýningar-
laununum óbreyttum. Staðreyndin
er sú að ef sýningarlaununum yrði
breytt í takt við sama samning þá
myndu heildarlaun allra lækka,“
segir Steinunn Birna Ragnarsdóttir
óperustjóri.
Steinunn Birna tekur undir að
álagi á æfingartíma verksins hafi
verið mjög misskipt. „Það vildi
þannig til að Sinfóníuhljómsveit
Íslands var í viku tónleikaferða-
lagi á meðan á æfingatímanum
stóð og því skapaðist mikið álag
vissar vikur. Það var auðvitað mjög
óheppilegt,“ segir Steinunn Birna.
Fullur vilji sé til þess að koma til
móts við listamennina með auka-
þóknun en það verði að vera innan
skynsamlegra marka.
„Við höfum lagt fram tilboð um
aukaþóknun vegna æfingatíma-
bilsins og hækkun sýningarlauna
en því verið hafnað. Það er fullur
vilji hjá okkur til að setjast niður
og komast að samkomulagi. Við
teljum hins vegar að forsendur fyrir
rekstrinum séu brostnar ef gengið
verður að kröfunum að fullu og
þær verði viðmiðið varðandi næstu
verkefni,“ segir Steinunn Birna.
Að sögn Steinunnar Birnu er hún
þó bjartsýn á að lausn á deilunni
muni nást innan tíðar. Ekki náðist
í Gunnar Hrafnsson, formann FÍH,
við vinnslu fréttarinnar.
bjornth@frettabladid.is
Deilt um kaup fyrir
Brúðkaup Fígarós
Íslenska óperan og söngvarar í Brúðkaupi Fígarós deila um kaup og kjör þótt
sýningum á verkinu sé lokið. Steinunn Birna Ragnarsdóttir óperustjóri segist
vongóð um lausn á deilunni. Hún sé að einhverju leyti byggð á misskilningi.
Frá sýningu á Brúðkaupi Fígarós hjá Íslensku óperunni í Þjóðleikhúsinu.
Staðreyndin er sú
að ef sýningarlaun-
unum yrði breytt í takt við
sama samning þá myndu
heildarlaun allra lækka.
Steinunn Birna Ragnarsdóttir,
óperustjóri
FJÁRMÁL Í nýrri þjóðhagsspá Hag-
stofunnar er gert ráð fyrir 1,7 pró-
senta hagvexti á næsta ári.
Við gerð fjárlagafrumvarps, sem
nú er til meðferðar í fjárlaganefnd,
var mið tekið af vorspá Hagstof-
unnar þar sem gert var ráð fyrir að
hagvöxtur næsta árs yrði 2,6 pró-
sent. Búast má því við að laga þurfi
frumvarpið að lægri hagvaxtarspá.
Fulltrúar Hagstofunnar kynntu
nýju spána á fundi fjárlaganefndar
í gær. Steinunn Þóra Árnadóttir,
þingmaður VG og nefndarmaður
í fjárlaganefnd, segir að gera megi
ráð fyrir að nefndarmenn meti nú
hvaða áhrif lækkuð spá hefur á fjár-
lagafrumvarpið.
„Við eigum eftir að leggjast yfir
þetta og ég reikna með að helgin
fari í það hjá hverjum og einum
nefndarmanni. Svo mun nefndin
skoða hvaða áhrif þetta hefur í
framhaldinu,“ segir Steinunn.
Þá kemur fram í spá Hagstofunn-
Spáir hóflegri hagvexti
Steinunn Þóra Árnadóttir.
ar að útlit sé fyrir að landsfram-
leiðsla dragist saman um 0,2 pró-
sent á yfirstandandi ári. Ástæður
þess samdráttar megi einkum rekja
til minni innlendrar eftirspurnar
á árinu og minni útf lutnings en á
síðasta ári. – jþ
2 . N Ó V E M B E R 2 0 1 9 L A U G A R D A G U R10 F R É T T I R ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð
0
2
-1
1
-2
0
1
9
0
5
:0
7
F
B
1
0
4
s
_
P
0
9
8
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
0
4
s
_
P
0
9
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
0
4
s
_
P
0
0
7
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
0
4
s
_
P
0
1
0
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
2
4
2
4
-8
0
F
4
2
4
2
4
-7
F
B
8
2
4
2
4
-7
E
7
C
2
4
2
4
-7
D
4
0
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
7
A
F
B
1
0
4
s
_
1
_
1
1
_
2
0
1
9
C
M
Y
K