Fréttablaðið - 02.11.2019, Page 36
Samkvæmt nýútkominni doktorsritgerð Norðmanns-ins Carina Ribe Fernee, sem
var unnin við háskólann í Agder
í Suður-Noregi, getur ný nálgun í
geðheilbrigðismeðferð, svokölluð
óbyggðameðferð, komið ung-
mennum að miklu gagni. Þetta
kemur fram í grein sem var unnin
í samstarfi við Agder-háskóla og
birtist á vef Science Norway.
Í Ástralíu, Kanada og Banda-
ríkjunum eru náttúra og óbyggðir
notuð til að veita meðferð við sál-
rænum og félagslegum vandamál-
um. Þessi óbyggðameðferð hefur
nú verið prófuð og rannsökuð í
óbyggðum Noregs í samstarfi við
Sørlandet-spítala. Carina fylgdist
með tveimur fjórtán manna
hópum unglinga á aldrinum 16 til
18 ára sem fengu óbyggðameðferð
hjá barna- og unglingageðdeild
spítalans.
Ungmennin fóru í tvær dags-
ferðir og eina þriggja daga
helgarferð og svo í dagsferðir í
fjórar vikur áður en haldið var í
sex daga ferðalag. Að lokum var
svo haldin kveðjuathöfn með
fjölskyldumeðlimum og aðstand-
endum.
Enginn þrýstingur í óbyggðum
Carina segir það hafa hjálpað ung-
mennunum að vera úti í náttúrunni.
„Mörg ungmenni sem glíma við
erfiðleika eiga erfitt með að fara inn
á skrifstofu og tala við sálfræðing í
klukkutíma,“ segir Carina. „En með
því að eyða tíma í hópi úti í nátt-
úrunni fá þau að kynnast sjálfum
sér og öðrum á annan hátt en í
hefðbundinni meðferð og sjá ólíkar
hliðar á sér, hvort sem þeim líkar
betur eða verr.“
Mörg ungmennanna sem Carina
fylgdist með töluðu um óreiðu í
hversdagslífinu og miklar kröfur
frá bæði skóla og samfélagsmiðlum
um hvernig þau ættu að haga sér
og líta út. Ef geðræn eða félagsleg
vandamál bætast ofan á þetta getur
þrýstingurinn auðveldlega orðið
þeim ofviða.
„Náttúran getur fangað athyglina
á jákvæðan hátt. Í stað þess að
stressa sig yfir öllu sem er erfitt í líf-
inu einbeittu þau sér frekar að því
sem var að gerast í hópnum,“ segir
hún. „Ungmennin náðu líka betra
sambandi við sjálf sig og þau höfðu
tíma til að staldra við og velta lífinu
fyrir sér.
Þessi meðferð getur líka gagnast
þeim sem glíma við félagskvíða,“
segir Carina. „Ungmennin sögðust
ekki finna fyrir neinum þrýstingi
úti í náttúrunni. Þegar þau sátu
saman við varðeldinn var ekki
nauðsynlegt að segja mikið. Þau
gátu bara verið þau sjálf og þau
þorðu miklu frekar að umgangast
hvert annað þannig.
Við tókum líka eftir því að ung-
mennin byrjuðu fyrst að finna til
öryggis innan hópsins og svo með
tímanum náðu þau meiri tengslum
við meðferðaraðila,“ segir Carina.
„Meðferðaraðilarnir tóku líka
fullan þátt í útivistinni og fyrir
vikið kynnast þeir ungmennunum
og traust byggist upp á milli þeirra.“
Hópmeðferðinni var svo fylgt
eftir með einstaklingsmeðferð með
sérfræðingum.
Varanlegur ávinningur
Ári síðar voru mörg ungmennanna
enn að fara út í óbyggðirnar og flest
sögðu þau að aðstæður þeirra hefðu
batnað, að það væri orðið auðveld-
ara fyrir þau að stjórna tilfinningum
sínum og að þau þekktu sig betur.
Fimm af ungmennunum sem Carina
hafði fylgst með hættu í meðferðinni
en þau höfðu samt sem áður ávinn-
ing af henni.
„Flest áttu þau enn erfitt með
að fóta sig ári síðar, en þau höfðu
öðlast ýmsa nýja og jákvæða inn-
sýn sem kemur að gagni síðar á
lífsleiðinni,“ segir Carina.
Óbyggðameðferðin var upphafið
að bataferli flestra ungmennanna
og þau tóku við stjórntaumunum í
eigin lífi. Þau lærðu að sættast við
sjálf sig og aðstæður sínar, tókst að
líða betur og lærðu smám saman
að höndla hversdagslífið.
Ekkert eitt virkar fyrir alla
„Meðferð undir berum himni er ekki
fyrir alla, en við þurfum að beita
ólíkum nálgunum í geðheilbrigðis-
meðferð. Sumir njóta náttúrunnar,
á meðan til dæmis tónlistarmeðferð
eða reglulegir viðtalstímar henta
öðrum betur,“ segir Carina. „Það er
mikilvægt að þátttakendum bjóðist
val, því það er einn mikilvægasti
þátturinn í að fólk finni löngun til
að taka virkan þátt í meðferðinni og
þar hefst batinn.“
Veita meðferð í óbyggðum
Meðferð undir berum himni gefur ungmennum hlé frá óreiðukenndum hversdagsleikanum
og sífelldum þrýstingi á að afreka og sýna sig. Jákvæð áhrif hennar vara í að minnsta kosti ár.
Norsk rannsókn bendir til að meðferð í óbyggðum geti hjálpað ungmenn-
um með sálræn eða félagsleg vandamál á ýmsan hátt. NORDICPHOTOS/GETTY
Oddur Freyr
Þorsteinsson
oddurfreyr@frettabladid.is
Meðferð undir
berum himni er
ekki fyrir alla, en við
þurfum að beita ólíkum
nálgunum í geðheil-
brigðismeðferð.
Enterosgel er gel til inntöku og er mest notað við meltingarkvillum
ýmiss konar en er líka notað til að hjálpa líkamanum að hreinsa
áfengi hraðar út sem og útvortis á bólur og exem.
Helsta virkni Enterosgel í líkamanum:
Hjálpar líkamanum að stöðva niðurgang
Dregur úr meltingartruflunum
Hraðar hreinsun áfengis úr líkamanum
Hjálpar líkamanum að viðhalda og byggja upp heilbrigða þarmaflóru
Verndar slímhúð meltingarvegar
Enterosgel hentar bæði börnum og fullorðnum
Áratuga reynsla og fjöldi rannsókna hafa sýnt fram á einstaka eiginleika Enterosgel
FÆST Í MAMMA VEIT BEST, MAMMAVEITBEST.IS, HEILSUHÚSUNUM OG HEILSUTORGI BLÓMAVALS
6 KYNNINGARBLAÐ FÓLK 2 . N ÓV E M B E R 2 0 1 9 L AU G A R DAG U R
0
2
-1
1
-2
0
1
9
0
5
:0
7
F
B
1
0
4
s
_
P
0
6
9
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
0
4
s
_
P
0
6
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
0
4
s
_
P
0
3
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
0
4
s
_
P
0
4
1
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
2
4
2
4
-A
D
6
4
2
4
2
4
-A
C
2
8
2
4
2
4
-A
A
E
C
2
4
2
4
-A
9
B
0
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
3
B
F
B
1
0
4
s
_
1
_
1
1
_
2
0
1
9
C
M
Y
K