Fréttablaðið - 02.11.2019, Síða 34
Skagaleikf lokkurinn ræðst ekki á garðinn þar sem hann er lægstur en söngleikurinn
Litla hryllingsbúðin eftir þá
Howard Ashman og Alan Menken
fór fyrst á fjalirnar í Ameríku
árið 1982. Árið 1986 kom síðan út
söngvamynd byggð á söngleikn-
um sem sló heldur betur í gegn
og tryggði honum heimsfrægð og
hylli beggja megin Atlantshafsins.
Þorsteinn Gíslason, sem leikur
blómabúðareigandann Markús
Músník, er að taka þátt í upp-
færslu hjá Skagaleikf lokknum í
fyrsta skipti. „Þetta er mín frum-
raun í þessum fræðum. Þegar ég
var yngri var ég í fótbolta sem gaf
mér ekki tíma til að taka þátt í
uppsetningum á leikritum þrátt
fyrir áhuga á slíku,“ segir Þor-
steinn.
„Ég hef verið að spila á gítar og
syngja, og fannst alltaf hálfóþægi-
legt að koma fram. Því ákvað ég
að stíga út fyrir þægindaram-
mann og reyna að vinna á sviðs-
skrekknum, og hvað er betra en
að taka þátt í svona uppsetn-
ingu?“ segir Þorsteinn. „Einnig
voru móðuramma mín og móðir í
Leikfélagi Akraness. Móðursystir
mín er Steinunn Jóhannesdóttir
leikkona. Því má segja að þetta
sé aðeins í blóðinu. Mamma mín
hvatti mig til að láta vaða og sagði
að ég þyrfti að prófa þetta alla-
vega einu sinni.“
Þorsteinn segir að það hafi
verið krefjandi á köf lum að
finna persónuna Músnik í
sér en honum finnst samt
mjög gaman að bregða sér
í hlutverk búðareigandans.
Það skemmtilegasta við það
að taka þátt í sýningunni að
hans sögn er þó að vinna með öllu
hæfileikafólkinu sem nóg er af í
þessari uppsetningu.
„Það hefur komið mér á óvart
hversu miklar æfingar eru á bak
við eitt svona verk, hversu marga
þarf til að láta svona verk verða
að veruleika og hversu margir eru
tilbúnir til að fórna tíma sínum
í svona uppfærslu,“ segir hann
og bætir við að hann mæli svo
sannarlega með því að taka þátt í
starfi leikfélags. „En ef fjölskylda
er til staðar, mæli ég með að reyna
að gera þetta í sátt við hana þar
sem þetta getur verið mjög tíma-
frekt.“
Þorsteinn segist vera bæði
spenntur og stressaður fyrir
frumsýningunni. „Þetta verður
mjög f lott og við erum búin að
leggja mikið á okkur. Ég hvet fólk
til að kíkja á Skagann og koma á
sýninguna.“
Gaman að sjá
sýninguna taka
á sig mynd
Kristján Gauti
Karlsson er líka
að taka þátt
í uppfærslu
hjá Skagaleik-
f lokknum í
fyrsta sinn. „Ég
leik tannlækn-
inn, sadistann,
kvalarann og
krípið Brodda
Sadó,“ segir Krist-
ján. „Ég skal viður-
kenna það að ég var
nokkuð lengi að
ná tengslum við karakterinn, en
núna þegar ég er orðinn örugg-
ari með mig í hlutverkinu þá
finnst mér mjög gaman að leika
hann. Broddi gefur sýningunni
ákveðið „power“. Hann er kaosið
í verkinu, óútreiknanleg fígúra
sem maður veit aldrei hvað gerir
næst.“
Kristján segir að sér hafi alltaf
þótt ótrúlega gaman að koma
fram þó hann hafi ekki mikið
leikið í gegnum tíðina. „Ég tók
þátt í einni nemendasýningu í
FVA og þar var núverandi for-
maður Skagaleikf lokksins
einmitt leikstjóri. Hann
hóaði í mig í haust og
hvatti mig til að skrá mig
á leiklistarnámskeið sem
leikf lokkurinn stóð fyrir.
Hann hvatti mig síðan til
að mæta í prufur fyrir
Hryllingsbúðina. Ég skellti mér
og komst inn, sem mér þótti mjög
ánægjulegt.“
Kristján segir að það hafi verið
gaman að sjá sýninguna taka á
sig mynd smám saman og tekur
undir með Þorsteini að allir
sem komi að uppsetningunni
séu mikið hæfileikafólk. „Það er
gaman að sjá hvernig öllum fer
fram með hverri æfingunni og
það er líka ánægjulegt að finna
sjálfan sig vaxa og verða öruggari
í eigin hlutverki eftir því sem
líður nær frumsýningu,“ segir
Kristján og bætir við að það sé
þegar uppselt á frumsýning-
una „Og það er kominn smá
fiðringur, ég neita því ekki.“
Litla hryllingsbúðin er
skopstæling á sci-fi kvik-
myndum frá sjötta áratug
síðustu aldar enda byggð á
einni slíkri frá árinu 1960.
Sagan segir af mun-
aðarleysingjanum
Baldri sem lifir
frekar óspenn-
andi lífi í
skuggahverf-
inu Skítþró.
Hann vinnur
í lítilli
blómabúð
hjá fóstra
sínum
Músnik
og lætur
sig dreyma
um framtíð
með Auði sem
vinnur með
honum í búðinni
og hann elskar í
laumi afar heitt.
Blómabúðin er við
það að leggja upp
laupana þegar Baldri
áskotnast framandi
planta sem hann nefnir
Auði tvö. Eftir því sem
plantan vex og dafnar,
aukast viðskiptin og
Baldur verður sífellt vin-
sælli. En ekki er allt gull
sem glóir.
Ljóð og leiktexti er eftir
Howard Ashman en tón-
listin er eftir Alan Menken
sem hefur samið ófáar perl-
urnar fyrir Disney-myndir
í gegnum tíðina. Þýðandi
óbundins máls er Gísli Rúnar
Jónsson en Magnús Þór Jóns-
son þýddi bundið mál.
Hryllingur á Akranesi
Skagaleikflokkurinn frumsýnir Litlu hryllingsbúðina í Bíóhöllinni á Akranesi næsta föstudag.
Hópur hæfileikafólks hefur unnið hörðum höndum að því að gera sýninguna sem glæsilegasta.
Sandra Guðrún
Guðmundsdóttir
sandragudrun@frettabladid.is
Kristján Gauti
Karlsson í hlut-
verki tannlæknisins
og sadistans
Brodda Sadós.
Þorsteinn
Gíslason leikur
blómabúðareig-
andann Markús
Músník.
Það hefur komið
mér á óvart hversu
miklar æfingar eru á bak
við eitt svona verk og
hversu margir eru til-
búnir að fórna tíma
sínum í svona uppfærslu.
Þorsteinn Gíslason
Mjög bragðgóð súpa sem auðvelt er að matbúa og hentar vel á þessum árs-
tíma. Uppskriftin miðast við fjóra
til fimm.
4 kjúklingabringur
1 rauður chili-pipar
3 hvítlauksrif
½ dl olía til steikingar
1 dl vatn
4 msk. rautt currypaste
3 dósir kókosmjólk
2 msk. taílensk fiskisósa
3 stilkar sítrónugras
Smávegis límónusafi
½ lúka taílenskt basil, ef það
fæst
1 lúka ferskar, grænar baunir
½ rauð paprika
1 lúka sveppir
2 eggaldin
Skerið kjúklinginn í þunnar
sneiðar. Skerið chili og hvítlauk
fínt og paprikuna í sneiðar. Gott
er að berja aðeins á sítrónugrasið
með buff hamri áður en það er
skorið niður. Skerið eggaldin í
fjóra hluta og sveppina í tvo.
Steikið fyrst chili-pipar og
hvítlauk í stórum potti, setjið
síðan kjúklingabitana. Því næst er
vatnið sett út í og currypaste. Þá
er kókosmjólk, fiskisósa, límónu-
safi og sítrónugras sett saman við
og allt látið sjóða í 20 mínútur.
Bætið þá sveppum, papriku,
eggaldini og baunum saman við.
Sjóðið í tíu mínútur og bragð-
bætið með salti og pipar
eftir smekk. Það er gott
að setja dálítið af
núðlum saman við.
Þetta er nokkuð
stór uppskrift
en ágætt er að
hita súpuna upp
daginn eftir, hún
er jafnvel betri þá.
Einföld taílensk kjúklingasúpa
Frábær súpa sem
einfalt er að útbúa.
OPIÐ ALLAR HELGAR
FRÁ KL. 11.00-17.00
KOMDU Í
KOLAPORTIÐ
D Á S A M L E G D E I L D S A M F É L A G S I N S
30
ÁRA
1989 2019
4 KYNNINGARBLAÐ FÓLK 2 . N ÓV E M B E R 2 0 1 9 L AU G A R DAG U R
0
2
-1
1
-2
0
1
9
0
5
:0
7
F
B
1
0
4
s
_
P
0
7
1
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
0
4
s
_
P
0
3
4
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
2
4
2
4
-9
9
A
4
2
4
2
4
-9
8
6
8
2
4
2
4
-9
7
2
C
2
4
2
4
-9
5
F
0
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
1
B
F
B
1
0
4
s
_
1
_
1
1
_
2
0
1
9
C
M
Y
K