Fréttablaðið - 02.11.2019, Side 76

Fréttablaðið - 02.11.2019, Side 76
Innf lytjandinn er nýjasta skáldsaga Ólafs Jóhanns Ólafssonar. Þar fer nokkrum sögum fram. Matargagn-rýnandi, sem býr í New York, kemur til landsins með jarð- neskar leifar vinar síns. Á sama tíma veldur hvarf ungrar stúlku uppnámi meðal þjóðarinnar og innflytjandi, múslimi frá Pakistan, deyr voveif- lega. Allt þetta kemur saman í skáldsögu sem er vel f léttuð og afar læsileg. „Ég var að lesa prófarkir af Sakra- mentinu þegar þessi skáldsaga byrj- aði að leita á mig og þræðir hennar komu nokkurn veginn samtímis. Það er yfirleitt þannig að ég verð að vera kominn með aðalkarakterinn í hausinn áður en ég byrja að skrifa. Ég ætlaði upphaflega að hafa sögu- persónuna karlmann en það bara gekk ekki. Svo bankaði þessi kona upp á, karlinn fauk samstundis og hún tók völdin,“ segir Ólafur Jóhann. Í sögunni verða landsmenn hel- teknir af hvarfi ungrar stúlku sem virðist hafa gufað upp. „Stundum gerast atburðir sem verða til þess að samkennd grípur um sig meðal þjóðarinnar. Það er einn af kostum okkar Íslendinga að þegar á bjátar getum við snúið bökum saman. Mig langaði að fjalla um það þegar hjörtu slá í takt. Svo fór ég að velta fyrir mér hvernig væri að standa utan heildarinnar, upplifa sig sem innflytjanda og í ókunnu landi og vera jafnvel tortryggður vegna upp- runans. Í New York spjalla ég mikið við leigubílstjóra. Ég var í leigubíl þegar Anna konan mín hringdi í mig og ég talaði við hana á íslensku. Þegar við vorum búin að tala saman spurði leigubílstjórinn hvaðan ég væri og ég sagði honum það. Hann sagði mér að frændi sinn frá Pakistan væri á Íslandi og væri að reyna að komast til Bandaríkjanna. Honum þætti dimmt á veturna á Íslandi. Þá fóru hinir ýmsu þræðir sögunnar að raðast saman í huga mér.“ Birtist ljóslifandi Aðalpersóna bókarinnar Hildur Haraldsdóttir er ein af hinum eftirminnilegu kvenpersónum sem Ólafi Jóhanni lætur svo vel að skapa. Fyrsta konan sem varð aðal- persóna í bók hans er Ásdís í Slóð fiðrildanna. „Þegar ég fékk þá hug- mynd var ég ekki viss um að það væri sniðugt og ýtti henni frá mér. Svo varð ég hreinlega að láta slag standa því sagan og konan héldust í hendur,“ segir Ólafur Jóhann. „Þegar maður skrifar bók er maður að setja sig í að búa með per- sónum hennar í langan tíma og þá verður að sjá fram á að sú sambúð verði sæmileg og að maður hafi ein- hverja ánægju af henni. Hildur birt- ist mér ljóslifandi mjög snemma og mótaðist mjög fljótt. Ég hafði mjög gaman af að skrifa hana. Bækurnar renna ekki alltaf jafn vel í skriftum en þessi rann mjög vel. Auðvitað var þetta fyrirhöfn en ég var ekki að rekast á neina veggi.“ Hildur er matargagnrýnandi sem skrifar undir karlmannsdulnefni. Matur fær töluvert pláss í bókinni og þar er oft vitnað í matargagnrýni Hildar. „Ég hafði mjög gaman af að skrifa matargagnrýnina. Tilgerð fer mjög í taugarnar á Hildi og sömu- leiðis það sem henni finnst vera uppskafningsháttur,“ segir Ólafur Jóhann. Dekrað við útlendingahatur Innflytjandinn fjallar ekki síst um útlendingahatur og fordóma gagn- vart múslimum. Bókin ber með sér að höfundur lagðist í mikla heim- ildavinnu. „Ég talaði við fólk úr félögum og samfélagi múslima hér á landi og las allt sem ég komst yfir. Ég reyndi að viða að mér eins miklum upplýsingum og ég gat.“ Matarmenning kemur einnig við sögu í þeim köflum bókarinnar Kona bankaði upp á og tók völdin Í nýrri skáldsögu fjallar Ólafur Jóhann Ólafsson meðal annars um fordóma gagnvart múslimum og samstöðu þjóðar. Hann segist óttast að Donald Trump verði endurkjörinn forseti Bandaríkjanna. Ég er ánægður atvinnuleysingi, segir Ólafur Jóhann. FRÉTTA- BLAÐIÐ/ERNIR HÉR VOTTAR FYRIR DEKRI VIÐ ÚTLENDINGAHATUR. ÞAÐ ER ÞÓ EKKERT Í LÍKINGU VIÐ ÞAÐ DAÐUR VIÐ RASISMA SEM ÉG BÝ VIÐ DAGSDAGLEGA FYRIR VESTAN. sem tengjast múslimum. „Ég fór á skyndibitastaðina á Ingólfstorgi, skoðaði þá og fékk tilfinningu fyrir þeim og spjallaði við starfsmenn. Í New York fór ég í lítið hverfi þar sem múslimar koma saman í hádeginu og grípa með sér mat. Ég notaði sér- hvert tækifæri í leigubílum til að spjalla við leigubílstjóra sem eru múslimar.“ Í bókinni er minnst á íslenskan stjórnmálaflokk, Heimaflokkinn, en kjörorð hans er: Heima er best. Ólafur Jóhann er spurður hvort hann skynji hneigð hér á landi til að stimpla múslima sem óæskilega. „Heimaf lokkurinn er ekki algjör hugarsmíð mín. Hér vottar fyrir dekri við útlendingahatur. Það er þó ekkert í líkingu við það daður við rasisma sem ég bý við dagsdag- lega fyrir vestan,“ segir hann. Óttast endurkjör Trumps Spurður um afstöðu sína til Donalds Trump sem forseta segir hann: „Ég er frjáls og óháður í pólitík. Mér hefur ekki liðið svona undir neinum forseta. Ég hef aldrei séð þessa þjóð jafn klofna. Hver einasti dagur hjá Trump er þaninn. Öfgarnar, fram- ferðið, talsmátinn, ekkert af þessu er eðlilegt en verið er að normal- ísera það. Trump passar að ekkert annað komist að. Þekktur blaða- maður sem er búinn að skrifa bækur um síðustu tvo forseta og þeirra tíð sagði við mig að Trump vildi eiga allt áhorf. Þannig metur hann hvernig dagurinn hefur verið, ef ekkert annað en hann sjálfur hefur komist að, þá er hann sáttur.“ Hann segist óttast að Trump nái endurkjöri. „Ég er hræddur um að Demókratar fari of langt til vinstri og tapi þess vegna næstu forseta- kosningum. Það eru þrír hópar sem Demókratar verða að ná í til að vinna. Það er miðjufylgið sem þeir náðu í þingkosningunum fyrir ári. Síðan eru það blökkumennirnir sem mættu ekki á kjörstað fyrir Hillary Clinton, eins og þeir gerðu fyrir Obama. Síðan er það hvíta verkafólkið. Ég held að Elizabeth Warren muni ekki ná til þessara þriggja hópa. Hún hefur mjög lítið fylgi meðal blökkufólks og verkafólks og millistéttin telur hana of vinstri- sinnaða. Ef hún verður frambjóð- andi Demókrata þá held ég að þeir muni tapa. Joe Biden nær til allra þriggja hópa, en hefur rekið ansi slappa kosningabaráttu. Það er samt enn mikið eftir.“ Ánægður atvinnuleysingi Rúmt ár er síðan Ólafur Jóhann lét af störfum sem aðstoðarforstjóri Time Warner. „Ég er ekki með nein fráhvarfseinkenni. Mér líkaði vel í mínu starfi og hafði gaman af því en ef ég hefði verið þar áfram hefði það verið endurtekið efni. Þegar ég hætti skrifaði ég undir samning þess efnis að ég mætti ekki fara í samkeppni við fyrirtækið og nýja eigendur. Sá samningur rann út nýlega. Nú hef ég meiri tíma til að skrifa og vera með fjölskyldunni og get verið meira á Íslandi. Eitt og annað hefur verið nefnt við mig en ég er ekkert að f lýta mér, ég ætla bara að sjá til. Ég er ánægður atvinnu- leysingi.“ Kolbrún Bergþórsdóttir kolbrunb@frettabladid.is 2 . N Ó V E M B E R 2 0 1 9 L A U G A R D A G U R32 H E L G I N ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð 0 2 -1 1 -2 0 1 9 0 5 :0 7 F B 1 0 4 s _ P 0 8 5 K .p 1 .p d f F B 1 0 4 s _ P 0 7 6 K .p 1 .p d f F B 1 0 4 s _ P 0 2 0 K .p 1 .p d f F B 1 0 4 s _ P 0 2 9 K .p 1 .p d f A u to m a tio n P la te re m a k e : 2 4 2 4 -6 8 4 4 2 4 2 4 -6 7 0 8 2 4 2 4 -6 5 C C 2 4 2 4 -6 4 9 0 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 4 B F B 1 0 4 s _ 1 _ 1 1 _ 2 0 1 9 C M Y K
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.