Fréttablaðið - 02.11.2019, Side 26

Fréttablaðið - 02.11.2019, Side 26
ER ÉG BARA SVONA ÓHEPP- INN? VANTAR BLAÐSÍÐUR Í MIG? ER ÉG EKKI NÓGU GREINDUR? HVAR ER ÞETTA AÐ KOXA? Halldór Einarsson a t h a f n a m a ð u r og Magnús Guð-mundsson blaða-maður eru komnir t i l f u nd a r v ið blaðamann í miðbænum. Á Kaffi- barnum nánar tiltekið. Kannski óvanalegur staður fyrir heldri menn. En Halldór er nú ekkert venjulegur. „Gæti nokkur maður, sem hefur hitt Halldór, gleymt honum?“ spyr enda Tony Stephens, góður vinur hans allt frá því forðum daga að Henson var með búningana fyrir Aston Villa, í aðfararorðum að bókinni. Tony fékk seinna stöðu rekstrarstjóra Wembley og varð síðar umboðsmaður fyrir fótbolta- menn á borð við David Beckham og naut mikillar velgengni. „Ég myndi lýsa honum sem manni sem málar eins og Picasso og syngur eins og Meatloaf (á slæmu kvöldi),“ segir Tony um vin sinn og segir hann búa yfir óvanalega miklu hugrekki og að hann sé duglegur við að freista þess að láta drauma sína rætast. En það rætast auðvitað ekki allir draumar. Sérstaklega ekki þegar þeir eru nánast óteljandi. Það er líklega þess vegna sem ævisaga Halldórs kallast Stöngin út. Því sum ævintýri hans hafa mistekist á ævintýralegan hátt! Fór til miðils Hvernig hefur þetta samstarf ykkar Magnúsar gengið? „Ég var nú bara að segja við ein- hvern í morgun að þetta ferðalag okkar er bara búið að vera skemmti- legt. Við höfum vitað hvor af öðrum í gegnum félagið okkar Val og þetta hefur verið fínt samstarf,“ segir Halldór sem er mikill Valsari þrátt fyrir að hafa að mestu alist upp í Vesturbænum í Reykjavík. Þannig að þetta eigið þið alla vega sameiginlegt, að þið eruð báðir Valsarar? Hvernig kom það til að þú tókst þetta að þér, Magnús? „Þegar við hittumst á fyrsta fund- inum hjá Bjarna útgefanda þá var hann svona að velta því fyrir sér hvað væri í þessu eins og maður segir. Þá sagði Halldór söguna af því þegar hann varð eiginlega Þýska- landsmeistari með Ásgeiri Sigur- vins, mér fannst sú saga óborgan- leg og ákvað að ég vildi ekki missa af því að heyra f leiri sögur,“ segir Magnús. Í bókinni segir Halldór frá ýmsum viðskiptum þar sem allt virtist ætla að ganga upp þar til á síðustu stundu að eitthvað klikkar. „Minn vandi í viðskiptum og ýmsum ævintýrum lífsins er að ég kemst í dauðafæri en svo klikkar eitthvað. Benedikt Bachmann, vinur minn, sagði mér um aldamót- in að þetta væri bara ekki normalt. Það þyrfti svör frá handanheimum og hann vildi að ég færi til miðils. Þá var Þórhallur miðill aðalmað- urinn í þessum bransa svo ég dreif mig til hans. Hann fann engin svör og sendi mig til annars miðils,“ segir Halldór og hlær. Og segist meira að segja hafa farið til annars miðils daginn eftir sem hafi heldur ekki séð neitt og þó hafi sú beitt ýmsum ráðum og einnig dregið fram tarot- spilin. „En nei, Hemmi vinur minn var hins vegar með svarið. Hann heim- sótti nú handanheima um stund áður en hann lést. Hann fékk nefni- lega hjartaáfall og dó í nokkrar mínútur. Og eftir þá reynslu sagði hann við mig í hálfkæringi að fólkið þarna hinum megin hefði sitthvað við mig og aðra að athuga. Hann hlustaði oft á sögurnar mínar og sagðist myndu skrifa ævisögu mína. Og bókin, það kæmi ekki annað til greina en að hún ætti að heita: Stöngin út. Það skeður ekkert ef maður reynir ekkert. Við erum svo mis- jöfn. Ég hef auðvitað í gegnum öll þessi tækifæri – þá er ég að tala um þessi stóru tækifæri sem blöstu við mér – hugsað: Hvað er þetta? Leitin að svari endaði á því að ég fór til miðils. Benedikt sagði, Dóri, þetta er ekkert eðlilegt. Ég þekki Þórhall. Þú ferð til hans. Þórhallur greyið komst ekkert áfram. Hvers vegna er þetta? Er ég bara svona óhepp- inn? Vantar blaðsíður í mig? Er ég ekki nógu greindur? Hvar er þetta að koxa?“ Halldór vísar í vin sinn, Hermann Gunnarsson heitinn. Þeir voru nánir og Halldór stóð með honum í gegnum súrt og sætt. Hrakfallasögur bindi 1-5 „Halldór metur vináttuna mikils. Hann er einn vinaræknasti maður sem ég hef nokkru sinni hitt. En þessi miðilsfundur sem hann ákvað að freista þess að fá svör á kom í kjölfarið á því að hann var búinn að verða mjög stór í bissness á Íslandi en það minnkaði svo snarlega. Ég kemst í dauðafæri, svo klikkar eitthvað Halldór Einarsson, oft kenndur við Hen- son, gerir upp litríkt og ævintýralegt líf sitt í ævisögunni Stöngin út. Magnús Guð- mundsson blaðamaður skrifaði sögu hans og segir ferlið hafa verið lærdómsríkt. Magnús fékk ekki mikinn tíma aflögu með Halldóri því hann vinnur mikið. Þeir hittust klukkan eitt á sunnudögum um nokkurra mánaða skeið. FRÉTTABLAÐIÐ/SIGTRYGGUR ARI Kristjana Björg Guðbrandsdóttir kristjana@frettabladid.is Fyrir daga tölvupóstanna veitti ekki af tveimur símum á skrifstofunni. 2 . N Ó V E M B E R 2 0 1 9 L A U G A R D A G U R26 H E L G I N ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð 0 2 -1 1 -2 0 1 9 0 5 :0 7 F B 1 0 4 s _ P 0 8 2 K .p 1 .p d f F B 1 0 4 s _ P 0 7 9 K .p 1 .p d f F B 1 0 4 s _ P 0 2 3 K .p 1 .p d f F B 1 0 4 s _ P 0 2 6 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 2 4 2 4 -8 A D 4 2 4 2 4 -8 9 9 8 2 4 2 4 -8 8 5 C 2 4 2 4 -8 7 2 0 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 8 A F B 1 0 4 s _ 1 _ 1 1 _ 2 0 1 9 C M Y K
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.