Fréttablaðið - 02.11.2019, Blaðsíða 76
Innf lytjandinn er nýjasta skáldsaga Ólafs Jóhanns Ólafssonar. Þar fer nokkrum sögum fram. Matargagn-rýnandi, sem býr í New York, kemur til landsins með jarð-
neskar leifar vinar síns. Á sama tíma
veldur hvarf ungrar stúlku uppnámi
meðal þjóðarinnar og innflytjandi,
múslimi frá Pakistan, deyr voveif-
lega. Allt þetta kemur saman í
skáldsögu sem er vel f léttuð og afar
læsileg.
„Ég var að lesa prófarkir af Sakra-
mentinu þegar þessi skáldsaga byrj-
aði að leita á mig og þræðir hennar
komu nokkurn veginn samtímis.
Það er yfirleitt þannig að ég verð að
vera kominn með aðalkarakterinn
í hausinn áður en ég byrja að skrifa.
Ég ætlaði upphaflega að hafa sögu-
persónuna karlmann en það bara
gekk ekki. Svo bankaði þessi kona
upp á, karlinn fauk samstundis
og hún tók völdin,“ segir Ólafur
Jóhann.
Í sögunni verða landsmenn hel-
teknir af hvarfi ungrar stúlku sem
virðist hafa gufað upp. „Stundum
gerast atburðir sem verða til þess
að samkennd grípur um sig meðal
þjóðarinnar. Það er einn af kostum
okkar Íslendinga að þegar á bjátar
getum við snúið bökum saman.
Mig langaði að fjalla um það þegar
hjörtu slá í takt. Svo fór ég að velta
fyrir mér hvernig væri að standa
utan heildarinnar, upplifa sig sem
innflytjanda og í ókunnu landi og
vera jafnvel tortryggður vegna upp-
runans.
Í New York spjalla ég mikið við
leigubílstjóra. Ég var í leigubíl þegar
Anna konan mín hringdi í mig og ég
talaði við hana á íslensku. Þegar við
vorum búin að tala saman spurði
leigubílstjórinn hvaðan ég væri og
ég sagði honum það. Hann sagði
mér að frændi sinn frá Pakistan
væri á Íslandi og væri að reyna að
komast til Bandaríkjanna. Honum
þætti dimmt á veturna á Íslandi. Þá
fóru hinir ýmsu þræðir sögunnar að
raðast saman í huga mér.“
Birtist ljóslifandi
Aðalpersóna bókarinnar Hildur
Haraldsdóttir er ein af hinum
eftirminnilegu kvenpersónum
sem Ólafi Jóhanni lætur svo vel að
skapa. Fyrsta konan sem varð aðal-
persóna í bók hans er Ásdís í Slóð
fiðrildanna. „Þegar ég fékk þá hug-
mynd var ég ekki viss um að það
væri sniðugt og ýtti henni frá mér.
Svo varð ég hreinlega að láta slag
standa því sagan og konan héldust
í hendur,“ segir Ólafur Jóhann.
„Þegar maður skrifar bók er
maður að setja sig í að búa með per-
sónum hennar í langan tíma og þá
verður að sjá fram á að sú sambúð
verði sæmileg og að maður hafi ein-
hverja ánægju af henni. Hildur birt-
ist mér ljóslifandi mjög snemma og
mótaðist mjög fljótt. Ég hafði mjög
gaman af að skrifa hana. Bækurnar
renna ekki alltaf jafn vel í skriftum
en þessi rann mjög vel. Auðvitað
var þetta fyrirhöfn en ég var ekki
að rekast á neina veggi.“
Hildur er matargagnrýnandi sem
skrifar undir karlmannsdulnefni.
Matur fær töluvert pláss í bókinni
og þar er oft vitnað í matargagnrýni
Hildar. „Ég hafði mjög gaman af að
skrifa matargagnrýnina. Tilgerð fer
mjög í taugarnar á Hildi og sömu-
leiðis það sem henni finnst vera
uppskafningsháttur,“ segir Ólafur
Jóhann.
Dekrað við útlendingahatur
Innflytjandinn fjallar ekki síst um
útlendingahatur og fordóma gagn-
vart múslimum. Bókin ber með sér
að höfundur lagðist í mikla heim-
ildavinnu. „Ég talaði við fólk úr
félögum og samfélagi múslima hér á
landi og las allt sem ég komst yfir. Ég
reyndi að viða að mér eins miklum
upplýsingum og ég gat.“
Matarmenning kemur einnig
við sögu í þeim köflum bókarinnar
Kona bankaði upp
á og tók völdin
Í nýrri skáldsögu fjallar Ólafur Jóhann Ólafsson meðal annars um
fordóma gagnvart múslimum og samstöðu þjóðar. Hann segist
óttast að Donald Trump verði endurkjörinn forseti Bandaríkjanna.
Ég er ánægður
atvinnuleysingi,
segir Ólafur
Jóhann. FRÉTTA-
BLAÐIÐ/ERNIR
HÉR VOTTAR FYRIR DEKRI
VIÐ ÚTLENDINGAHATUR.
ÞAÐ ER ÞÓ EKKERT Í
LÍKINGU VIÐ ÞAÐ DAÐUR
VIÐ RASISMA SEM ÉG BÝ
VIÐ DAGSDAGLEGA FYRIR
VESTAN.
sem tengjast múslimum. „Ég fór á
skyndibitastaðina á Ingólfstorgi,
skoðaði þá og fékk tilfinningu fyrir
þeim og spjallaði við starfsmenn. Í
New York fór ég í lítið hverfi þar sem
múslimar koma saman í hádeginu
og grípa með sér mat. Ég notaði sér-
hvert tækifæri í leigubílum til að
spjalla við leigubílstjóra sem eru
múslimar.“
Í bókinni er minnst á íslenskan
stjórnmálaflokk, Heimaflokkinn,
en kjörorð hans er: Heima er best.
Ólafur Jóhann er spurður hvort
hann skynji hneigð hér á landi til
að stimpla múslima sem óæskilega.
„Heimaf lokkurinn er ekki algjör
hugarsmíð mín. Hér vottar fyrir
dekri við útlendingahatur. Það er
þó ekkert í líkingu við það daður
við rasisma sem ég bý við dagsdag-
lega fyrir vestan,“ segir hann.
Óttast endurkjör Trumps
Spurður um afstöðu sína til Donalds
Trump sem forseta segir hann: „Ég
er frjáls og óháður í pólitík. Mér
hefur ekki liðið svona undir neinum
forseta. Ég hef aldrei séð þessa þjóð
jafn klofna. Hver einasti dagur hjá
Trump er þaninn. Öfgarnar, fram-
ferðið, talsmátinn, ekkert af þessu
er eðlilegt en verið er að normal-
ísera það. Trump passar að ekkert
annað komist að. Þekktur blaða-
maður sem er búinn að skrifa bækur
um síðustu tvo forseta og þeirra
tíð sagði við mig að Trump vildi
eiga allt áhorf. Þannig metur hann
hvernig dagurinn hefur verið, ef
ekkert annað en hann sjálfur hefur
komist að, þá er hann sáttur.“
Hann segist óttast að Trump nái
endurkjöri. „Ég er hræddur um að
Demókratar fari of langt til vinstri
og tapi þess vegna næstu forseta-
kosningum. Það eru þrír hópar
sem Demókratar verða að ná í til að
vinna. Það er miðjufylgið sem þeir
náðu í þingkosningunum fyrir ári.
Síðan eru það blökkumennirnir
sem mættu ekki á kjörstað fyrir
Hillary Clinton, eins og þeir gerðu
fyrir Obama. Síðan er það hvíta
verkafólkið.
Ég held að Elizabeth Warren
muni ekki ná til þessara þriggja
hópa. Hún hefur mjög lítið fylgi
meðal blökkufólks og verkafólks
og millistéttin telur hana of vinstri-
sinnaða. Ef hún verður frambjóð-
andi Demókrata þá held ég að þeir
muni tapa. Joe Biden nær til allra
þriggja hópa, en hefur rekið ansi
slappa kosningabaráttu. Það er
samt enn mikið eftir.“
Ánægður atvinnuleysingi
Rúmt ár er síðan Ólafur Jóhann lét
af störfum sem aðstoðarforstjóri
Time Warner. „Ég er ekki með nein
fráhvarfseinkenni. Mér líkaði vel í
mínu starfi og hafði gaman af því
en ef ég hefði verið þar áfram hefði
það verið endurtekið efni. Þegar
ég hætti skrifaði ég undir samning
þess efnis að ég mætti ekki fara í
samkeppni við fyrirtækið og nýja
eigendur. Sá samningur rann út
nýlega.
Nú hef ég meiri tíma til að skrifa
og vera með fjölskyldunni og get
verið meira á Íslandi. Eitt og annað
hefur verið nefnt við mig en ég er
ekkert að f lýta mér, ég ætla bara
að sjá til. Ég er ánægður atvinnu-
leysingi.“
Kolbrún
Bergþórsdóttir
kolbrunb@frettabladid.is
2 . N Ó V E M B E R 2 0 1 9 L A U G A R D A G U R32 H E L G I N ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð
0
2
-1
1
-2
0
1
9
0
5
:0
7
F
B
1
0
4
s
_
P
0
8
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
0
4
s
_
P
0
7
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
0
4
s
_
P
0
2
0
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
0
4
s
_
P
0
2
9
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 2
4
2
4
-6
8
4
4
2
4
2
4
-6
7
0
8
2
4
2
4
-6
5
C
C
2
4
2
4
-6
4
9
0
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
4
B
F
B
1
0
4
s
_
1
_
1
1
_
2
0
1
9
C
M
Y
K